Ferill 190. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1989. – 1059 ár frá stofnun Alþingis.
112. löggjafarþing. – 190 . mál.


Sþ.

215. Fyrirspurn



til fjármálaráðherra um uppgjör á skuldum ríkissjóðs við sveitarfélög.

Frá Danfríði Skarphéðinsdóttur.



    Hvers vegna er í frumvarpi til fjárlaga fyrir árið 1990 ekki gert ráð fyrir fjármagni til uppgjörs á skuldum ríkissjóðs við sveitarfélögin eins og lög nr. 87/1989 kveða á um?