Ferill 192. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
1989. – 1059 ár frá stofnun Alþingis.
112. löggjafarþing. – 192 . mál.
Sþ.
217. Tillaga til þingsályktunar
um heimild til handa forsetum Alþingis að ganga til samninga um kaup á Hótel Borg.
Flm.: Guðrún Helgadóttir, Jón Helgason, Árni Gunnarsson.
Alþingi ályktar að heimila forsetum Alþingis að ganga til samninga um kaup á Hótel Borg eða öðru húsnæði í næsta nágrenni við Alþingishúsið, ef hagkvæmara þykir, og láta gera nauðsynlega lagfæringu á húseigninni ef af kaupunum verður.
Við ákvörðun um kaup og umfang endurbóta á húsnæði skal hafa samráð við fjárveitinganefnd.
Greinargerð.
Tillaga þessi var flutt á síðasta þingi en hlaut þá ekki fullnaðarafgreiðsu. Henni var eftir fyrri umræðu vísað til fjárveitinganefndar. Tillagan var afgreidd í nefndinni 6. maí sl. og mælti meiri hl. hennar með samþykkt tillögunnar með breyttu orðalagi. Tillagan er nú endurflutt með þeim breytingum sem meiri hl. fjárveitinganefndar lagði til, sbr. brtt. á þskj. 1080 og nál. á þskj. 1079 á síðasta þingi.
Eftir viðræður forseta Alþingis við borgarstjóra nýlega er ljóst að borgaryfirvöld hafa hvorki í hyggju að kaupa Hótel Borg né stuðla fjárhagslega að rekstri þess sem hótels.
Flutningsmenn telja eðlilegt að tillaga þessi hljóti afgreiðslu nú á haustþingi áður en fjárlög næsta árs verða samþykkt.