Ferill 90. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1989. – 1059 ár frá stofnun Alþingis.
112. löggjafarþing. – 90 . mál.


Nd.

251. Nefndarálit



um frv. til l. um breyt. á l. nr. 72/1982, um námslán og námsstyrki.

Frá menntamálanefnd.



    Nefndin hefur fjallað um frumvarpið og fengið um það umsagnir frá Bandalagi íslenskra sérskólanema, Lánasjóði íslenskra námsmanna, Sambandi íslenskra námsmanna erlendis og stúdentaráði Háskóla Íslands.
    Nefndin leggur til að frumvarpið verði samþykkt með breytingu sem flutt er tillaga um á sérstöku þingskjali. Breytingin er við efnisgrein frumvarpsins og miðar að því að gera orðalag greinarinnar skýrara.
    Ragnhildur Helgadóttir og Ólafur Þ. Þórðarson voru fjarverandi við afgreiðslu málsins.

Alþingi, 6. des. 1989.



Ragnar Arnalds,


form., frsm.


Birgir Ísl. Gunnarsson,


fundaskr., með fyrirvara.


Árni Gunnarsson.


Þórhildur Þorleifsdóttir.


Guðmundur G. Þórarinsson.






Prentað upp.