Ferill 219. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
1989. – 1059 ár frá stofnun Alþingis.
112. löggjafarþing. – 219 . mál.
Nd.
261. Frumvarp til laga
um breyting á lögum um eftirlaun aldraðra, nr. 2/1985.
(Lagt fyrir Alþingi á 112. löggjafarþingi 1989.)
1. gr.
20. gr. laganna orðist svo:Endurgreiðslur samkvæmt lögum þessum falla niður eigi síðar en 1. jan. 1992.
2. gr.
Í stað „árin 1980–1989“ í 1. og 2. mgr. 21. gr. laganna komi: árin 1980–1991.Í stað „c) í byrjun hvers mánaðar árin 1985–1989“ í 1. mgr. 21. gr. laganna komi: c) í byrjun hvers mánaðar árin 1985–1991.
3. gr.
Í stað „árin 1980–1989“ í 22. gr. laganna komi: árin 1980–1991.4. gr.
Eftir c-lið í 1. mgr. 24. gr. laganna komi: d) árið 1990 2%, e) árið 1991 1%.Í stað „áranna 1983–1989“ í 2. mgr. 24. gr. laganna komi: áranna 1983–1991.
5. gr.
Í stað „og 3% árin 1986–1989“ í 1. tölul. 1. mgr. 25. gr. laganna komi: 3% árin 1986–1989, 2% árið 1990 og 1% árið 1991.Í stað „áranna 1983–1989“ í 2. mgr. 25. gr. laganna komi: áranna 1983–1991.
6. gr.
Lög þessi öðlast gildi 1. janúar 1990.Athugasemdir við lagafrumvarp þetta.
Árið 1979 voru sett lög um eftirlaun til aldraða, nr. 97 24. des. 1979. Við setningu laganna var gert ráð fyrir að eftirlaunagreiðslur samkvæmt þeim féllu niður í árslok 1984. Þegar þar að kom þótti ekki koma til greina að eftirlaunagreiðslur þessar féllu niður án frekari ráðstafana af hálfu stjórnvalda. Ákvæði laganna um eftirlaunagreiðslur voru því framlengd til 1. jan. 1990. Á ný er ljóst að þær lífeyrisgreiðslur, sem hér um ræðir, mega ekki falla niður þar sem þær skipta miklu um fjárhag og afkomu þess fólks sem nýtur þeirra. Af þessum sökum gaf ríkisstjórnin í tengslum við lausn kjarasamninga í lok aprílmánaðar síðastliðins fyrirheit um að hún mundi beita sér fyrri framlengingu laganna um eftirlaun til aldraðra. Ekki var tiltekið nákvæmlega með hvaða hætti lífeyrisgreiðslum þessum skyldi fram haldið. Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið fól umsjónarnefnd eftirlauna að kanna þetta mál.
Í greinargerð nefndarinnar frá 9. júní sl. kemur fram að hún telji einkum þrjá kosti koma til greina um framlengingu laganna. Í fyrsta lagi að framlengja enn um sinn gildandi lög í meginatriðum óbreytt að öðru leyti en snertir það iðgjaldshlutfall sem lífeyrissjóðir greiða til þessa lífeyriskerfis. Í öðru lagi að framlengja greiðslur með yfirtöku hins opinbera á þeim. Í þriðja lagi að framlengja greiðslur samkvæmt lögunum en breyta kostnaðarskiptingu milli lífeyrissjóða annars vegar og hins opinbera hins vegar. Umsjónarnefndin taldi síðasta kostinn álitlegastan og lagði síðar fram formlegar tillögur þar að lútandi.
Það er skoðun ríkisstjórnarinnar og reyndar í samræmi við fyrirheit hennar að framlengja beri lögin næstu tvö ár með þeim hætti sem gert er ráð fyrir í þeim kosti sem fyrstur er nefndur hér á undan. Á þeim tíma verði þau tekin til endurskoðunar í tengslum við heildarendurskoðun málefna lífeyrissjóða og með hliðsjón af þeim tillögum umsjónarnefndar sem áður var getið. Það fæli í sér að lífeyrissjóðir greiddu verðtryggð réttindi eftir reglugerðum sínum og í samræmi við iðgjaldsgreiðslutíma, en hið opinbera greiddi það sem vantaði á full réttindi samkvæmt gildandi lögum. Með þeirri tveggja ára framlengingu og breytingu á því iðgjaldshlutfalli, sem lífeyrissjóðum er gert skylt að greiða til þessa eftirlaunakerfis og gert er ráð fyrir í þessu frumvarpi, gefst bæði ráðrúm til að kanna þessi lög í tengslum við mótun framtíðarstefnu í málefnum lífeyrissjóða og jafnframt fá núverandi kostnaðaraðilar tóm til aðlögunar að breyttri kostnaðarskiptingu. Þykir heppilegra að framlög sjóða verkalýðsfélaga til greiðslu verðtryggingar skv. I. kafla laganna og framlög annarra sjóða til greiðslu eftirlauna skv. II. kafla verði lækkuð í áföngum á tveimur árum en að þau verði felld niður þegar í stað eins og tillögur umsjónarnefndar gera ráð fyrir.
Hér á eftir er gerð grein fyrir þessu máli og eru þeir kaflar, sem fjalla um aðdraganda laganna, eftirlaunin sjálf, eftirlaunaþegana og horfur um fjölda þeirra, teknir úr greinargerð umsjónarnefndar.
Aðdragandi og efni laganna um eftirlaun til aldraða.
Lögin um eftirlaun til aldraðra, nr. 97/1979, leystu af hólmi lög um eftirlaun til aldraðra félaga í stéttarfélögum, nr. 63/1971, en upphafleg lög um þetta efni nr. 18/1970 voru sett í framhaldi af kjarasamningum 1969 og stofnun hinna svonefndu almennu lífeyrissjóða verkalýðsfélaga í ársbyrjun 1970. Tilgangurinn með lögunum var sá að veita eldri félögum verkalýðsfélaganna réttindi umfram það sem iðgjaldagreiðslutími gat veitt tilefni til þar sem lítið var eftir af starfsævi þeirra eða henni jafnvel lokið. Samkvæmt fyrirheiti ríkisstjórnarinnar við samningana 1969 skyldu útgjöld vegna þessara viðbótarréttinda næstu 15 árin borin af Atvinnuleysistryggingasjóði að 3 / 4 og ríkissjóði að 1 / 4 , en síðan tækju hlutaðeigandi lífeyrissjóðir við, enda yrði þá farið að draga verulega úr útgjöldum vegna þessara ráðstafana. Höfuðástæðan fyrir því, að sett voru lög um þetta efni í stað bráðabirgðaákvæða í reglugerðum lífeyrissjóðanna, var fjárhagsgrundvöllurinn og því var gert ráð fyrir að lögin féllu úr gildi í árslok 1984.
Réttindi samkvæmt lögunum um eftirlaun til aldraðra félaga í stéttarfélögum voru takmörkuð við verkalýðsfélög í skilningi laga um atvinnuleysistryggingar. Var sú takmörkun í samræmi við áðurnefndan fjárhagsgrundvöll, þar sem Atvinnuleysistryggingasjóður bar 3 / 4 hluta útgjaldanna áður en hinar sérstöku verðtryggingarráðstafanir komu til sögunnar. Það var enn fremur skilyrði að hlutaðeigandi verkalýðsfélag hefði komið á hjá sér skylduaðild að lífeyrissjóði, þ.e. að yngri mönnum væru tryggð eigi lakari réttindi en þau sem lögin veittu hinum eldri. Réttindi vegna tíma, eftir að skylduaðild var komið á (yfirleitt frá ársbyrjun 1970), fóru eftir iðgjaldagreiðslum, en til þess tíma var — að ákveðnu marki — miðað við launatekjur sem gjaldskyldar hefðu talist ef hlutaðeigandi lífeyrissjóðir hefðu verið starfandi.
Samkvæmt ákvæðum laganna frá 1971 breyttust lífeyrisgreiðslur árlega sem nam breytingu á meðallaunum næstliðinna fimm ára og lífeyrisgreiðslurnar voru því aðeins verðtryggðar að mjög takmörkuðu leyti. Eftir því sem verðbólga færðist í aukana fyrir miðjan síðasta áratug fór því hlutfall lífeyris samkvæmt lögunum og launa hríðlækkandi. Úr þessu var bætt til bráðabirgða með samkomulagi samtaka launþega og vinnuveitenda í febrúar 1976 þess efnis að lífeyrir samkvæmt lögunum yrði verðtryggður þannig að lífeyrissjóðir á samingssviði þessara aðila kostuðu sameiginlega þá hækkun lífeyris sem af því hlytist að lífeyririnn breyttist jafnaðarlega til samræmis við launahækkanir.
Verðtryggingarreglurnar frá 1976 hafa haft í för með sér aukna verðtryggingu greiðslna úr lífeyrissjóðum langt út fyrir þann hóp sem rétt á samkvæmt lögum um eftirlaun til aldraðra eða II. kafla laga um Lífeyrissjóð bænda. Munu nú allir þeir lífeyrissjóðir, sem ekki er beinlínis skylt að láta lífeyrisfjárhæðir fylgja breytingum á launum eða kauptöxtum, greiða uppbætur í samræmi við nefnt samkomulag með þeim breytingum sem síðan hafa verið á því gerðar.
Í tengslum við gerð kjarasamninga og við endurnýjun lífeyrissamkomulags aðila vinnumarkaðarins í júní 1977 gaf ríkisstjórnin m.a. fyrirheit um að samdar skyldu tillögur sem tryggðu öllum landsmönnum svipaðan rétt og lögin um eftirlaun til aldraðra félaga í stéttarfélögum ákveða félögum í stéttarfélögum fram til þess að nýskipan lífeyriskerfis tæki gildi. Á grundvelli þessarar yfirlýsingar var undirbúið frumvarp til laga um eftirlaun til aldraðra sem síðar varð að lögum nr. 97/1979.
Lögin um eftirlaun til aldraðra skiptast í sex kafla. Í I. kafla eru ákvæði um eftirlaun til aldraðra félaga í stéttarfélögum sem eru efnislega hin sömu og voru í lögunum nr. 63/1971. Í II. kafla er kveðið á um almenn eftirlaun til aldraðra, þ.e. um réttindi sem hvorki falla undir I. kafla laganna né II. kafla laga um Lífeyrissjóð bænda. Með ákvæðum II. kafla voru þeim mönnum, sem ekki hafa verið félagar í stéttarfélögum sem talin eru til verkalýðsfélaga í skilningi laga um atvinnuleysistryggingar, tryggð nokkurn veginn sömu réttindi og félögum í stéttarfélögum og eftirlaunarétturinn þannig gerður almennur. Í III. kafla eru svo ýmis sameiginleg ákvæði um bótafjárhæðir, tengsl milli I. og II. kafla laganna og II. kafla laga um Lífeyrissjóð bænda svo og um framkvæmd. Í IV. kafla laganna eru ákvæði um uppbót á lífeyri, þ.e. þá verðtryggingu lífeyris sem fyrst var ákveðin með lífeyrissamkomulagi aðila vinnumarkaðarins í febrúar 1976. Nær verðtryggingin jafnt til lífeyris samkvæmt I. og II. kafla laganna. Í V. kafla eru fjárhagsákvæði og loks eru gildistökuákvæði í VI. kafla.
Í tengslum við gerð kjarasaminga í árslok 1980 var samið um sérstök viðbótarréttindi til handa eftirlaunaþegum skv. I. kafla og var efni þess samkomulags fellt inn í lögin sem 26. gr. með lögum nr. 52/1981. Í þessu felst að frá og með desember 1980 skulu rétthafar skv. I. kafla fá viðbót sem nemur þremur stigum umfram þau réttindi sem lögin veita að öðru leyti. Viðbótin tekur bæði til grunnlífeyris skv. I. kafla og uppbótar og er kostnaður borinn af Atvinnuleysistryggingasjóði.
Ákvæði laganna um eftirlaun.
Eftirlaunin, sem kveðið er á um í lögunum, skiptast í grófum dráttum í þrjá staði, a) eftirlaun til aldraðra félaga í stéttarfélögum (grunnlífeyri) ásamt greiðslu uppbótar (verðtryggingar) á þau og sérstakri greiðslu þriggja stiga uppbótar á þessi fyrrnefndu eftirlaun; b) almenn eftirlaun til aldraðra sem ekki hafa átt aðild að stéttarfélögum; og loks c) hliðstæðar eftirlaunagreiðslur úr Lífeyrissjóði bænda.
Sameiginleg skilyrði eftirlaunaréttar eru þau að eftirlaunaþegar séu fæddir 1914 og fyrr, hafi náð 70 ára aldri og látið af störfum eða náð 75 ára aldri án tillits til hvort þeir hafa látið af störfum, eigi að baki a.m.k. 10 ára réttindatíma og hafi hvert þessara ára áunnið sér a.m.k. 1 / 25 úr stigi samkvæmt nánari skilgreiningu. Þá gilda og sömu reglur um tegundir lífeyris, ákvörðun hans og útreikning. Lífeyristegundir eru ellilífeyrir og makalífeyrir (lögin kveða raunar einnig á um örorkulífeyri en um hann er ekki lengur að ræða þar sem örorkulífeyrisþegar hafa nú allir náð ellilífeyrisaldri). Á hinn bóginn gilda mismunandi reglur um fjármögnun lífeyrisgreiðslna. Að öðru leyti má gera nánari grein fyrir eftirlaununum sem hér segir:
Eftirlaun til aldraðra félaga í stéttarfélögum
skv. I. kafla laganna.
Grunnlífeyrir. Með grunnlífeyri er átt við þann lífeyri sem lögin kváðu á um í upphafi og miðast við reglugerðarákvæði lífeyrissjóða verkalýðsfélaganna sem stofnaðir voru eftir kjarasamninga á árinu 1969. Fjárhæð þessa grunnlífeyris á hverju almanaksári ákveðst sem hlutfall af meðaltali grundvallarlauna 1) undanfarin fimm almanaksár. Þessi grunnlífeyrir er kostaður af ríkissjóði að 1 / 4 og af Atvinnuleysistryggingasjóði að 3 / 4 .
Uppbót á grunnlífeyri skv. I. kafla laganna er greidd skv. 21. gr. laganna af lífeyrissjóðum sem aðild eiga að sérstöku samkomulagi lífeyrissjóða á samingssviði ASÍ, FFSÍ, VSÍ og VMS. Uppbót þessi felst í því að í stað þess, að lífeyrisréttur miðist við fimm ára meðaltal, miðast hann við grundvallarlaun eins og þau eru í byrjun hvers mánaðar. Lífeyririnn fylgir þannig breytingum launa. Greiðslur þessarar uppbótar eru fjármagnaðar með þeim hætti að hver lífeyrissjóður, sem aðild á að samkomulaginu, leggur fram 3% af iðgjaldstekjum í sameiginlegan sjóð. Þessum sjóði er skipt milli lífeyrissjóðanna í hlutfalli við byrði þeirra af uppbótargreiðslum, en það sem á vantar að þetta dugi greiða sjóðirnir sjálfir vegna eigin sjóðfélaga.
Greiðsla þriggja stiga uppbótar á rætur að rekja til kjarasamninga á árinu 1980. Þessi uppbót rennur eingöngu til þeirra sem eiga lífeyrisrétt skv. I. kafla laganna. Kostnaður er greiddur af Atvinnuleysistryggingasjóði.
(Grundvallarlaun eru tekin fjárhæð sem stigaútreikningur og ellilífeyrishlutfall miðast við. Grundvallarlaunin eru ákveðin í lögunum miðað við 1. jan. 1985, en umsjónarnefnd eftirlauna ákveður síðan beytingar þeirra í samræmi við breytingar á launum verkamanna. Grundvallarlaunin eru 40.263 kr. á mánuði frá 1. nóv. 1989.)
Almenn eftirlaun skv. II. kafla laganna.
Hér er um að ræða hliðstæðar greiðslur til aldraðra sem ekki eiga aðild að stéttarfélögum og kveðið er á um í I. kafla laganna. Segja má að einkum þrennt skilji á milli lífeyrisþega skv. I. og II. kafla. Í fyrsta lagi eiga þeir sem njóta lífeyris skv. II. kafla yfirleitt ekki aðild að lífeyrissjóði, ólíkt því sem gerist um lífeyrisþega skv. I. kafla. Í öðru lagi njóta lífeyrisþegar skv. II. kafla ekki þriggja stiga uppbótar á lífeyri eins og lífeyrisþegar skv. I. kafla. Í þriðja lagi er greiðsla grunnlífeyris og uppbótar á hann (verðtryggingar) til lífeyrisþega skv. II. kafla fjármögnuð með allt öðrum hætti en greiðslur til lífeyrisþega skv. I. kafla laganna. Greiðslur skv. II. kafla eru í einu lagi kostaðar sem hér segir: a) Lífeyrissjóðir, sem ekki eiga aðild að hinu sérstaka samkomulagi um greiðslu uppbótar á lífeyri skv. 21. gr., leggja fram 3% af iðgjaldstekjum sínum til þessara greiðslna. b) Það sem á vantar að greiðslur lífeyrissjóða skv. a) hrökkvi til skiptist þannig að ríkissjóður beri 40%, en Jöfnunarsjóður sveitarfélaga og Atvinnuleysistryggingasjóður 30% hvor.
Eftirlaun til aldraðra bænda.
Samkvæmt lögum um Lífeyrissjóð bænda njóta aldraðir bændur, sem uppfylla sömu skilyrði og lífeyrisþegar skv. I. og II. kafla laga um eftirlaun til aldraðra, sams konar eftirlaunaréttar. Kostnaður af þessum greiðslum er borinn þannig að af greiðslum grunnlífeyris, sem miðast við meðaltal grundvallarlauna næstliðin fimm ár, borgar ríkissjóður 62,5% og Stofnlánadeild landbúnaðarins 37,5%. Kostnaður af greiðslu uppbótar á þennan lífeyri er hins vegar borinn með sama hætti og greiðslur skv. II. kafla laga um eftirlaun til aldraðra, þ.e. af 3% iðgjaldsframlagi lífeyrissjóða, en að öðru leyti af ríkissjóði (40%) og Jöfnunarsjóði sveitarfélaga og Atvinnuleysistryggingasjóði (30% hvor).
Kostnaður af eftirlaunagreiðslum.
Eftirfarandi tafla sýnir kostnað af greiðslu eftirlauna samkvæmt lögum um eftirlaun til aldraðra og lögum um Lífeyrissjóð bænda í millj. kr.:
(Tafla ekki til tölvutæk.)
Í meðfylgjandi töflu kemur fram að samkomulagssjóðirnir báru réttan þriðjung heildarkostnaðarins 1988 en um 29% samkvæmt áætlun 1983. Þessi kostnaður leggst hins vegar mjög misjafnt á sjóðina. Tveir sjóðir skera sig úr með há nettóframlög í krónutölu til hins sameiginlega sjóðs, þ.e. Lífeyrissjóður verslunarmanna (35 millj. kr. 1988, 38 millj. kr. árið 1989) og Lífeyrissjóður sjómanna (26 millj. kr. 1988, 28 millj. kr. árið 1989). Þessi framlög nema um 3% af iðgjaldstekjum og nokkrir aðrir sjóðir greiða álíka mikið nettó til kerfisins í hlutfalli við iðgjaldstekjur. Lífeyrissjóður Dagsbrúnar og Framsóknar fær langhæstar greiðslur í krónutölu úr kerfinu (28 millj. kr. 1988, 31 millj. kr. árið 1989). Af öðrum sjóðum, sem nutu verulegra greiðslna, má nefna Iðju, Akureyri, og Lífeyrissjóð verksmiðjufólks. Nettógreiðslur til þessara þriggja sjóða svöruðu til 8–10% af iðgjaldstekjum þeirra á árinu. Nokkrir sjóðir nutu svo greiðslna á bilinu 3–5% af iðgjaldstekjum.
Skýringin á mismiklum kostnaði lífeyrissjóða af greiðslu uppbótar (verðtryggingar) á lífeyri er sú að aldursskipting sjóðfélaga er mjög mismunandi í einstökum sjóðum. Þetta er og ástæða þess að samkomulag varð milli samtaka launamanna og atvinnurekenda sem standa að lífeyrissjóðum verklýðsfélaganna um að kostnaðurinn af greiðslu uppbótar skyldi að hluta borinn sameiginlega af sjóðunum. Þótti sanngjarnt að þeir sjóðir, sem höfðu hagstæðasta aldursskiptingu, léttu þannig undir með hinum sem höfðu hæst hlutfall aldraðra félaga. Með þessu móti hefur kostnaðinum af þessum eftirlaunum verið jafnað niður á kynslóðirnar.
Atvinnuleysistryggingasjóður greiðir þriðjung af heildarkostnaði af lífeyrisgreiðslum samkvæmt lögunum. Hér vegur þyngst greiðsla 3 / 4 hluta grunnlífeyris skv. I. kafla laganna, og hefur sjóðurinn borið þessi útgjöld allt frá árinu 1970 er lögin voru fyrst sett. Við þetta var svo aukið verulega á árinu 1980 þegar sjóðnum var gert að greiða þriggja stiga uppbót á eftirlaun lífeyrisþega skv. I. kafla laganna. Þátttaka Atvinnuleysistryggingasjóðs í greiðslum lífeyris er ekki meðal upphaflegra hlutverka hans. Þessi ráðstöfun á fjármunum hans hefur þó þótt réttlætanleg. Sjóðurinn er myndaður af iðgjöldum sem eru í reynd hluti launagreiðslna; lífeyrisgreiðslurnar falla að þeim megintilgangi sjóðsins að tryggja launamönnum framfærslueyri ef atvinna bregst. Þá skiptir og máli að atvinnuástand hefur lengst af verið gott og því hafa talsverðar eignir myndast í sjóðnum. Á hinn bóginn eru eftirlaunagreiðslurnar veruleg byrði fyrir sjóðinn eins og sést af því að á árinu 1988 varði Atvinnuleysistryggingasjóður 44% af iðgjaldstekjum sínum til lífeyrisgreiðslna.
(Töflur ekki til tölvutækar.)
Framreikningur á fjölda lífeyrisþega.
Þar sem eftirlaunagreiðslur samkvæmt lögum um eftirlaun aldraðra miðast við þá sem eru fæddir 1914 og fyrr og taka lífeyris hefst við sjötugt hafi menn látið af störfum, en annars við 75 ára aldur, er ljóst að fjöldi ellilífeyrisþega, sem fær greiðslur samkvæmt lögunum, er nú í hámarki. Afar fáir bætast í hópinn og eðli málsins samkvæmt fækkar ört í honum á næstu árum. Framreikningur á fjölda ellilífeyrisþega sýnir þetta glöggt. Þessi framreikningur er gerður á Hagstofu Íslands og er miðaður við fjöldann um sl. áramót, svo og við bestu vitneskju um dánarlíkur eftir aldri og kyni. Fjöldi makalífeyrisþega hefur á sama hátt verið reiknaður fram. Sá framreikningur er þó óvissari þar sem nýir lífeyrisþegar munu bætast í þennan hóp á næstu árum. Reynt hefur verið að taka tillit til þessa með því að áætla hversu margir ellilífeyrisþegar, sem falla frá, láta eftir sig maka sem eiga rétt til makalífeyris. Helstu niðurstöður þessara framreikninga eru sýndar í meðfylgjandi töflum. Við athugun þeirra er rétt að hafa í huga að ætla má að tölur um makalífeyrisþega séu hér fremur ofmetnar en vanmetnar.
Á grundvelli framreiknings á fjölda lífeyrisþega má reikna fram kostnað af lífeyrisgreiðslum. Hér er þá miðað við að eftirlaunin haldist óbreytt samkvæmt lögunum. Jafnframt er miðað við meðalstig lífeyrisþega eftir kynjum eins og þau voru hjá hverjum hópi við upphaf þessa árs.
(Töflur ekki til tölvutækar.)
Tillögur þessa frumvarps.
Sem fyrr segir er í þessu frumvarpi gert ráð fyrir að öll réttindaákvæði laganna verði framlengd óbreytt í tvö ár, en nokkur breyting verði gerð á kostnaðarskiptingu milli einstakra lífeyrissjóða á greiðslu verðtryggingar eftirlauna skv. I. kafla og milli lífeyrissjóða og hins opinbera á greiðslu eftirlauna skv. II. kafla. Því er ekki ástæða til að skýra þær tillögur sem lúta að framlengingu réttindanna, en þær koma fram í 1., 2. og 3. gr. frumvarpsins. Hins vegar verður hér gerð grein fyrir tillögum um greiðslu kostnaðar í 4. gr. hvað snertir verðtryggingu eftirlauna skv. I. kafla og í 5. gr. hvað snertir greiðslur eftirlauna skv. II. kafla. Í þessum síðastnefndu tveimur greinum er lagt til að það hlutfall af iðgjaldstekjum, sem lífeyrissjóðir leggja fram til greiðslu eftirlauna, lækki úr 3% eins og það er nú, í 2% árið 1990 og 1% árið 1991. Helstu ástæður fyrir þessari tillögu eru eftirfarandi:
1. Nauðsynlegt þykir að allir sjóðir leggi fram sama hlutfall af iðgjaldstekjum sínum þannig að þeir sitji allir við sama borð í þessu efni og ekki sé gerður greinarmunur á þeim sjóðum sem leggja fram fé skv. 24. gr. laganna og hinum sem skyldaðir eru til þátttöku skv. 25. gr. laganna.
2. Eftir ákvæðum gildandi laga áttu greiðslur samkvæmt þeim að falla niður í lok ársins 1989. Með lækkun iðgjaldshlufallsins úr 3% í 2% og síðan 1% verður framlenging laganna mun léttbærari fyrir þá sjóði sem greiða meira til kerfisins en þeir fá úr því en falist hefði í óbreyttri skyldu þeirra til framlags af iðgjaldstekjum. Jafnframt er talið heppilegra að dregið sé í áföngum á tveimur árum, fremur en snögglega, úr greiðslum til þeirra sjóða sem nú njóta greiðslna úr kerfinu umfram eigið framlag til þess, enda dregur úr lífeyrisgreiðslum vegna fækkunar ellilífeyrisþega á þessum tíma.
3. Það hlutfall iðgjaldstekna, 3%, sem samkomulagssjóðirnir svonefndu leggja nú fram til greiðslu verðtryggingar eftirlauna skv. I. kafla, er nú orðið miklum mun hærra en upphaflega var stefnt að. Þannig var gert ráð fyrir að hið sameiginlega framlag lífeyrissjóða dygði fyrir greiðslu 50–60% af útgjöldum vegna verðtryggingarinnar og svo hefur verið lengst af. Þetta hlutfall fór hins vegar í 78% árið 1988, verður yfir 90% árið 1989 og færi að óbreyttu í 100% árið 1990. Lækkun iðgjaldshlutfallsins, sem hér er gert ráð fyrir, hefði í för með sér að iðgjaldsframlag samkomulagssjóða dygði að líkindum fyrir greiðslu u.þ.b. 65% af kostnaði af verðtryggingu skv. I. kafla árið 1990 og um 35% af kostnaðinum árið 1991.
Ýmsar ástæður eru fyrir því að hið sameiginlega framlag hefur farið vaxandi sem hlutfall af kostnaði af greiðslu verðtryggingar eftirlaunanna skv. I. kafla. Í fyrsta lagi ræðst hlutfallið að nokkru af þeim mun sem er á launum á hverjum tíma og því fimm ára meðaltali sem grunnlífeyrir er miðaður við. Dragi úr þeim mun lækkar hlutdeild verðtryggingarinnar í eftirlaunum en hlutdeild grunnlífeyris eykst. Þetta gerist ef dregur úr verðbólgu og þar með hækkun peningalauna frá því sem áður var. Í öðru lagi hefur iðgjaldsstofn lífeyrissjóða verið víkkaður í áföngum undanfarin þrjú ár frá því að miðast við dagvinnulaun í það að miðast við heildarlaun. Sú breyting kemur að fullu til framkvæmda 1. jan. 1990 og hefur hún valdið umtalsverðri aukningu iðgjaldstekna umfram launabreytingar. Í þriðja lagi hafa iðgjaldstekjur aukist umfram launabreytingar vegna fjölgunar greiðenda.
Greiðslur þeirra lífeyrissjóða, sem skylt er að leggja fram hluta iðgjaldstekna sinna til greiðslu eftirlauna skv. II. kafla laganna, stóðu undir u.þ.b. 64% af þeim eftirlaunum (að meðtalinni greiðslu uppbótar á eftirlaun aldraðra bænda) árið 1988, en það hlutfall verður að líkindum u.þ.b. 70% árið 1989. Að óbreyttu hækkar það enn frekar næstu tvö árin eða að líkindum í um 75% 1990 og 80% 1991 þar sem iðgjöld sjóðanna fara vaxandi en greiðslur eftirlauna minnkandi. Miðað við kauplag ársins 1989 er áætlað að það felist í tillögum þessa frumvarps að kostnaður ríkissjóðs af eftirlaunum skv. II. kafla aukist úr 18 millj. kr. í 28. millj. kr., en kostnaður Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga og Atvinnuleysistryggingasjóðs hvors um sig aukist úr 14 millj. kr. í 21 millj. kr. Í þessu sambandi má benda á að verði lögin ekki framlengd væri óhjákvæmilegt að hið opinbera tæki á sig allan kostnað af þeim eftirlaunum sem nú eru greidd skv. II. kafla laganna.
Að öðru leyti þarfnast frumvarp þetta ekki sérstakra skýringa.