Ferill 90. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
1989. – 1059 ár frá stofnun Alþingis.
112. löggjafarþing. – 90 . mál.
Nd.
269. Frumvarp til laga
um breyting á lögum nr. 72/1982, um námslán og námsstyrki.
(Eftir 2. umr. í Nd., 8. des.)
1. gr.
3. mgr. 4. gr. orðist svo:Stjórnin skal skipuð til tveggja ára í senn. Skipunartími fulltrúa menntamálaráðherra og fjármálaráðherra skal þó takmarkaður við embættistíma þeirra ráðherra sem skipuðu þá eða tilnefndu sitji þeir skemur.
2. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi og skal stjórn skv. 1. gr. skipuð við gildistöku laganna.