Ferill 1. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1989. – 1059 ár frá stofnun Alþingis.
112. löggjafarþing. – 1 . mál.


Sþ.

280. Nefndarálit



um frv. til fjárlaga fyrir árið 1990.

Frá minni hl. fjárveitinganefndar.



    Ríkisstjórn Steingríms Hermannssonar hefur nú setið að völdum í fjórtán mánuði. Þótt breyting yrði á ríkisstjórninni í september sl. er varla hægt að segja að hún væri efnisleg. Á hinn bóginn varð sú formbreyting að Borgaraflokkurinn, sem stutt hafði ríkisstjórnina að meira eða minna leyti frá upphafi, gekk formlega til liðs við hana og fékk fyrir tvo ráðherrastóla, annan a.m.k. enn sem komið er, aðeins að nafninu til og án verkefna.
    Þegar ríkisstjórnin var mynduð lýsti hún yfir því að hún ætlaði sér að leysa bráðan efnahagsvanda þjóðarinnar, koma atvinnuvegunum á réttan kjöl og styrkja stöðu landsbyggðarinnar. Enn fremur að treysta velferðarkerfið og verja hagsmuni láglaunafólks.
    Í þá fjórtán mánuði, sem liðnir eru síðan þessar yfirlýsingar voru gefnar, hefur þjóðin orðið vitni að samfelldri hrakfallasögu ríkisstjórnarinnar. Fálmkenndar smáskammtalækningar og hið þunglamalega millifærslukerfi hafa ekki náð að taka fyrir rætur vandans. Afleiðingarnar hafa m.a. orðið háskalegur halli á viðskiptum við útlönd og vaxandi skuldasöfnun, ásamt stórhalla á ríkissjóði, þrátt fyrir gífurlega skattheimtu. Enn fremur hallarekstur atvinnuvega og fjöldagjaldþrot fyrirtækja ásamt minnkandi kaupmætti almennings, alvarlegu atvinnuleysi og þrengingum í rekstri heimilanna. Landsbyggðin á í vök að verjast og til eru byggðarlög sem eru í hættu stödd vegna þrúgandi skuldabyrðar fyrirtækja og sveitarfélaga.
    Hér á eftir eru dregin saman nokkur þeirra atriða, sem að framan greinir, með tilvitnunum í opinber gögn, einkum þjóðhagsáætlun ríkisstjórnarinnar.

1.     Erlendar skuldir stórhækka á þessu ári eða úr 41,3% af landsframleiðslu 1988 í rúmlega 50% 1989.
2.     Greiðslubyrði af erlendum lánum hækkar úr 16,6% af útflutningstekjum 1988 í 19% 1989.
3.     Halli á viðskiptum við útlönd fer vaxandi og því er spáð að hann verði 9,9 milljarðar á næsta ári og eru þá ekki teknar til greina alvarlegar horfur í loðnuveiðum. Þessi halli á einu ári samsvarar 200 þús. kr. á hverja fimm manna fjölskyldu í landinu.
4.     Halli á ríkissjóði stefnir í 5–6 milljarða kr. á þessu ári og varlega áætlað í 6–8 milljarða kr. á næsta ári.
5.     Spáð er yfir 2000 gjaldþrotum í Reykjavík á þessu ári. Ekki liggja fyrir tölur eða spár um landið í heild, en staðan er geigvænleg.
6.     Talið er að kaupmáttur ráðstöfunartekna verði að meðaltali 8% lægri en 1988 og að hann lækki enn um 5% á næsta ári. Kaupmáttur tryggingabóta frá Tryggingastofnun ríkisins er talinn hafa lækkað á þessu ári um 4–9% eftir tegundum trygginga.
7.     Atvinnuleysi var þrisvar sinnum meira fyrstu átta mánuði þessa árs en á sama tíma í fyrra og gert er ráð fyrir að allt að 6000 manns gangi atvinnulausir í upphafi næsta árs eða meira en einn og hálfur árgangur af þeim hluta þjóðarinnar sem er á besta aldri.
8.     Skattheimta til ríkisins er nú meiri en nokkru sinni fyrr á sama tíma og laun fólksins fara lækkandi að raungildi og fjöldi fyrirtækja riðar til falls.
9.     Verðbólga hefur á þessu ári hækkað um 25% og raunvextir útlána í bankakerfinu eru að meðaltali tvöfalt hærri en 1987 samkvæmt yfirliti Þjóðhagsstofnunar.
10.     Eigið fé heilla atvinnugreina er á þrotum eða þrotið. Eftir ítrekaðar gengisfellingar ríkisstjórnarinnar er fiskvinnslan, sem rekin hefur verið með háskalegum halla síðustu misserin, nú talin réttu megin við strikið að meðaltali, en á sama tíma er bátaflotinn rekinn með ískyggilegum halla og sömu sögu er víðast að segja um þann hluta togaraflotans sem aflar fyrir frystihúsin.
    Eftir framanskráða lýsingu, sem öll er byggð á gögnum sem komið hafa frá ríkisstjórninni sjálfri, vekur það furðu að forustumenn ríkisstjórnarinnar telja að nú sé hinu ákjósanlega jafnvægi náð. Allt sé í besta lagi hjá heimilunum í landinu, atvinnuvegunum, ríkissjóði og þjóðarbúinu í heild. Ríkisstjórnin hafi skapað þessi eftirsóknarverðu skilyrði fyrir það sem fjármálaráðherra kallar í umræðum á Alþingi 23. okt. sl. „ … nýjan grundvöll að varanlegri umsköpun í íslensku efnahagslífi. Nýjan grundvöll í sjávarútvegsmálum. Nýjan grundvöll í landbúnaðarmálum. Nýjan grundvöll í byggðamálum. Nýjan grundvöll í ríkisfjármálum. Nýjan grundvöll í velferðarkerfinu og tekjukerfi ríkisins. Nýjan grundvöll í samskiptum Íslands við umheiminn ...“
    Þeir sem þannig tala þekkja ekki raunveruleikann eða kjósa að snúa staðreyndunum við með blekkingum. Með hverri slíkri ræðu fjarlægist ríkisstjórnin fólkið í landinu og glatar trausti þeirra fáu sem enn binda við hana trúss sitt. Glansmyndir ríkisstjórnarinnar duga skammt þegar fyrirtækin verða gjaldþrota og atvinnuleysið tekur við.

Innbyggt samhengi“.


    Fjármálaráðherra og ríkisstjórnin telja að stakkaskipti hafi orðið í meðferð ríkisfjármála í hennar tíð. Hver tímamótin eiga að hafa tekið við af öðrum. Skömmu áður en fjármálaráðherra settist á sinn valdastól hafði fyrirrennari hans lýst því að halli ríkissjóðs á árinu 1988 yrði 693 millj. kr. Hvort sem þetta var sagt af vanþekkingu eða gegn betri vitund varð fljótt breyting á eftir að núverandi fjármálaráðherra tók við og niðurstaðan varð 7,2 milljarða króna halli. Þá áttu að verða tímamót. Frumburður fjármálaráðherrans, fjárlagafrumvarpið fyrir þetta ár, var lagt fram með tekjuafgangi og afgreitt í samræmi við það. Lýst var yfir því að nú væri lokið hallarekstri og skuldasöfnun.
    Hörð gagnrýni okkar stjórnarandstæðinga á skekkjurnar í þeirri fjárlagaafgreiðslu var að engu höfð. Öll atriði þeirrar gagnrýni hafa þó verið staðfest af dómi reynslunnar. Þegar við lýstum því hvernig forsendur fjárlaganna væru í lausu lofti og úr samhengi við raunveruleikann svaraði fjármálaráðherrann því til að það skipti litlu. Í fjárlögunum væri nefnilega
" innbyggt samhengi“ sem þýddi að ef útgjöldin hækkuðu mundu tekjur vaxa sjálfkrafa þannig að jöfnuður héldist. Niðurstaðan af þessari snilld fjármálaráðherrans og tímamótatökum hans á fjármálum ríkisins á þessu ári liggur ekki endanlega fyrir.
    Spár standa þó til þess að tekjur ríkissjóðs á þessu ári fari 1.700 millj. kr. fram úr fjárlögum, en útgjöldin 8.100 millj. kr., en sú tala hækkar verulega með afgreiðslu fjáraukalaga. Kenningin um „innbyggt samhengi“ stenst því ekki betur en þetta.
    Horfur í fjármálum ríkisins á þessu ári eru í órafjarlægð frá yfirlýsingum fjármálaráðherra í upphafi ársins. Þetta er skattaárið mikla. Það er seilst dýpra í vasa einstaklinga og fyrirtækja eftir peningum til ríkissjóðs en nokkru sinni fyrr. Stjórn ríkisfjármála hefur mistekist og yfirlýsingar fjármálaráðherra um tímamót, jafnvægi og „innbyggt samhengi“ hafa reynst markleysa.

Fjárlagafrumvarpið.


    Þegar fjármálaráðherra fylgdi úr hlaði fjárlagafrumvarpinu fyrir árið 1990 var enn lýst yfir tímamótum. Frumvarpið var kynnt sem hornsteinn nýrrar efnahagsstefnu, það var talið traustur rammi um efnahagslífið sem allir aðilar í þjóðfélaginu ættu að laga sig að. Lögð var sérstök áhersla á hversu frumvarpið væri traust og vel unnið.
    Fljótt kom í ljós að lítið hald var í þessum yfirlýsingum. Fulltrúar minni hl. í fjárveitinganefnd kynntu þegar við 1. umr. megineinkenni og vankanta frumvarpsins. Við 2. umr. liggja þeir enn ljósar fyrir. Það sem við blasir er m.a. þetta:
1.     Frumvarpið er lagt fram með nálega þriggja milljarða króna halla sem sýnir uppgjöf ríkisstjórnarinnar við að ná jafnvægi í fjármálum ríkisins. Stærri vanda er þó leynt með feluleik í frumvarpinu.
2.     Frumvarpið boðar áform ríkisstjórnarinnar um að þyngja til muna skattbyrði almennings bæði með tekjuskatti einstaklinga og veltusköttum. Tekjuhliðin er þó næsta óábyggileg vegna margvíslegra breytinga á tekjuöflunarkerfi ríkisins sem óvíst er hvort allar nást fram.
3.     Eins og frumvarpið lítur út við 2. umr. felur það í sér verulega þenslu í ríkiskerfinu á næsta ári með á þriðja hundrað nýjum starfsmönnum og aukningu rekstrarútgjalda um allt að 2% að raungildi. Í heild er því spáð að samneysla vaxi á næsta ári um 1% meðan þjóðartekjurnar dragist saman um 1.4%.
4.     Framlög til fjárfestingar, viðhalds og ýmissa tilfærslna eru á hinn bóginn skorin harkalega niður svo að hafa mun veruleg áhrif á atvinnumöguleika fólks á næsta ári.
5.     Frumvarpið er hroðvirknislegt. Engar líkur eru til að forsendur þess, sem eru afar óljósar, fái staðist. Frumvarpið er löðrandi í vísvitandi eða handahófskenndum vanáætlunum sem ekki styðjast við fyrirætlanir um að draga úr rekstri. Meiri hlutinn af hækkunartillögum nefndarinnar við þessa umræðu er fluttur til þess að stoppa í þau göt.
6.     Nokkur stórmál, sem geta skipt a.m.k. þremur milljörðum króna í útgjöldum ríkissjóðs á næsta ári, eru ekki afgreidd við þessa umræðu heldur bíða til 3. umr.
7.     Við þessa umræðu er því alger óvissa um lokaniðurstöðu fjárlagafrumvarpsins, en ljóst er að það verður afgreitt með hrikalegum halla sem vafalaust verður þó dulinn að hluta.
8.     Þetta frumvarp verður því seint talið með réttu „hornsteinn nýrrar efnahagsstefnu“ eða grundvöllur að nýju jafnvægi í efnahagsmálum. Þess í stað er það ein allsherjaryfirlýsing um ráðleysi og uppgjöf ríkisstjórnar sem rúin er trausti þjóðarinnar.

Áföll þjóðarbúsins.


    Ríkisstjórnin heldur því fast fram í málflutningi sínum að þjóðarbúið hafi orðið fyrir alvarlegum ytri áföllum sem fjármálaráðherra kallar ýmist hin mestu í 40 ár eða hin þriðju mestu í sögu lýðveldisins. Skýringar á uppgjöf ríkisstjórnarinnar í ríkisfjármálum eru síðan sóttar í slíkar fullyrðingar.
    Samkvæmt upplýsingum í þjóðhagsáætlun ríkisstjórnarinnar sést að þessar kenningar eru í meira lagi hæpnar. Þar kemur fram að aðeins tvisvar sinnum frá 1980 hafa þjóðartekjur á mann verið hærri en á þessu ári en það var á árunum 1987 og 1988. Samkvæmt spá um næsta ár verða þjóðartekjur á mann þá hærri en öll árin 1980–1985. Þetta er sýnt í töflu á fylgiskjali með frumvarpinu.
    Þetta sannar að tekjur þjóðarbúsins á þessu ári og raunar líka á næsta ári samkvæmt spá eru verulega yfir meðaltali 11 ára frá 1980-1990. Allt tal um verstu áföll í 40 ár eru því fjarri veruleikanum og skýringar á þeirri upplausn, sem ríkir í fjármálum ríkisins, er ekki þar að finna nema að nokkru leyti, heldur hjá ríkisstjórninni sjálfri. Þetta má ekki gleymast þó að samdráttur hafi orðið í efnahagskerfinu frá því sem var á veltiárunum 1987 og 1988. En ríkisstjórnin hefur ekki brugðist við þeim samdrætti á þann hátt að draga saman umfang ríkisrekstrarins heldur þvert á móti með aukningu.

Báknið.


    Þrátt fyrir að nokkur samdráttur hafi orðið í efnahagskerfinu á síðustu tveimur árum hafa rekstrarumsvif ríkisins haldið áfram að vaxa af fullum þunga. Á þessu sviði ætlar ríkisstjórnin að auka hraðann á næsta ári, m.a. með því að stofna nýtt ráðuneyti, umhverfismálaráðuneyti. Áður hafði brauðfótum ríkisstjórnarinnar verið fjölgað og var formaður Borgaraflokksins gerður að ráðherra að nafninu til þrátt fyrir það að hann hefði engin raunveruleg verkefni.
    Samkvæmt fjárlagafrumvarpinu er gert ráð fyrir að verðlag hækki um 16% en rekstrargjöldin um 24,7% og launaútgjöld um 25,2%. Þetta þýðir 1,8% aukningu að raungildi í útþenslu rekstrargjalda ríkisins miðað við frumvarpið en er komið yfir 2% miðað við hækkunartillögur nefndarinnar við þessa umræðu. Mest er hækkunin að sjálfsögðu hjá fjármálaráðuneytinu eða 51% og þar næst hjá æðstu stjórn ríkisins eða 35,7%.
    Meðan ríkisstjórnin sker niður við trog framlög til nauðsynlegra framkvæmda, svo sem til skólamála, vegagerðar, atvinnuvega og ýmissa samfélagslegra þarfa, skal eyðslan taka stökkbreytingum hjá ríkisstjórninni sjálfri og þó einkum í ráðuneyti fjármálaráðherrans. Meðan svona er haldið á málum er ekki von að vel fari.
    Við, sem að þessu nefndaráliti stöndum, teljum stefnu ríkisstjórnarinnar ranga. „Hvað höfðingjarnir hafast að hinir ætla sér leyfist það.“ Þegar fjármálaráðherra og ríkisstjórn auka í sífellu kostnaðinn, eyðslu og sóun við sín eigin embætti og aðalskrifstofur er ekki mikils árangurs að vænta annars staðar. Þá skortir ráðherra alla burði til að fást við ríkiskerfið í heild. Árangurinn verður upplausn í fjármálum ríkisins eins og nú blasir við. Til þess að sýna í hvaða ófæru stefnir í þessum málum í heild er ástæða til að vísa til töflu 6 í Þjóðhagsáætlun ríkisstjórnarinnar, en hún er birt sem fylgiskjal með þessu nefndaráliti. Þar sést að því er spáð að frá 1980–1990 vaxi þjóðarframleiðslan um 4% og þjóðartekjurnar um 8% en á sama tíma vaxi samneyslan um 37%. Verði framhald á þessari þróun sem ríkisstjórnin skellir skollaeyrum við erum við á leið út í efnahagslegt kviksyndi.
    Fulltrúar minni hl. telja óhjákvæmilegt að bregðast við þessum horfum á tvennan hátt. Í fyrsta lagi með því að skapa atvinnulífinu þau skilyrði að hagvöxtur geti tekið við af hnignun og samdrætti. Í öðru lagi að stöðva útþenslu ríkiskerfisins og ná jafnframt raunverulegum sparnaði. Þar verður að ganga á undan í aðalskrifstofum ráðherranna sjálfra og hjá æðstu stjórn ríkisins. Það er hins vegar ljóst að núverandi ríkisstjórn hefur hvorki vilja né getu til að taka þannig á málum.
    Til þess að sýna þær breytingar, sem orðið hafa á kostnaði og mannafla hjá aðalskrifstofum ráðuneytanna frá 1982-1988, eru hér birtar þrjár töflur úr skýrslu Ríkisendurskoðunar um þetta efni frá því í maí sl. Töflur A, B og C skýra sig sjálfar, en svo sem áður hefur komið fram hefur kostnaður við aðalskrifstofur ráðuneytanna vaxið mjög á þessu ári og svo verður einnig á því næsta, ekki síst hjá fjármálaráðherra.


TAFLA A Í PRENTSMIÐJU






TAFLA B Í PRENTMSIÐJU





TAFLA C Í PRENTSMIÐJU





    Tafla D sýnir útgjöld A-hluta ríkissjóðs á greiðslugrunni sem hlutfall af vergri landsframleiðslu á árabilinu 1984 til 1989 og áætluðum útgjöldum A-hluta ríkissjóðs við 2. umr. fjárlagafrumvarps fyrir árið 1990. Í yfirlitinu kemur fram að aukning útgjalda ríkissjóðs miðað við vísitölu samneyslu er tæp 21%. Þá kemur enn fremur fram að á nefndu árabili hefur stöðugildum fjölgað um 3300 hjá ríkinu.


TAFLA D Í PRENTSMIÐJU





Skattamet á samdráttartímum.


    Ríkisstjórnin hefur haft hugann við það umfram annað að finna nýja og nýja skatta til þess að leggja á þjóðina. Á þann hátt hefur hún sagst stefna að því að ná endum saman í ríkisbúskapnum. Augljóst er þó að á meðan atvinnuvegirnir geta ekki losnað úr fjötrum hallarekstrar og gjaldþrota og launafólk býr við skertan hlut og öryggisleysi er þessi stefna dæmd til að mistakast.
    Þegar ríkisstjórnin hvarf frá fyrirætlun um 26% virðisaukaskatt þannig að prósentan skyldi vera 24,5 jókst hallinn á frumvarpinu sem nam 1.900 millj. kr. Við því var brugðist með því að leggja fram frumvarp um breytingu á tekjuskatti og eignarskatti sem á að skila ríkisstjórninni 2.800 millj. kr. Helmingi þess skal verja til aukinna barnabóta og hækkaðs persónuafsláttar.
    Þeim 500 millj. kr., sem þá vantar til að fylla gatið á tekjuhliðinni, á svo að ná með bifreiðaskatti, 350 millj. kr., með 250 millj. kr. skatti á orkufyrirtæki, og eru þá 100 millj. kr. eftir til að mæta gjöldum.
    Gerðar eru í fjárlagafrumvarpinu mjög harðar kröfur til stofnana á vegum ríkisins um auknar sértekjur og eru áætlanir um starfsemi þeirra byggðar á því að þær kröfur nái að ganga fram. Þá er í fjárlagafrumvarpinu tekin upp sú nýstárlega aðferð við skattheimtu að láta nokkrar stofnanir í A-hluta ríkissjóðs
innheimta meira fyrir þjónustu sína en þær þurfa á að halda. Afganginum á svo að skila í ríkissjóð eða samtals 58,8 millj. kr. Þessar stofnanir eru: húsameistari ríkisins, Brunamálastofnun, Vinnueftirlitið, lyfjamál og framkvæmdadeild Innkaupastofnunar ríkisins. Sömu sögu er að segja af nokkrum stofnunum B-hluta, t.d. á Póstur og sími að innheimta 350 millj. kr. í póstburðar- og símgjöldum beint til ríkisins.
    Minni hl. lítur svo á að við upptöku nýs skattkerfis sé rétt að hafa fyrirvara á um að áætlun um tekjur af því standist. Upplýst hefur verið að sveitarfélög muni greiða 500–800 millj. kr. hærri virðisaukaskatt en þau greiddu áður í söluskatt. Virðist þá langt til uppurinn sá ávinningur sem þau höfðu af verkaskiptingunni við ríkið. Einnig vill minni hl. benda á að virðisaukaskattur leggst á fleiri þætti í sölu og þjónustu en söluskattur gerði og hlýtur því að hækka verðlagið. Á tímum rýrnandi kaupmáttar bitnar þetta hart á fólki og hlýtur að leiða til minnkandi veltu sem rýrir gjaldstofninn. Minni hl. hefur því efasemdir um að þessi skattur skili þeim tekjum sem ætlað er.
    Í nýju frumvarpi til laga um tekjuskatt er gert ráð fyrir að skatturinn hækki á næsta ári um 2% þannig að staðgreiðsluprósentan verði 39,74%. Frádráttarliðir eiga að hækka um 7,36% frá því að þeir hækkuðu síðast en á sama tíma hefur lánskjaravísitala hækkað um 9,98%.
    Í útskýringum fjármálaráðuneytisins um niðurstöður þessa dæmis er greinilega farið með blekkingar. Byggt er á röngum forsendum þar sem borinn er saman persónuafsláttur á tímabilum sem ekki eru sambærileg. Hið rétta er að maður, sem hafði 50 þús. kr. í laun í desember 1988, greiðir 73,5% hærri skatt í janúar 1990 en í janúar 1988 en laun hans hafa hækkað um 29,7%. Það er ekki rétt að þessi skattbreyting komi láglaunafólki til góða. Þvert á móti leggst hún þyngra á það og barnabótaauki gagnast ekki einhleypingum. Skattar á almenning munu þyngjast verulega og fyrirhuguð breyting veldur ekki tekjujöfnun.
    Ítrekað skal að óbeinu skattarnir, sem felast í hækkun á gjaldskrám fyrirtækja, og virðisaukaskattur, sem leggst á þætti sem ekki voru gjaldskyldir áður, hækka verðlag og þrengja kost almennings. Aukin skattlagning á sveitarfélög leiðir til minnkandi framkvæmda og lakari þjónustu.
    Þessir þættir draga úr veltu í sölu og þjónustu. Minnkandi kaupmáttur verkar á sama hátt.
    Því hefur minni hl. alvarlegar efasemdir um að aðgerðir ríkisstjórnarinnar í skattamálum skili þeim tekjum sem þeim er ætlað. Skattpíning á samdráttartímum hefur þær óhjákvæmilegu aukaverkanir að magna kreppuna.

Tekjur ríkissjóðs.


    Meðfylgjandi yfirlit sýnir hlutfall innheimtra tekna ríkissjóðs sem hlutfall af vergri landsframleiðslu á árunum 1985 til 1990.
    Við útreikning á árinu 1989 er stuðst við áætlun fjármálaráðuneytisins um innheimtar tekjur, en tekjur ársins 1990 taka mið af frumvarpi að meðtöldum eftirfarandi breytingum:

    1. Lækkun virðisaukaskatts ..........         –1.900 m.kr.
    2. Hækkun tekjuskatts 2.800
     endurgreiðslur –1.400 .........         1.400 m.kr.
    3. Mengunarskattur á bifreiðar ......         350 m.kr.
    4. Skattur á orkufyrirtæki ..........         250 m.kr.
              —–
             100 m.kr.

    Skattur á orkufyrirtæki er talinn með tekjusköttum.
    Þegar yfirlitið er skoðað kemur í ljós að á árinu 1988 urðu verulegar breytingar til hækkunar á tekjum ríkissjóðs, sérstaklega af tekjuskatti og söluskatti.
    Í heild hafa innheimtar tekjur ríkissjóðs, reiknaðar sem hlutfall af vergri landsframleiðslu, hækkað úr 23,6% árið 1987 í 26,6% árið 1989 (áætlað). Miðað við áætlaða verga landsframleiðslu á árinu 1989 þýðir þetta tekjuauka fyrir ríkissjóð sem nemur 8,8 milljörðum króna.
    Gróflega skiptist þessi fjárhæð þannig:

    Tekjuskattur ..........         4,1 m.kr.
    Söluskattur ...........         5,0 m.kr.
    Hagnaður ÁTVR .........         1,2 m.kr.
    Bifreiðagjöld .........         0,6 m.kr.
    Eignarskattur .........         0,6 m.kr.
    Aðrar tekjur ..........         1,4 m.kr.
              —-
             12,9 m.kr.
    Tollar og vörugjald         –4,1 m.kr.
              —-
     Alls         8,8 m.kr.

    Þessar tölur endurspegla vel þær miklu kerfisbreytingar sem gerðar voru á tekjuöflunarkerfi ríkissjóðs í árslok 1987.
    Talið er að matarskatturinn hafi aukið tekjur ríkissjóðs um 6,7 milljarða króna á árinu 1988 og áætlað að hann skili ríkissjóði um 8,2 milljörðum króna á árinu 1989. Á móti kemur að niðurgreiðslur hafa aukist verulega og nemur aukningin 1,5 milljörðum króna á árinu 1988 og er áætluð 1,7 milljarðar króna á árinu 1989.


TAFLA E Í PRENTSMIÐJU





Landsbyggðin.


    Við upphaf starfsferils ríkisstjórnar Steingríms Hermannssonar voru gefin mikil fyrirheit um eflingu byggða vítt um land. Sérstök áhersla var lögð á að hjólum atvinnulífsins skyldi komið í gang eins og forsætisráðherra orðaði það. Eftir 14 mánaða feril ríkisstjórnarinnar liggur fyrir að óleystur vandi í sjávarútvegi stefnir afkomu og framtíð heilla byggðarlaga í hreinan voða.
    Þegar frá eru talin áhrif sjávarútvegs og fiskvinnslu á afkomu landsbyggðarinnar eru það málefni samgangna, einkum vegamála og landbúnaðar, sem mestu valda um framtíðarhorfur og afkomu. Fjárlagafrumvarpið sýnir með ótvíræðum hætti stefnu ríkisstjórnarinnar í þessum efnum.
    Við afgreiðslu fjárlaga og vegáætlunar fyrir þetta ár gaf samgönguráðherra skýrar yfirlýsingar um að einungis væri um að ræða tímabundinn niðurskurð á framlögum til vegamála á þessu ári. Með nýrri vegáætlun væri stefnan mörkuð og við hana yrði staðið. Fjárlagafrumvarpið birtir efndirnar. Þar liggja fyrir tillögur um að skerða framlög til vegamála miðað við vegáæltun um rúmlega 1 milljarð króna. Óþarft er að hafa mörg orð um að með slíkum niðurskurði er vegáætlun, sem samþykkt var 20. maí sl., hrunin hvort sem litið er til lengri eða skemmri tíma.
    Á síðastliðnum vetri náðist víðtæk samstaða á Alþingi um ýmsa mikilvæga málaflokka landbúnaðarins. Svo var m.a. um nýja löggjöf um jarðrækt og búfjárrækt. Í tengslum við þá lagasetningu voru gefnar af hálfu ríkisstjórnar og landbúnaðarráðherra ákveðnar yfirlýsingar um uppgjör á vangoldnum greiðslum fyrri ára til landbúnaðar. Skemmst er frá því að segja að ekkert af þessum loforðum hefur enn verið efnt.
    Afgreiðsla þessara mála bíður til 3. umr. í fjárveitinganefnd og hafa þau enn sem komið er tæpast verið rædd á sameiginlegum fundum nefndarinnar. Þau hljóta hins vegar að koma til alvarlegrar athugunar fyrir 3. umr.
    Á margvíslegan hátt er vegið að hagsmunum landsbyggðarinnar í fjárlagafrumvarpinu, yfirleitt með sambærilegum hætti og í fjárlögum þessa árs og sums staðar í ríkara mæli. Þannig á t.d. að taka ákvörðun með fjárlögum um að fella niður starfsemi tveggja tilraunastöðva á Vestfjörðum og Austurlandi án þess að leggja til lagabreytingar á Alþingi.
    Í flestum málaflokkum landsbyggðarinnar gengur ríkisstjórnin í verkum sínum þvert á þær yfirlýsingar sem hún gaf fólkinu í landinu þegar hún var mynduð og þó gefin séu af hennar hálfu loforð á Alþingi stendur þar ekki steinn yfir steini.

Afgreiðsla frumvarpsins.


    Þegar fjárlagafrumvarpið var lagt fram var þegar ljóst að um óvenjulega hrákasmíð var að ræða. Rekstrarliðir voru víðast hvar vanmetnir án þess að ætlast væri til að dregið væri úr starfsemi stofnana. Sértekjur höfðu á hinn bóginn verið hækkaðar úr öllu samhengi við möguleika ýmissa stofnana til að afla tekna. Stórir útgjaldaliðir voru í lausu lofti og enginn stjórnarliða virtist vita eða vita enn hvernig á skuli taka. Frumvarpið allt ber vitni um ráðleysi, feluleik og handahóf.
    Af þessum sökum voru það jafnvel venju fremur margir sem töldu sig þurfa að ná fundi fjárveitinganefndar eða senda henni erindi. Breytingartillögur við 2. umr. eru einnig óvenjulega margar. Þessi fjöldi tillagna byggist á því að svo virðist sem formaður nefndarinnar, Sighvatur Björgvinsson, hafi leitast við að halda á málum með þeim hætti að leiðréttar væru sem flestar augljósar villur frumvarpsins. Þetta er í samræmi við þá stefnu sem fram mun koma í frumvarpi sem væntanlega verður senn flutt á vegum nefndarinnar í heild um fastara skipulag á framkvæmd ríkisfjármála. Til þess að sú skipan verði virk er nauðsynlegt að fjárlög verði raunhæfari en þau hafa oft verið, ekki síst síðustu árin.
    Svo sem oftast áður eru breytingartillögur við 4. gr. frumvarpsins fluttar af nefndinni í heild. Minni hl. tekur þó fram að hann er misjafnlega sáttur við einstakar tillögur nefndarinnar og áskilur sér fullan rétt til að hafa óbundnar hendur um afstöðu til þeirra sem og að flytja eða fylgja breytingartillögum sem fram kunna að koma.
    Til 3. umr. bíða samkvæmt venju tekjuhlið frumvarpsins, svo og 5. og 6. gr. þess. Til viðbótar eru nokkur stórmál sem fela í sér gífurlegan óleystan vanda sem meiri hl. kaus að sópa út af borðinu að sinni og geyma til 3. umr. Ýmis þeirra varða að vísu B-hluta en taka þó eigi að síður framlög af A-hluta ríkissjóðs.
    Meðal þess sem kalla má stórmál í þessum skilningi eru málefni Lánasjóðs íslenskra námsmanna, almannatryggingar, Vegagerð ríkisins, niðurgreiðslur, uppgjör við sveitarfélög vegna laga um nýja verkaskiptingu, vaxtagreiðslur, einnig Háskólinn á Akureyri, Flugmálastjórn, þ.e. launaliður, Þjóðleikhúsið og margt fleira.
    Auðvelt er að áætla að sá vandi, sem óleystur er vegna framantaldra liða, sé eigi minni en fullir 3 milljarðar króna og er þá tekið tillit til þess að þær úrbætur, sem kunna að verða gerðar varðandi Vegagerð ríkisins, greiðast af sérmerktum tekjustofnun. Hér verður ekkert um það sagt að hve miklu leyti þessi vandi verður leystur með framlögum á fjárlögum og að hve miklu leyti hann verður geymdur uppi í fjármálaráðuneyti þar til hann brýst fram í útgjöldum ríkissjóðs þegar líður á árið. Ljóst er þó að fjárlagadæmið allt er í uppnámi og við blasir geigvænlegur halli.
    Þær tillögur nefndarinnar, sem fram eru komnar, auka útgjöld ríkissjóðs á næsta ári um 1180 millj. kr. Auðvelt er því að geta sér til um að finni ríkisstjórnin ekki uppsprettulind fulla af fjármunum verði fjárlög afgreidd með allt að 6 milljarða króna halla og raunverulegur halli verði drjúgum meiri.
    Þessi hrikalega staða sýnir skipbrot ríkisstjórnarinnar í fjármálum ríkisins. Þegar til kastanna kom reyndist „hornsteinn“ fjármálaráðherra vera úr leir og hinn nýi grundvöllur efnahagslífsins vera kviksyndi. Sjálfbirgingsháttur, ráðleysi og sóun geta verið einkunnarorð þessarar ríkisstjórnar í ríkisfjármálum. Slík fjármálastjórn er þjóðinni hættuleg.

Alþingi, 11. des. 1989.



Pálmi Jónsson,


Egill Jónsson.


Málmfríður Sigurðardóttir.


frsm.


Friðjón Þórðarson.






Fylgiskjal.


Tafla 6. Yfirlit nokkurra þjóðhagsstærða 1980–1990.




TAFLA Í PRENTSMIÐJU.