Ferill 232. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1989. – 1059 ár frá stofnun Alþingis.
112. löggjafarþing. – 232 . mál.


Ed.

307. Frumvarp til laga



um breytingu á lögum nr. 86/1985, um viðskiptabanka.

(Lagt fyrir Alþingi á 112. löggjafarþingi 1989.)



1. gr.

    1. mgr. 50. gr. laganna hljóði svo:
    Samruni hlutafélagsbanka, hvort sem er innbyrðis eða við aðrar innlánsstofnanir, og sameining bankastarfsemi tveggja eða fleiri viðskiptabanka má því aðeins fram fara að fengið sé leyfi ráðherra. Um samruna hlutafélagsbanka gilda að öðru leyti ákvæði laga um hlutafélög eftir því sem við getur átt. Við gildistöku sameiningar bankastarfsemi tekur hinn sameinaði viðskiptabanki við allri bankastarfsemi, réttindum og skyldum þess viðskiptabanka sem hættir bankastarfsemi. Um sameiningu bankastarfsemi gilda að öðru leyti samningar aðila um það efni.
    Við 2. mgr. 50. gr. bætist svohljóðandi ákvæði: Hliðstæð ákvæði skulu gilda við sameiningu bankastarfsemi sem fram fer án sameiningar þeirra félaga eða stofnana sem að bankarekstrinum hafa staðið.
    3. mgr. 50. gr. hljóði svo:
    Auglýsa skal sameiningu bankastarfsemi viðskiptabanka í Lögbirtingablaði. Í þeirri auglýsingu skal tilkynna upphafsdag gildistíma sameiningarinnar, nafn þeirrar bankastofnunar sem bankareksturinn sameinast í, frest til að gera athugasemdir við yfirfærslu innlánsreikninga til hins sameinaða banka, hugsanlegar breytingar á greiðslustöðum skuldaskjala, ef um þær verður að ræða, yfirfærslu veðtrygginga fyrir útlánum þeirra bankastofnana sem sameinast til hins sameinaða banka, sem og annað það sem kunngera þarf viðskiptavinum sérstaklega.
    Núverandi 3. mgr. 50. gr. verði 4. mgr. sömu greinar.
    5. mgr. hljóði svo:
    Breyting á eignaskráningu í veðmálabókum vegna sameiningar bankastarfsemi eða samruna hlutafélagsbanka er undanþegin stimpilgjöldum.

2. gr.

    Við 1. gr. ákvæða til bráðabirgða í lögunum bætast tvær nýjar málsgreinar:
    Ákvæði síðari málsliðar 2. mgr. 6. gr. gildir þó ekki ef hluthafi er ríkissjóður eða annar íslenskur viðskiptabanki, jafnvel þótt sá banki hafi sameinað bankarekstur sinn rekstri viðkomandi viðskiptabanka og starfi sem eignarhaldsfélag með aðild að sameiginlegum banka. Skal þá atkvæðisréttur þeirra að fullu vera í hlutfalli við hlutafjáreign.
    Viðskiptabanki, sem sameinað hefur bankarekstur sinn rekstri annars viðskiptabanka og á áfram hlut í hinum sameinaða viðskiptabanka, má halda orðinu banki í nafni sínu, enda sé orðinu eignarhaldsfélag bætt framan við nafn félagsins.

3. gr.

    Lög þessi taka gildi 1. jan. 1990.

Athugasemdir við lagafrumvarp þetta.


    Frumvarp þetta er samið í tilefni af samningi dags. 29. júní 1989 um sölu á hlutabréfum ríkissjóðs í Útvegsbanka Íslands hf., en samkvæmt honum sameina kaupendur, sem eru Alþýðubankinn hf., Iðnaðarbanki Íslands hf. og Verslunarbanki Íslands hf., í áföngum bankarekstur sinn rekstri Útvegsbanka Íslands hf., jafnframt því sem samþykkt hefur verið að breyta nafni hans í Íslandsbanka hf. Er forsenda samningsins að samruna bankastarfseminnar verði að fullu lokið fyrir 1. júlí 1990.
    Kaupendur lögðu á það mikla áherslu að hlutafélög þeirra gætu fyrst um sinn starfað sem eignarhaldsfélög í hinum sameinaða banka og haldið atkvæðisrétti á hluthafafundum í hlutfalli við hlutafjáreign sína. Var á það fallist, enda leggja félögin allan bankarekstur sinn til hins nýja fyrirtækis og ljóst er að nokkurn tíma mun taka að koma þeirri breytingu á að hluthafar í félögunum skipti á hlutabréfum sínum í þeim og hlutabréfum í Íslandsbanka hf., eins og stefnt er að. Breytingin er almennt orðuð, en þýðir í raun í því tilviki sem hér um ræðir að Íslandsbanki hf. (áður Útvegsbanki Íslands hf.) tekur við allri bankastarfsemi, réttindum og skyldum þeirra banka sem hætta bankastarfsemi, þ.e. bankastarfsemi, réttindum og skyldum Alþýðubankans hf., Iðnaðarbanka Íslands hf. og Verslunarbanka Íslands hf.
    Þá þykir rétt að sömu ákvæði um atkvæðisrétt gildi ef ríkissjóður er hluthafi í hlutafélagsbanka.

Athugasemdir við einstakar greinar frumvarpsins.


Um 1. gr.


    Í 1. gr. er lagt til að 50. gr. laganna verði breytt og fjallar breytingartillagan við 1. og 2. mgr. um það að sameining bankarekstrar sé hliðstæð samruna viðskiptabanka í heild.
    Breytingartillögu við 3. mgr. er ætlað að tryggja vitneskju viðskiptamanna sameinaðrar bankastarfsemi um þau atriði sem máli skipta fyrir þá í tengslum við sameininguna.
    Ákvæði 5. mgr. eru í samræmi við ákvæði í framangreindum samningi um kaup hlutabréfa ríkissjóðs í Útvegsbanka Íslands og þykir rétt að lögfesta ákvæði þetta til að gilda um hliðstæð tilvik.

Um 2. gr.


    Gert er ráð fyrir því að eignarhaldsfélögin muni fyrst um sinn vera starfandi sem sjálfstæð hlutafélög. Á meðan eignarhaldsfélögin eiga hluta í hinum sameinaða banka enda þótt þau stundi ekki bankastarfsemi þykir rétt að þau haldi atkvæðisrétti sínum á hluthafafundum í hlutfalli við hlutafjáreign sína og enn fremur að þau megi áfram nota orðið „banki“ í nöfnum sínum sama tíma. Réttur þessi er takmarkaður við eignarhaldsfélög samkvæmt framanskráðu og hlutafjáreign þeirra í hinum sameinaða banka.
    Þá er gert ráð fyrir að ríkissjóður geti einnig farið með hlutafjáreign sína í viðskiptabanka í samræmi við hlutafjáreign á sama hátt og gilti í Útvegsbanka Íslands hf.

Um 3. gr.


    Íslandsbanki hf. tekur að fullu til starfa 1. jan. 1990 og er gildistökudagur við það miðaður.