Ferill 179. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1989. – 1059 ár frá stofnun Alþingis.
112. löggjafarþing. – 179 . mál.


Ed.

314. Nefndarálit



um frv. til l. um uppboðsmarkað fyrir sjávarafla.

Frá sjávarútvegsnefnd.



    Nefndin hefur fjallað um frumvarpið. Umsagnir bárust frá útvegsmannafélögum Austfjarða, Norðurlands, Reykjavíkur, Snæfellsness, Suðurnesja og Vestfjarða, Útvegsbændafélagi Vestmannaeyja, verkalýðsfélögunum á Snæfellsnesi og Alþýðusambandi Suðurlands. Til viðræðna voru fengnir Benedikt Valsson frá Farmanna- og fiskimannasambandi Íslands, Óskar Vigfússon frá Sjómannasambandi Íslands, Ágúst Elíasson frá Samtökum fiskvinnslustöðva, Kristján Ragnarsson frá Landssambandi íslenskra útvegsmanna, Karl Steinar Guðnason frá Verkamannasambandi Íslands, Logi Þormóðsson frá Fiskmarkaði Suðurnesja og Brynjólfur Bjarnason frá Granda hf.
    Nefndin leggur til að frumvarpið verði samþykkt óbreytt.

Alþingi, 14. des. 1989.



Stefán Guðmundsson,


form., frsm.


Danfríður Skarphéðinsdóttir,


fundaskr.


Jóhann Einvarðsson.


Halldór Blöndal.


Skúli Alexandersson.


Karvel Pálmason.


Guðmundur H. Garðarsson.