Ferill 180. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
1989. – 1059 ár frá stofnun Alþingis.
112. löggjafarþing. – 180 . mál.
Ed.
316. Nefndarálit
um frv. til l. um viðauka við lög nr. 44 25. maí 1976, um Fiskveiðasjóð Íslands.
Frá minni hl. sjávarútvegsnefndar.
Minni hl. tekur undir nauðsyn þess að efla rannsóknir og þróunarstarf í íslenskum sjávarútvegi eins og er markmiðið með þessu frumvarpi.
Í athugasemdum með frumvarpinu segir m.a. um hlutverk þróunardeildar Fiskveiðasjóðs: „Deildin veiti lán eða styrki til rannsókna og þeirra nýjunga sem orðið gætu til að efla markaðsstöðu íslensks sjávarútvegs.“ Minni hl. vill benda á að ekki er síður nauðsynlegt að efla vöruþróun og fræðslu í íslenskum sjávarútvegi jafnframt því að efla markaðsstöðuna.
Á 110. löggjafarþingi fluttu þingmenn Kvennalistans fjölmargar breytingartillögur við frumvarp til laga um stjórn fiskveiða (181. mál, þskj. 371). Tillögurnar gerðu ráð fyrir að 80% af leyfðum heildarafla yrði skipt milli byggðarlaga eða útgerðarstaða með hliðsjón af lönduðum heildarafla síðustu fimm ára. 20% heildaraflans skyldu renna í sameiginlegan sjóð og verða til sölu, leigu eða sérstakrar ráðstöfunar eftir ákveðnum reglum. Gjald byggðarlaga fyrir kvóta skyldi miðast við ákveðið meðalverð á afla upp úr sjó og tekjum af sölu eða leigu veiðiheimilda varið til eftirtalinna verkefna: Í fyrsta lagi til fræðslu sem nýtist sjávarútvegi, fiskvinnsluskóla, símenntunar fiskvinnslufólks, sjómannafræðslu og öryggisfræðslu sjómanna. Í öðru lagi til rannsókna í tengslum við sjávarútveg, grunnrannsókna á lífríki sjávar, rannsókna á ónýttum og vannýttum tegundum, vöruþróunar í sjávarútvegi, markaðsöflunar og markaðshönnunar fyrir sjávarafurðir. Í þriðja lagi til verðlauna til handhafa veiðiheimilda fyrir sérstaka frammistöðu í nýtingu og meðferð aflans eða fyrir lofsverðan aðbúnað starfsfólks.
Tillögur Kvennalistans eru því nokkuð víðtækari en ráð er fyrir gert í frumvarpi þessu. Tekjustofn til þessara verkefna er í tillögum Kvennalistans tryggður með veiðileyfasjóði en frumvarp þetta gerir einungis ráð fyrir heimild, en ekki skyldu til handa Fiskveiðasjóði til að veita þróunardeild lán eða styrki.
Að mati minni hl. er frumvarpið þó spor í rétta átt og mun minni hl. því styðja það.
Alþingi, 14. des. 1989.
Danfríður Skarphéðinsdóttir,
fundaskr.