Ferill 208. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
1989. – 1059 ár frá stofnun Alþingis.
112. löggjafarþing. – 208 . mál.
Ed.
321. Nefndarálit
um frv. til l. um breyt. á l. nr. 50/1988, um virðisaukaskatt, með áorðnum breytingum.
Frá meiri hl. fjárhags- og viðskiptanefndar.
Með lögum nr. 50/1988 var ákveðið að virðisaukaskattur skyldi tekinn upp í stað söluskatts hinn 1. júlí 1989. Með lögum nr. 110/1988 var ákveðið að fresta gildistöku skattsins til 1. janúar 1990.
Samkvæmt þeim gögnum, sem lágu fyrir við samþykkt laganna, átti virðisaukaskattur að leiða til einföldunar í skattlagningu, réttlátari skattheimtu og skilvirkari innheimtu. Átti skatturinn ekki að mismuna atvinnugreinum þar sem virðisaukaskattur er hreinn neysluskattur sem leggst með sama hætti á alla kaupendur vöru og þjónustu — ríki, sveitarfélög og almenning. Þá var gert ráð fyrir að allt skatteftirlit yrði auðveldara vegna þess eðlis skattsins að í honum felist sjálfvirkt innbyggt eftirlit.
Með frumvarpi því, sem nefndin fékk til umfjöllunar, er kveðið á um ýmsar tæknilegar útfærslur og breytingar, svo og um ýmsar undanþágur, og er sú ákvörðun að undanþiggja bækur virðisaukaskatti viðamest. Til viðræðna um frumvarpið og hvernig breytingarnar falla að lögunum fékk nefndin eftirtalda aðila á sinn fund: Árna Reynisson frá Félagi íslenskra stórkaupmanna, Vilhjálm Egilsson frá Verslunarráði Íslands, Hallgrím Snorrason hagstofustjóra, Ólaf Davíðsson frá Félagi íslenskra iðnrekenda, Þóri Guðjónsson frá Félagi bókagerðarmanna, Ernu Hauksdóttur og Wilhelm Wessman frá Sambandi veitinga- og gistihúsa, Svein Hjört Hjartarson frá Landssambandi íslenskra útvegsmanna, Þórarin V. Þórarinsson og Ólaf Hjálmarsson frá Vinnuveitendasambandi Íslands, Þórleif Jónsson, Harald Sumarliðason og Guðlaug Stefánsson frá Landssambandi iðnaðarmanna, Gunnar Björnsson frá Meistara- og verktakasambandi byggingarmanna, Heiðar Ástvaldsson og Báru Magnúsdóttur frá Dansráði Íslands, Ásmund Stefánsson og Ara Skúlason frá Alþýðusambandi Íslands, Georg Ólafsson verðlagsstjóra, Sveinbjörn Egilsson og Andra Hrólfsson, frá Flugleiðum innanlandsdeild, Jón G. Tómasson frá Reykjavíkurborg, Sigurgeir Sigurðsson og Magnús E. Guðjónsson frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga, Birgi Sigurjónsson og Pál Halldórsson frá Bandalagi háskólamenntaðra ríkisstarfsmanna, Ögmund Jónasson, Björn Arnórsson og Sigurð Jóhannesson frá Bandalagi starfsmanna ríkis og bæja, Pétur Stefánsson, Ólaf Erlingsson og Guðrúnu Zoega, frá Félagi ráðgjafarverkfræðinga, Kristin G. Jónsson og Val Þorvaldsson frá Svínaræktunarfélagi Íslands, Bjarna Á. Jónsson frá Félagi kjúklingabænda, Eirík Einarsson og Geir Gunnar Geirsson frá Félagi eggjaframleiðenda, Hörð Bergmann og Torfa Hjartarson frá Hagþenki, félagi höfunda fræðirita og kennslugagna, Pálma Kristinsson og Gunnar Birgisson frá Verktakasambandinu, Gest Jónsson frá Lögmannafélagi Íslands, Árna Tómasson og Tryggva Jónsson frá Félagi löggiltra endurskoðenda, Hauk Halldórsson, Hákon Sigurgrímsson og Gunnlaug Júlíusson frá Stéttarsambandi bænda, Eirík Þorbjörnsson frá Sambandi íslenskra rafveitna, Maríu Jónu Gunnarsdóttur frá Sambandi íslenskra hitaveitna og Ágúst Elíasson frá Samtökum fiskvinnslustöðva.
Nefndinni til ráðuneytis og aðstoðar voru Garðar Valdimarsson ríkisskattstjóri, Jón Guðmundsson og Ólafur Ólafsson frá embætti ríkisskattstjóra, Snorri Olsen, Bolli Þór Bollason og Maríanna Jónasdóttir frá fjármálaráðuneyti og Lárus Ögmundsson frá Ríkisendurskoðun. Lögð voru fram gögn frá fjármálaráðuneyti um áhrif virðisaukaskatts á tekjur ríkissjóðs og áhrif á verðlag í landinu, útgefnar reglugerðir, ásamt öðrum gögnum, þar á meðal orðsendingu frá Ríkisendurskoðun.
Nefndin klofnaði í afstöðu sinni til frumvarpsins. Meiri hl. nefndarinnar leggur til eftirtaldar breytingar:
Íslenskar kvikmyndir verði undanþegnar virðisaukaskatti til þess að efla íslenska kvikmyndagerð og menningu. Þar sem gert er ráð fyrir því að útgáfa tímarita og blaða teljist ekki til skattskyldrar veltu álítur meiri hl. að öll blaða- og útgáfustarfsemi skuli einnig falla undir ákvæðið. Þá telur meiri hl. rétt, til einföldunar og vegna tæknilegra örðugleika, að öll sala á orku til húshitunar verði undanþegin virðisaukaskatti, svo og sala laugarvatns. Meiri hl. telur rétt að endurgreiðsla til húsbyggjenda skuli verðbætt og því leggur meiri hl. til að það komi skýrt fram í ákvæðum laganna. Þá eru tekin af öll tvímæli um skyldu til endurgreiðslu virðisaukaskatts til húsbyggjenda.
Meiri hl. nefndarinnar hefur farið vandlega yfir athugasemdir þeirra aðila sem fyrir nefndina hafa komið og leggur áherslu á að við þær yfirlýsingar, sem gefnar hafa verið af hálfu ríkisstjórnarinnar, verði staðið og afgreiðir meiri hl. frumvarpið á þeirri forsendu. Samkvæmt yfirlýsingu fjármálaráðherra skal fara fram vinna við gerð frumvarps um réttarþjónustu fyrir þá einstaklinga sem
ekki hafa bolmagn til að leita sér lögfræðiaðstoðar. Þá telur meiri hl. mikilvægt að virðisaukaskattur komi ekki með fullum þunga á starfsemi sveitarfélaga. Tekur meiri hl. því undir bréf fjármálaráðherra frá 7. des. 1989 um að virðisaukaskattur, sem sveitarfélögin greiða af sorphreinsun, ræstingu og þjónustu sérfræðinga verði endurgreiddur þeim. Meiri hl. telur með hliðsjón af því að ríkissjóði er heimilt að beita mjög hörðum aðgerðum vegna vanskila á virðisaukaskatti að nauðsynlegt sé að settar verði um það skýrar reglur að ríkisfyrirtæki og stofnanir ríkisins borgi dráttarvexti af viðskiptaskuldum sínum eftir þeim reglum sem almennt gilda um slík viðskipti. Jafnframt er brýnt að settar verði afdráttarlausar reglur sem komi í veg fyrir að forsvarsmenn ríkisstofnana og ríkisfyrirtækja stofni til viðskiptaskulda sem ekki fást greiddar vegna skorts á fjárlagaheimildum. Í tengslum við gjaldfrest á greiðslu aðflutningsgjalda í tolli vill meiri hl. taka fram að mikilvægt er að slíkur gjaldfrestur verði veittur að því er varðar aðföng innlendrar framleiðslu og olíuviðskipti. Þá telur meiri hl. brýnt að fjármálaráðuneytið kanni kosti þess að veita gjaldfrest almennt í innflutningi og gæti sú breyting átt sér stað í nokkrum áföngum til að milda áhrifin á greiðslustöðu ríkissjóðs.
Meiri hl. nefndarinnar vill til áréttingar taka fram að hann lítur svo á að nýsmíði skipa falli undir 6. tölul. 1. mgr. 12. gr. gildandi laga um virðisaukaskatt.
Afar brýnt er í tengslum við þessar miklu kerfisbreytingar sem felast í upptöku virðisaukaskatts að skattyfirvöld leiðbeini fyrirtækjum og einstaklingum fyrst í stað við bókhald og gerð framtala og grípi ekki til harðra refsiaðgerða meðan kerfisbreytingin gengur yfir. Meiri hl. leggur áherslu á strangt verðlagseftirlit við upptöku virðisaukaskattsins.
Meiri hl. nefndarinnar leggur til að frumvarpið verði samþykkt með þeim breytingum sem flutt er tillaga um á sérstöku þingskjali.
Alþingi, 14. des. 1989.
Guðmundur Ágústsson,
form., frsm.
Jóhann Einvarðsson,
fundaskr.
Skúli Alexandersson.
Eiður Guðnason.