Ferill 208. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1989. – 1059 ár frá stofnun Alþingis.
112. löggjafarþing. – 208 . mál.


Ed.

326. Breytingartillögur



við frv. til l. um breyt. á l. nr. 50/1988, um virðisaukaskatt, með áorðnum breytingum.

Frá 1. minni hl. fjárhags- og viðskiptanefndar (HBl, EKJ).



1.    Við 1. gr. Á eftir „að tónleikum“ í d-lið komi: listdanssýningum.
2.    Á eftir 5. gr. komi ný grein er orðist svo:
    Við 11. gr. laganna bætist ný málsgrein er orðist svo:
         Skattskyld velta skiptist í veltu samkvæmt neðra þrepi, sem er skattskylt velta vegna sölu eða afhendingar í neðra þrepi, og almenna skattskylda veltu sem nær yfir alla aðra skattskylda veltu.
3.    Við 6. gr. Á undan a-lið komi þrír nýir stafliðir svohljóðandi:
    a.     Við 5. tölul. 1. mgr. bætist nýr málsliður er orðist svo:
            Eldsneyti í innanlandsförum.
    b.     Á undan „Viðgerðar-“ í 7. tölul. 1. mgr. komi: Skipasmíði og.
    c.     Á eftir 8. tölul. 1. mgr. komi nýr töluliður er orðist svo:
        Veiðarfæri og brennsluolía fyrir fiskiskip.
4.    Við 6. gr. Á eftir c-lið bætist nýr stafliður svohljóðandi:
        Við 1. mgr. bætist nýr töluliður er verði 12. tölul. og orðist svo:
            Lögfræðiþjónusta.
5.     Við 6. gr. Á eftir c-lið bætist enn nýr stafliður svohljóðandi:
        Við 1. mgr. bætist nýr töluliður er verði 13. tölul. og orðist svo:
            Byggingarkostnaður gistihúsa.
6.     Við 6. gr. Á eftir c-lið komi enn nýr stafliður er orðist svo:
            Á eftir 1. mgr. komi ný málsgrein svohljóðandi:
              Halda skal skattskyldri veltu samkvæmt neðra þrepi aðgreindri frá annarri skattskyldri veltu. Sala eða afhending neyslumjólkur, dilkakjöts, neyslufisks og fersks innlends grænmetis skal vera í neðra þrepi. Fjármálaráðherra skal í reglugerð setja nánari skýringar á því hvað flokkast undir veltuna í neðra þrepi.
7.     Við 7. gr.
    a.     A-liður orðist svo:
              Í stað „81,97%“ í 3. mgr. komi: 81,97% vegna almennrar skattskyldrar veltu og 86,96% vegna veltu samkvæmt neðra þrepi.
    b.     1. og 2. tölul. 5. mgr. orðist svo:
        1.     81,97% þeirrar fjárhæðar sem hann endurgreiðir viðskiptavinum sínum vegna endursendra vara þegar um almenna skattskylda veltu er að ræða en 86,96% vegna veltu samkvæmt neðra þrepi.
        2.     81,97% af töpuðum útistandandi viðskiptaskuldum enda hafi hin tapaða fjárhæð áður verið talin til almennrar skattskyldrar veltu. Fáist fjárhæðin síðar greidd skulu 81,97% hennar talin með skattskyldri veltu á því tímabili þegar hún fæst greidd. Þegar velta samkvæmt neðra þrepi á í hlut er hlutfall þetta 86,96%.
8.     Við 8. gr. Greinin orðist svo:
            14. gr. laganna orðist svo:
             Virðisaukaskattur af almennri skattskyldri veltu skal vera 22% og af veltu samkvæmt neðra þrepi 15%. Skal virðisaukaskattur renna í ríkissjóð.
9.     Við 9. gr. bætist nýr stafliður svohljóðandi:
             Við 5. mgr. bætist nýr málsliður svohljóðandi: Enn fremur skal sérstaklega koma fram hver fjárhæð virðisaukaskatts er, þannig að virðisaukaskattur sé 18,03% af heildarverði þegar um almenna veltu er að ræða en 13,04% af heildarverði þegar matvælavelta á í hlut.
10.     Við 10. gr. Við greinina bætist: en þó aðeins á hinum sex reglulegu uppgjörsdögum skv. 2. mgr. 24. gr.
11.     Við 11. gr. Greinin falli brott.
12.     Við 12. gr. bætist ný málsgrein, er verði 1. mgr., svohljóðandi:
             Nú telur einhver vafa leika á um skattskyldu, skattstofn eða annað það sem áhrif hefur á skattinn og getur hann þá leitað bréflega eftir skýringum ríkisskattstjóra og skal afstaða hans liggja fyrir innan tveggja vikna frá móttöku fyrirspurnar.
13.     Við síðustu málsgrein 12. gr. bætist: Þó er óheimilt að stöðva atvinnurekstur skv. 4. mgr. 27. gr. ef deila um skattskyldu eða skattstofn er til meðferðar hjá ríkisskattstjóra, ríkisskattanefnd eða dómstólum og skattaðila verði ekki gefin sök á töfum á efnisúrlausn deilunnar.
14.     Á eftir 12. gr. komi ný grein svohljóðandi:
    3. mgr. 34. gr. laganna orðist svo:
         Innheimta skv. 1. mgr. skal framkvæmd með þeim hætti að innflytjandi eigi kost á greiðslufresti til loka næsta mánaðar eftir innflutningsmánuð. Skal eigi krafist trygginga né settar aðrar takmarkanir á greiðslufresti nema innflytjandi hafi ekki staðið í skilum eða að rökstudd ástæða sé til að ætla að hann muni ekki standa í skilum. Fjármálaráðherra skal með reglugerð kveða nánar á um greiðslufresti.
15.     Við 13. gr., a-lið (ný 42. gr.).
    a.     1. mgr. fellur brott.
    b.     Við bætist ný málsgrein sem verður 2. mgr. og orðist svo:
                 Endurgreiðslur samkvæmt þessari grein falla saman við uppgjörstímabil samkvæmt almennum reglum.
    c.     Á eftir orðunum „sem þeir hafa greitt vegna“ í 2. mgr. komi: hönnunarþjónustu og.
    d.     2. málsl. 2. mgr orðist svo: Jafnframt er heimilt að endurgreiða eigendum íbúðarhúsnæðis virðisaukaskatt sem þeir hafa greitt vegna vinnu manna við meiri háttar viðhald og endurbætur þess, enda sé heildarkostnaður af þeim sökum á 12 mánaða tímabili a.m.k. 3,5% af fasteignamati þess árs sem framkvæmdir hófust.
16.     Á eftir 15. gr. komi ný grein er orðist svo:
        48. gr. laganna, er verður 50. gr., sbr. lög nr. 110/1988, orðist svo:
             Lög þessi öðlast þegar gildi, en skattheimta samkvæmt þeim kemur eigi til framkvæmda fyrr en 1. júlí 1990. Frá þeim tíma falla úr gildi lög nr. 10/1960, um söluskatt, með síðari breytingum. Ákvæði þeirra laga skulu þó gilda um söluskatt af sölu til og með 30. júní 1990.
17.     Við 17. gr.
    a.     Fyrir „16. nóvember“ kemur: 1. september.
    b.     Við bætist nýr málsliður: Ákvæði 11. gr., 12. gr., 13. gr., 14. gr. og 20. gr. um neðra skattþrep taka þó ekki gildi fyrr en 1. júlí 1990.
    c.     Við bætist nýr málsliður: 2. mgr. 27. gr. tekur þó ekki gildi fyrr en 1. júlí 1990.