Ferill 236. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1989. – 1059 ár frá stofnun Alþingis.
112. löggjafarþing. – 236 . mál.


Sþ.

334. Fyrirspurn



til fjármálaráðherra um skuld frystideildar Verðjöfnunarsjóðs fiskiðnaðarins.

Frá Kristni Péturssyni.




1.    Hvers vegna hefur fjármálaráðherra ekki látið gjaldfæra skuld frystideildar Verðjöfnunarsjóðs fiskiðnaðarins í frumvarpi til fjáraukalaga fyrir árið 1989 eða í frumvarpi til fjárlaga fyrir árið 1990?
2.    Hvað er nú (14. des. 1989) um háa fjárhæð að ræða að meðtöldum fjármagnskostnaði?
3.    Hvaða heimild telur fjármálaráðherra að hann hafi til þess að telja þessa skuld til eignar í bókhaldi ríkissjóðs í ljósi yfirlýsinga ráðherra og ríkisstjórnar um að frystingin verði ekki látin endurgreiða þessa upphæð?