Ferill 100. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1989. – 1059 ár frá stofnun Alþingis.
112. löggjafarþing. – 100 . mál.


Sþ.

372. Nefndarálit



um frv. til fjáraukalaga fyrir árið 1989.

Frá minni hl. fjárveitinganefndar.



    Frumvarpi til fjáraukalaga fyrir árið 1989 var vísað til nefndarinnar þann 13. nóv. sl. Í því felst nokkurt nýmæli að frumvarp af þessu tagi sé flutt á yfirstandandi fjárlagaári. Tilefni þessa er án efa sú umræða sem fram hefur farið í fjárveitinganefnd um nauðsyn breytinga á starfsháttum við meðferð ríkisfjármála. Þegar útgjöld ríkissjóðs á árinu 1988 fóru 8.000 millj. kr. fram úr fjárlögum var nefndinni nóg boðið. Þá var skoðun nefndarinnar í heild sú að ekki yrði lengur við það unað að framkvæmdarvaldið dragi á þennan hátt til sín fjárveitingavaldið sem samkvæmt stjórnarskránni er í höndum Alþingis og látið við það sitja að samþykkja eftir á heimildarlausar ákvarðanir ríkisstjórnar eða fjármálaráðherra. Einn þátturinn í þessum nauðsynlegu breytingum er sá að aflað sé heimilda með fjáraukalögum fyrir greiðslum úr ríkissjóði umfram fjárlög áður en þær eru inntar af hendi. Þessi sjónarmið voru kynnt fjármálaráðherra sem síðan ákvað að flytja þetta frumvarp.
    Þegar frumvarpið var flutt var það bæði síðborið og vanburða.
    Í fyrsta lagi var það of seint á ferðinni þannig að afgreiðsla þess í nefndinni fer saman við aðalvinnulotu nefndarinnar fyrir afgreiðslu fjárlaga.
    Í öðru lagi er frumvarpið lagt fyrir Alþingi eftir að meginhlutinn af því fé, sem með frumvarpinu á að afla heimilda fyrir, hefur þegar verið greiddur úr ríkissjóði. Alþingi stendur því að þessu leyti frammi fyrir gerðum hlut.
    Í þriðja lagi var frumvarpið lagt fram í þeim búningi að það gat naumast talist þinghæft. Þetta skal skýrt með eftirfarandi:
a.    Sömu fjárlagaliðirnir voru taldir upp aftur og aftur í frumvarpinu í stað þess að fella tölur saman í einn lið þar sem við átti og greina síðan sundur í greinargerð eftir þörfum.
b.    Í frumvarpinu voru safnliðir, samtals tæplega 4.000 millj. kr., sem ekki var skipt á einstaka fjárlagaliði og gátu að verulegu leyti verið til frjálsrar ráðstöfunar fjármálaráðherra ef samþykktir yrðu óbreyttir.
c.    Í frumvarpinu var farið fram á heimild fyrir fjármálaráðherra til að lækka útgjöld um allt að 650 millj. kr. án þess að skipt væri niður á einstök fjárlaganúmer og einstök verkefni.
    Í heild var frumvarpið þannig úr garði gert að ógerlegt var fyrir Alþingi að vita hvað verið væri að greiða atkvæði um í ýmsum greinum.
    Fjárveitinganefnd hefur fjallað um frumvarpið sameiginlega og m.a. rætt þær breytingar sem nauðsynlegt var að gera á uppsetningu frumvarpsins þannig að það gæti komið til afgreiðslu á Alþingi í eðlilegum búningi. Þetta er þýðingarmikið því að ætla má að það hafi nokkurt fordæmisgildi um form við meðferð slíkra mála eftirleiðis.
    Meiri hl. flytur fjölda breytingartillagna sem m.a. eiga að þjóna framangreindu markmiði. Minni hl. stendur ekki að afgreiðslu málsins í heild. Fulltrúar minni hl. taka þó fram að þeir telja vinnulag og efnistök formanns nefndarinnar og meiri hl. hafi verið eðlileg og rökrétt. Um þá þætti málsins er full samstaða innan nefndarinnar.
    Minni hl. vill einnig taka fram að nokkrar af breytingartillögum meiri hl. og fáeinir liðir frumvarpsins eiga rætur að rekja til ákvarðana sem teknar hafa verið með fullri aðild minni hl. og stjórnarandstöðunnar, sumpart í fjárveitinganefnd og sumpart á Alþingi. Minni hl. mælir með þessum breytingartillögum og leggur til að þær verði samþykktar. Þær eru þessar.

1. 00-101 Embætti forseta Íslands     Þús. kr.Þús. kr.
    Viðhaldsverkefni:
    5 01 Viðhald fasteigna .............................     50.000
2. 02-507 Stýrimannaskólinn í Reykjavík
    Stofnkostnaður:
    6 01 Kennslutæki ...................................     37.500
3. 08-381 Sjúkrahús og læknisbústaðir
    Stofnkostnaður:
    6 8972 Vopnafjörður, dvalarheimili .................     2.500
    6 9023 Hafnarfjörður, H2 og Sólvangur ..............     6.000
    6 9041 Ísafjörður, sjúkrahús .......................     10.000
    6 9077 Hólmavík ....................................     400
    6 9089 Hvolsvöllur, læknisbústaður .................     1.40020.300
4. 10-211 Vegagerð ríkisins
    Viðhaldsverkefni:
    5 10 Viðhald vega ..................................     100.000
    Stofnkostnaður:
    6 10 Nýframkvæmdir .................................     405.000
5. 10-333 Hafnamál
    Stofnkostnaður:
    6 40 Sjóvarnargarðar, Flateyri ......................     6.000
6. 10-485 Ýmis framlög
    Almennur rekstur:
    1 33 Öryggismálaskóli sjómanna .....................     7.500

    Aðrir þættir frumvarpsins og breytingartillagna meiri hl. eiga sér þrenns konar uppruna.
1.     Afleiðingar af röngum forsendum, vanáætlunum og losaralegri afgreiðslu fjárlaga fyrir tæpu ári sem þá var sterklega vakin athygli á og gagnrýnd af fulltrúum minni hl.
2.     Ákvarðanir ríkisstjórnarinnar um ný útgjöld úr ríkissjóði til ýmissa viðfangsefna eftir að fjárlög voru afgreidd.
3.     Útgjöld sem meiri hl. fjárveitinganefndar leggur til að greidd verði samkvæmt fjáraukalögum en hefðu í sumum tilvikum ella komið til greiðslu á fjárlögum næsta árs.
    Í frumvarpinu var, þegar það var lagt fram, farið fram á heimild til að auka útgjöld ríkissjóðs á þessu ári umfram fjárlög um 8.152 millj. kr. Í breytingartillögum meiri hl. er lagt til að nokkuð verði bætt um betur þannig að útgjöld vaxi um 8.610 millj. kr., en frá því dragist vegna niðurskurðar á móti 117 millj. kr. þannig að útkoman verði aukin útgjöld ríkissjóðs á þessu ári umfram fjárlög sem nemur 8.493 millj. kr. Á móti því kemur að tekjurnar vaxi frá frumvarpinu um 350 millj. kr. eða samtals frá fjárlögum um 3 milljarða króna.
    Af því mikla fjármagni, sem hér er verið að leita heimilda fyrir að greiða úr ríkissjóði á þessu ári umfram fjárlög og hefur þegar að mestu verið greitt, gengur auðvitað sumt til þarflegra málefna, öðru er varið á þann veg að minni hl. er því gjörsamlega andvígur. Auk þess eru niðurskurðartillögur meiri hl. og ríkisstjórnar sumar hverjar næsta hjákátlegar. Aðrar bera vott um viðhorf sem minni hl. getur ekki sætt sig við, þar á meðal algert skilningsleysi á málefnum sem konur starfa að, m.a. með niðurskurði um 1 millj. kr. til Kvennaathvarfs, sem sinnir bráðnauðsynlegri aðhlynningu fórnarlamba ofbeldis, og framlag til UNIFEM, 620 þús. kr. Þeir sem að þróunarmálum starfa telja að þetta fé og raunar miklu meira komi því aðeins að gagni að það renni um hendur kvenna. Með þessum niðurskurði er því lágt seilst.
    Þetta verður þó ekki greint hér frekar í sundur og ef frá eru taldir þeir liðir sem minni hl. lýsir stuðningi við hér að framan stendur minni hl. á engan hátt að þessari afgreiðslu.
    Þótt enn séu vafalaust ekki öll kurl til grafar komin varðandi útkomu ársins liggur það fyrir að með afgreiðslu þessa frumvarps er kveðinn upp þungur dómur yfir fjármálastjórn fjármálaráðherra og ríkisstjórnar á árinu 1989. Sá dómur sannar að afgreiðsla fjárlaga fyrir þetta ár hefur reynst óraunhæf og að fjármál ríkisins hafa farið hrapallega úr böndunum.

Alþingi, 18. des. 1989.



Pálmi Jónsson,


frsm.


Egill Jónsson.


Málmfríður Sigurðardóttir.


Friðjón Þórðarson.