Ferill 221. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
1989. – 1059 ár frá stofnun Alþingis.
112. löggjafarþing. – 221 . mál.
Nd.
380. Nefndarálit
um frv. til l. um breyt. á l. nr. 94/1986, um kjarasamninga opinberra starfsmanna.
Frá minni hl. fjárhags- og viðskiptanefndar.
Það var ljóst strax þegar frumvarp um breytingu á verkaskiptingu ríkis og sveitarfélaga var til umfjöllunar á Alþingi að í kjölfar slíkrar breytingar mundi fylgja óvissa og röskun á högum og réttindastöðu margra starfsmanna ríkis og sveitarfélaga. Því var nauðsynlegt, þegar frumvarpið hafði verið samþykkt, að grípa til aðgerða með góðum fyrirvara til að koma í veg fyrir slíkt.
Þetta frumvarp tekur á takmörkuðum hluta þess vanda sem verður í málefnum fjölmargra starfsmanna víða um land þegar lög um breytta verkaskiptingu ríkis og sveitarfélaga taka gildi nú um áramótin. Enn er þó margt ófrágengið í þessum efnum og langt í frá að allt það starfsfólk, sem nú kvíðir óljósri eða verri réttarstöðu en áður vegna þessara breytinga, hafi fengið úrlausn sinna mála. Er gagnrýnivert hve seint er hér gripið til ráða til að leysa nokkurn hluta þess vanda sem við blasir.
Minni hl. skilur mikilvægi þess að finna lausn á þessum vanda og setur sig ekki í meginatriðum á móti þeim aðgerðum sem hér eru boðaðar. Hins vegar kom í ljós við umfjöllun málsins að sú lausn, sem hér er boðuð, er einungis takmörkuð bráðabirgðalausn og þarfnast endurskoðunar. Auk þess er hún fundin án víðtæks samráðs og samstarfs við launþegahreyfingar. Ætti þó öllum að vera ljós nauðsyn þess að afdrifaríkar breytingar á lögum um kjarasamninga opinberra starfsmanna séu því aðeins gerðar að um þær sé góð sátt.
Þegar gengið var frá kjarasamningi Bandalags háskólamenntaðra ríkisstarfsmanna og ríkisins 18. maí sl. var gerð svohljóðandi bókun:
„Samningsréttarlögin verði endurskoðuð í samvinnu við öll samtök opinberra starfsmanna. Stefnt verði að því að breytingar þær, sem aðilar verða sammála um, verði lagðar fram á haustþingi 1989.“
Við þessa bókun var ekki staðið. Vegna þess og þess öngþveitis, sem skapast getur ef svo flókið mál sem félagsaðild starfsmanna ríkis og sveitarfélaga er ekki krufið til mergjar í næði í fullu samráði við öll samtök opinberra starfsmanna, flytur 1. minni hl. breytingartillögu við frumvarpið. Efni hennar er á þá leið að sú breyting, sem lögð er til í frumvarpinu, verði aðeins til bráðabirgða svo að tóm gefist til viðunandi vinnubragða.
Jafnframt kom í ljós að efni frumvarpsins varðar grundvallaratriði um leiðir og aðferðir launþegahreyfinga í kjarabaráttu og tengist ágreiningi sem ríkir um þau mál innan allra launþegasamtaka.
Að öllu þessu sögðu er það ámælisvert að efni frumvarpsins skuli ekki hafa verið rækilegar kynnt fyrir samtökum launafólks.
Breytingartillögur 1. minni hl. við frumvarpið er að finna á sérstöku þingskjali 381.
Alþingi, 19. des. 1989.
Þórhildur Þorleifsdóttir.