Ferill 100. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
1989. – 1059 ár frá stofnun Alþingis.
112. löggjafarþing. – 100 . mál.
Sþ.
383. Breytingartillaga
við frv. til fjáraukalaga fyrir árið 1989.
Frá meiri hl. fjárveitinganefndar.
Við bætist ný grein er verði 5. gr. og orðist svo:
Liðurinn 4.17 í 6. gr. fjárlaga fyrir árið 1989 orðist svo:
Að afhenda hlutaðeigandi sveitarfélagi eða sveitarfélögum eignir landshafnanna í Rifi, Þorlákshöfn og í Keflavík og Njarðvík og greiða í því sambandi allt að 50 milljónum króna til sveitarfélaganna vegna kostnaðar við yfirtökuna á árinu 1989.