Ferill 69. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1989. – 1059 ár frá stofnun Alþingis.
112. löggjafarþing. – 69 . mál.


Ed.

391. Nefndarálit



um frv. til lánsfjárlaga fyrir árið 1990.

Frá meiri hl. fjárhags- og viðskiptanefndar.



    Nefndin hefur haft frumvarpið til athugunar um nokkurt skeið og fékk til fundar við sig Ingimund Friðriksson frá alþjóðadeild Seðlabanka Íslands, Leif Kr. Jóhannesson frá Stofnlánadeild landbúnaðarins, Harald Andrésson frá Hafnabótasjóði, Birgi Þorgilsson, Kristínu Halldórsdóttur og Árna Þór Sigurðsson frá Ferðamálaráði, Jóhönnu Leópoldsdóttur og Snorra Tómasson frá Ferðamálasjóði, Guðbrand Gíslason frá Kvikmyndasjóði, Braga Hannesson frá Iðnlánasjóði, Þorvald Alfonsson frá Iðnþróunarsjóði, Einar Laxness frá Menningarsjóði, Má Elísson frá Fiskveiðasjóði, Halldór Jónatansson og Örn Marinósson frá Landsvirkjun, Guðmund Malmquist frá Byggðastofnun, Gunnlaug Sigmundsson frá Þróunarfélagi Íslands, Markús Örn Antonsson og Hörð Vilhjálmsson frá Ríkisútvarpinu, Pál Hersteinsson veiðistjóra, Jóhönnu Ottesen frá Útflutningslánasjóði, Hrafn Pálsson frá Framkvæmdasjóði aldraðra, Jónas Jónsson og Gunnar Hólmsteinsson frá Búnaðarfélagi Íslands, Hákon Sigurgrímsson frá Stéttarsambandi bænda, Jóhann Guðmundsson frá landbúnaðarráðuneytinu, Magnús E. Guðjónsson og Birgi Blöndal frá Bjargráðasjóði, Árna Gunnarsson frá Listskreytingasjóði, Sveinbjörn Óskarsson frá fjármálaráðuneytinu, Þórð Friðjónsson frá Þjóðhagsstofnun, Atla Frey Guðmundsson frá viðskiptaráðuneytinu, Hilmar Þórisson, Hauk Sigurðsson og Percy B. Stefánsson frá Húsnæðisstofnun ríkisins, Indriða H. Þorláksson frá Fjárlaga- og hagsýslustofnun, Birgi Björn Sigurjónsson og Pál Halldórsson frá Bandalagi háskólamenntaðra ríkisstarfsmanna, Guðrúnu Árnadóttur frá Bandalagi starfsmanna ríkis og bæja, Svanhildi Kaaber, Láru Ingólfsdóttur og Eirík Jónsson frá Kennarasambandi Íslands, Lárus Ögmundsson og Sigþrúði Ingimarsdóttur frá Lífeyrissjóði hjúkrunarkvenna, Þorleif Pálsson frá dómsmálaráðuneytinu, Kristján Þorgeirsson frá leikmannaráði Þjóðkirkjunnar og biskup Íslands, herra Ólaf Skúlason.
    Halldór Árnason, skrifstofustjóri Fjárlaga- og hagsýslustofnunar, hefur verið nefndinni til ráðuneytis og aðstoðar.
    Hér á eftir verður gerð grein fyrir þeim breytingartillögum sem meiri hl. nefndarinnar hefur orðið sammála um að gera.
    Samkvæmt tillögunum hækka lántökuheimildir frumvarpsins um 2.010 millj. kr. og eru meginástæður þess eftirtaldar:
    Í fyrsta lagi er lagt til að lántökuheimild fjármálaráðherra fyrir hönd ríkissjóðs hækki um 1.300 millj. kr. og verði 8.670 millj. kr. Verður 2.370 millj. kr. aflað með erlendu lánsfé, eða sem svarar til afborgana af erlendu lánsfé og endurgreiðslna til Seðlabanka. Innlend lánsfjáröflun verður alls 6.300 millj. kr. og eykst um 300 millj. kr. Aukin lánsfjárþörf stafar af eftirfarandi:

                            Millj. kr.
a.    Aukinn rekstrarhalli á A-hluta ríkissjóðs ..................     460
b.    Aukin lántökuheimild Lánasjóðs íslenskra námsmanna ...........     400
c.    Lántökuheimild fyrir Endurbótasjóð menningarstofnana .......     300
d.    Lántökuheimild fyrir Hafnabótasjóð ...........................     50
e.    Lántökuheimild fyrir Áburðarverksmiðju ríkisins ............     50
f.    Lántökuheimild fyrir Háskólabíó ............................     40

    Samkvæmt endurskoðaðri áætlun Lánasjóðsins fyrir árið 1990 er fjárvöntun umfram frumvarp til fjárlaga um 500 millj. kr. Lántökuheimild sjóðsins er aukin um 400 millj. kr. til að mæta þeirri fjárvöntun. Endurbótasjóður menningarstofnana var stofnaður með lögum nr. 83/1989. Er hér gert ráð fyrir lántökuheimild fyrir sjóðinn og er helmingur lánsins ætlaður til framkvæmda við Bessastaðastofu, en hinn helmingurinn til framkvæmda við Þjóðleikhús. Hafnabótasjóði er veitt 50 millj. kr. lánatökuheimild á árinu 1990 til þess að endurlána 30 millj. kr. til framkvæmda við dýpkun innsiglingarinnar í Sandgerðishöfn og 20 millj. kr. til hafnarframkvæmda í Grímsey. Háskólabíó er veitt heimild til 40 millj. kr. lántöku á árinu 1990 til að ljúka við byggingu ráðstefnusala fyrir þing Norðurlandaráðs í lok febrúar.
    Í öðru lagi er lagt til að heimilaðar verði erlendar lántökur vegna skuldbreytinga. Lagt er til að veita 20 millj. kr. lánsheimild til handa Hitaveitu Egilsstaða og Fella. Greiðslubyrði hitaveitunnar er óeðlilega mikil á næstu þremur árum og verður lánið nýtt til skuldbreytinga og greiðslu vanskila. Með þessu móti á hitaveitan auðveldlega að geta staðið í skilum við sína lánardrottna í framtíðinni. Bæjarsjóði Siglufjarðar er veitt 50 millj. kr. lántökuheimild til að breyta skammtímalánum í langtímalán. Hitaveitu Hjaltadals er veitt 40 millj. kr. heimild til fjárhagslegrar endurskipulagningar og breytinga á eignaraðild, en gert er ráð fyrir því að fiskeldisfyrirtækið Hólalax hf., sem á 40% eignarhlut í hitaveitunni, hætti þátttöku, en Hólahreppur og ríkissjóður reki hitaveituna áfram. Lagt er til að Skallagrímur hf. fái heimild til að taka 60 millj. kr. lán til endurskipulagningar.
    Í þriðja lagi er lagt til að Herjólfi hf. og Hríseyjarhreppi verði heimilað að taka erlend lán til smíði og kaupa á ferjum. Lagt er til að lántökuheimild til nýrrar Vestmannaeyjaferju verði 500 millj. kr., en ákvörðun um smíði slíkrar ferju verður tekin bráðlega. Þá er lagt til að heimilað verði að taka erlent lán að upphæð 40 millj. kr. til kaupa á ferju til siglinga milli Hríseyjar, Grímseyjar og Eyjafjarðarhafna. Á lánsfjárlögum fyrir árið 1989 var heimild fyrir 35 millj. kr. láni í sama tilgangi og verður sú heimild notuð til að staðfesta kaupin en hugmyndir eru uppi um að kaupa notað skip frá Noregi. Að gerðum þessum breytingum eru heildarlántökur innan lands og erlendis á árinu 1990 áætlaðar 41.705 millj. kr. Þar af eru innlendar lántökur 18.625 millj. kr. og erlendar lántökur 23.080 millj. kr.
    Breytingar á II. kafla frumvarpsins eru í samræmi við fjárlagafrumvarp fyrir árið 1990 og breytingar á því í meðförum fjárveitinganefndar og Alþingis. Þar má nefna að framlag til Hafnabótasjóðs hækkar úr 20.000 þús. kr. í 47.500 þús. kr., framlag til Ferðamálasjóðs og sérstakra verkefna Ferðamálaráðs hækkar úr 36.000 þús. kr. í 38.600 þús. kr. og framlag ríkissjóðs til bóta fyrir eyðingu refa og minka hækkar úr 10.000 þús. kr. í 18.750 þús. kr. Þá er framlag ríkissjóðs til Húsafriðunarsjóðs takmarkað við 3.700 þús. kr. Í samræmi við fjárlagalið 09-381 í fjárlagafrumvarpi 1990, sbr. greinargerð bls. 325, er gert ráð fyrir því að framlag til lífeyrissjóða starfsmanna ríkisins og hjúkrunarkvenna verði ekki hærra en 540 millj. kr. Einnig er gert ráð fyrir 5% skerðingu á hlutdeild sókna, skráðra trúfélaga og Háskólasjóðs í óskiptum tekjuskatti (sóknargjöld), en áætlað er að skerðingin nemi um 37,5 millj. kr. á árinu 1990, og 15% skerðingu á hlutdeild kirkjugarða í óskiptum tekjuskatti (kirkjugarðsgjöld), en áætlað er að sú skerðing nemi um 47,5 millj. kr.
    Þær breytingar, sem lagt er til að gerðar verði á III. kafla frumvarpsins, miða fyrst og fremst að því að fjármagna skammtímaskuld ríkissjóðs við Seðlabankann í árslok 1989. Erfitt er að áætla hver yfirdráttur ríkissjóðs í Seðlabanka verður í árslok. Nokkur óvissa ríkir um tekjur ríkissjóðs í desembermánuði. Sama gildir um fyrirhugaða innlenda lánsfjáröflun, einkum sölu á ríkisvíxlum þar sem lausafjárstaða bankanna er óviss. Hér er heimildin því höfð rúm. Þá er fjármálaráðherra veitt heimild að fenginni umsögn fjárveitinganefndar til að gera samning við Rafveitu Siglufjarðar um yfirtöku á hluta langtímaskulda veitunnar. Verður sá samningur hliðstæður samningum sem stjórnvöld gerðu við Rafmagnsveitur ríkisins og Orkubú Vestfjarða um yfirtöku skulda á liðnu sumri. Enn fremur er fjármálaráðherra veitt heimild til að semja um uppgjör ógreiddra framlaga til jarðræktar og búfjárræktar á árinu 1988 og 1989. Að höfðu samráði við landbúnaðarráðherra og fjárveitinganefnd er loks lagt til að ríkisábyrgð sé veitt á lántöku Dýpkunarfélagsins hf. hjá Framkvæmdasjóði á árinu 1989.
    Meiri hl. nefndarinnar telur eðlilegt að opinberir sjóðir, sem taka lán erlendis, leiti eftir samþykki Seðlabanka Íslands um þau kjör sem í boði eru. Er gert ráð fyrir slíku samþykki í fyrsta sinn í lánsfjárlagafrumvarpi fyrir árið 1990. Stuðlar slíkt samþykki að því að sem bestum kjörum sé alltaf náð og minnkar líkur á því að ríkissjóður skaðist vegna óhagstæðra kjara annarra opinberra sjóða.
    Meiri hl. nefndarinnar leggur til að frumvarpið verði samþykkt með þeim breytingum sem gerð er tillaga um á sérstöku þingskjali.


Alþingi, 19. des. 1989.



Guðmundur Ágústsson,


form., frsm.


Jóhann Einvarðsson,


fundaskr.


Eiður Guðnason.


Skúli Alexandersson.