Ferill 251. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
1989. – 1059 ár frá stofnun Alþingis.
112. löggjafarþing. – 251 . mál.
Nd.
409. Frumvarp til laga
um breyting á lögum nr. 39/1988, um bifreiðagjald.
Frá fjárhags- og viðskiptanefnd.
1. gr.
Við lögin komi ákvæði til bráðabirgða svohljóðandi:Þrátt fyrir ákvæði 1. mgr. 3. gr. skal gjalddagi bifreiðagjalds vegna gjaldtímabilsins 1. janúar til 30. júní 1990 vera 1. mars 1990.
2. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi.Greinargerð.
Eins og kunnugt er liggur fyrir Alþingi stjórnarfrumvarp þar sem gert er ráð fyrir sérstakri hækkun á bifreiðagjaldi á árinu 1990 umfram almenna verðuppfærslu samkvæmt gildandi lögum. Nú liggur fyrir að ekki verður unnt að afgreiða umrætt frumvarp fyrir áramót. Af þessum sökum er hér lagt til að gjalddaga bifreiðagjalds verði frestað, þ.e. að gjalddagi vegna gjaldtímabilsins 1. janúar til 30. júní 1990 verði 1. mars í stað 1. janúar nk.