Ferill 1. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1989. – 1059 ár frá stofnun Alþingis.
112. löggjafarþing. – 1 . mál.


Sþ.

410. Nefndarálit



um framlög til flóabáta, fólks- og vöruflutninga.

Frá samvinnunefnd samgöngumála.



    Samvinnunefnd samgöngumála hefur að venju fjallað um erindi þau sem Alþingi hafa borist um framlög á fjárlögum til stuðnings við rekstur flóabáta vegna vöru- og fólksflutninga á einstökum svæðum. Farsvæði þessara báta er á Faxaflóa, á Breiðafirði, á Ísafjarðardjúpi og frá Þorlákshöfn til Vestmannaeyja. Enn fremur eru flutningar styrktir á Eyjafirði, til Grímseyjar og milli Mjóafjarðar og Neskaupstaðar.
    Jafnframt hefur nefndin tekið fyrir og rætt erindi sem borist hafa vegna flutninga á landi, svo sem til reksturs snjóbifreiða eða vegna mikils snjómoksturs þar sem erfitt reynist fyrir viðkomandi byggðarlög að standa straum af þeim kostnaði sem þau verða að bera samkvæmt snjómokstursreglum Vegagerðar ríkisins. Þrátt fyrir það að reglurnar hafa verið rýmkaðar á síðustu árum verða íbúar í snjóþungum héruðum fyrir verulegum kostnaði umfram aðra þegna þjóðfélagsins við að halda uppi nauðsynlegum samgöngum. Til að minnka eitthvað þennan aðstöðumun hafa verið veitt á fjárlögum hvers árs framlög til þeirra aðila sem að dómi nefndarinnar eru verst settir að þessu leyti.
    Halldór S. Kristjánsson, skrifstofustjóri í samgönguráðuneytinu, og Guðmundur Einarsson, forstjóri Skipaútgerðar ríkisins, mættu sem fyrr á fundum nefndarinnar og veittu henni margvíslegar upplýsingar sem komu nefndinni að verulegu gagni. Færir nefndin þeim sérstakar þakkir fyrir störf þeirra í hennar þágu.
    Skal nú gerð grein fyrir einstökum þáttum tillagna nefndarinnar, sérstaklega varðandi hin stærri verkefni, þ.e. flutninga á sjó. Hvort tveggja er að til þeirra gengur mestur hluti þess fjármagns sem nefndin úthlutar og um allt það er lýtur að sjóflutningum hefur nefndin fyllri upplýsingar þó að þeir aðilar, sem styrks til landflutninga njóta, hafi einnig sent nefndinni greinargóðar upplýsingar um rekstur og annað er umsóknina snertir. Samt er í nokkrum tilvikum misbrestur á því að reikningar fylgi umsókn og voru nefndarmenn sammála um að styrkur yrði ekki greiddur á næsta ári fyrr en reikningar bærust samgönguráðuneytinu fyrir yfirstandandi ár. Enn fremur vill nefndin enn á ný beina því til ráðuneytisins að þeim aðilum, sem njóta stofnstyrkja undir liðnum flutningar á landi, verði kynnt sú meginregla nefndarinnar að stofnstyrkir vegna ákveðinna verkefna verði eingöngu veittir í þrjú ár. Við úthlutun stofnstyrkja hefur að jafnaði verið við það miðað að hann verði ekki hærri samtals en helmingur kostnaðar við kaup á vélum og tækjum. Þrátt fyrir þessa meginreglu taldi nefndin eftir atvikum rétt að veita tveimur aðilum stofnstyrk enn á ný á næsta ári vegna verulegrar greiðslubyrði af lánum, en að um lokagreiðslur yrði að ræða. Það er til vetrarsamgangna í Árneshreppi og til snjóbifreiðar í Oddsskarði og Fagradal. Nefndin vill leggja á það áherslu að líta beri á þessar styrkveitingar sem algjöra undantekningu og ekki til eftirbreytni. Einnig samþykkti nefndin að veita Hólmavíkurhreppi 1,0 millj. kr. stofnstyrk til kaupa á snjóbifreið og það yrði eingöngu um veitingu í eitt skipti að ræða.

Akraborg.


    Rekstraraðili Akraborgar, Skallagrímur hf., sækir um 28,0 millj. kr. styrk á næsta ári. Í ár er styrkurinn 16,5 millj. kr. og gekk hann að fullu til greiðslu á lánum hjá Ríkisábyrgðasjóði samkvæmt samkomulagi við hann.
    Á árinu 1988 nam hallinn á rekstri Akraborgar 19,6 millj. kr. Á árinu 1986 var hallinn 12,2 millj. kr. og á árinu 1987 var hann 779 þús. kr. Samanlagður halli síðustu þriggja ára er því 32,6 millj. kr. Rekstrartekjur Akraborgar voru 108 millj. kr. á árinu 1988, en voru 92,2 millj. kr. árið 1987. Hækkun milli ára er 17%. Rekstrargjöld voru 106,8 millj. kr. 1988, en 89,6 millj. kr. 1987. Gjöldin hækkuðu því um 19,2%.
    Samkvæmt efnahagsreikningi í árslok 1988 er eigið fé fyrirtækisins neikvætt um 60,1 millj. kr. Eiginfjárstaðan versnaði um 26,2 millj. kr. á árinu. Skýringin á þessu er m.a. sú að styrkurinn nægði ekki til greiðslu afborgana og vaxta fyrirtækisins hjá Ríkisábyrgðasjóði eins og að var stefnt.
    Í lok september sl. var hallinn á rekstri Akraborgar orðinn 7,5 millj. kr. eftir að búið var að taka tillit til fjármunatekna og fjármagnsgjalda. Þetta er um 1,0 millj. kr. verri útkoma en var á sama tíma árið áður.
    Samkvæmt yfirliti um greiðslubyrði afborgana og vaxta af langtímalánum Akraborgar falla til greiðslu hjá Ríkisábyrgðasjóði eftirtaldar greiðslur á árunum 1990–1992 (gengi 17. nóv. 1989):

    Árið 1990 ........         27.978 þús. kr.
    Árið 1991 ........         18.370 þús. kr.
    Árið 1992 ........         69.538 þús. kr.
                      ——
          Alls         115.886 þús. kr.

    Hér fara á eftir upplýsingar um flutninga Akraborgar frá janúarmánuði til októbermánaðar síðustu þrjú ár:

                  1987    1988    1989
    Bifreiðar ................    67.755    64.342    59.634
    Þar af flutningabílar ....    6.910    6.865    6.189
    „Gangandi farþegar“ ......    60.873    60.586    58.074

    Samkvæmt framangreindu yfirliti heldur bílum áfram að fækka og nemur fækkunin frá 1987 8.121 bifreið eða um 12%. Nú er í fyrsta skipti um árabil nokkur fækkun á „gangandi farþegum“ milli ára. Akraborgin fór 22 ferðum færra í ár (frá janúarmánuði til októbermánaðar) en á sama tíma í fyrra og flutti að meðaltali 1,7 færri bíla í hverri ferð. Á árinu 1988 flutti Akraborgin 26,43 bíla í hverri ferð, en 28,76 bíla á árinu 1987. Í ár er talan 24,73 bílar í hverri ferð.

Baldur.


    Flóabáturinn Baldur hf. sækir um 30,3 millj. kr. styrk á næsta ári. Í ár er styrkurinn 18,8 millj. kr.
    Samkvæmt upplýsingum rekstraraðila bátsins um starfrækslu hans fyrstu átta mánuði þessa árs og bráðabirgðauppgjöri um rekstur bátsins umrætt tímabil og áætlun til loka þessa árs er gert ráð fyrir að heildargjöld Baldurs verði 32,2 millj. kr. og tekjur 12,0 millj. kr. Ríkisframlagið verður 18,8 millj. kr. þannig að samkvæmt þessu verður um 1,4 millj. kr. halli á árinu ef ekki eru taldar með afskriftir.
    Á árinu 1988 voru fyrningar og aðrar afskriftir 1,7 millj. kr. Á árinu 1988 var hallinn á rekstri Baldurs 1,7 millj. kr. án afskrifta, en var á árinu 1987 1,3 millj. kr., einnig án afskrifta. Undanfarin þrjú ár að yfirstandandi ári meðtöldu hefur því eigið fé fyrirtækisins rýrnað um a.m.k. 4,4 millj. kr.
    Laugardaginn 2. des. 1989 var sjósett hjá Þorgeiri og Ellert hf. á Akranesi ný Breiðafjarðarferja. Áætlað er að hún verði afhent rekstraraðila í byrjun næsta árs.
    Þessi nýja ferja er tæplega 39 m að lengd og breiddin er 9,2 m. Áætlað er að skipið geti tekið um 150 farþega í sæti og um 20 fólksbíla, en hægt er að auka flutningsgetuna um 10 bíla með lyftanlegum palli. Árið 1990 verður því fyrsta rekstrarár nýs skips og verður að skoða áætlun útgerðaraðila um tekjur og gjöld í ljósi þess.
    Útgerðaraðili gefur sér þá forsendu að launakostnaður hækki um 35% frá árinu í ár. Að meðaltali verða átta í áhöfn nýju ferjunnar en á gamla Baldri voru sex í áhöfn. Hækkun almennra gjalda er áætluð um 95%. Athygli vekur veruleg olíunotkun, en áætlað er að olíukostnaður u.þ.b. fjórfaldist, verði 9,2 millj. kr. Gamli Baldur eyddi um 80 lítrum á klst., en áætlað er að nýja ferjan eyði um 200 lítrum á klst.
    Gert er ráð fyrir að heildarrekstrargjöld nýrrar ferju verði 54,4 millj. kr. eða um 69% hærri en í ár við rekstur gamla Baldurs.
    Útgerðaraðili áætlar að tekjur tvöfaldist með tilkomu nýrrar ferju, verði 24,1 millj. kr. Forsendur hans eru að flutningur bifreiða stóraukist, fari úr 1.200–1.500 bíla í 4.000 bíla, fluttir verði um 6.000 farþegar yfir Breiðafjörðinn og 2.000 farþegar til Flateyjar eða alls 8.000 farþegar. Undanfarin ár hefur gamli Baldur flutt 5.000–6.000 farþega á ári.

Fagranes.


    Eins og mörg undanfarin ár fylgir umsókn rekstraraðila bátsins greinargott yfirlit um rekstur hans út þetta ár.
    Í bréfi framkvæmdastjóra fyrirtækisins til samvinnunefndar samgöngumála, dags. 20. nóv. 1988, er tekið fram að við gerð rekstraráætlunar fyrir árið 1989 var gert ráð fyrir 12–15% hækkun gjaldaliða milli ára, en hækkunin varð 20%. Gert var ráð fyrir 20% hækkun tekjuliða en hækkunin varð 40%.
    Gert er ráð fyrir að fyrirtækið verði rekið með lítils háttar halla á árinu þegar búið er að taka tillit til 14,1 millj. kr. ríkisframlags.
    Báturinn flutti fyrstu 10 mánuði þessa árs 1.003 tonn af vörum, 171 þús. lítra af mjólk, 2.693 farþega og 169 bíla í 139 ferðum. Á sama tímabili árið 1988 flutti hann 842 tonn af vörum, 89 þús. lítra af mjólk, 2.027 farþega og 99 bíla í 122 ferðum.
    Áætlun fyrirtækisins er í hefðbundnum stíl. Útgerðaraðili gefur sér þá forsendu að gjöld hækki frá 11 til 23% frá árinu í ár, að meðaltali um tæp 23%, og að þau verði 26,3 millj. kr. á næsta ári. Tekjur eru taldar aukast um 23% milli ára og að þær verði 8,5 millj. kr. Til að jöfnuður náist þarf ríkisframlagið að vera 17,6 millj. kr. samkvæmt umsókn útgerðar bátsins. Ef þetta ríkisframlag yrði samþykkt jafngildir það 66,8% af gjöldum bátsins. Til samanburðar nam ríkisstyrkur 70% af gjöldum 1988, 68,8% af gjöldum 1987 og 73,0% 1986.

Hríseyjarferja.


    Hríseyjarhreppur, sem er rekstraraðili Sævars, sækir um 2,0 millj. kr. rekstrarstyrk á næsta ári. Undanfarin þrjú ár hefur ferjan ekki þurft á rekstrarstyrk að halda, en fengið stofnstyrk sem í ár er 3,5 millj. kr. sem m.a. hefur verið notaður til greiðslu afborgana og vaxta.
    Um ástæðu þess, að sótt er um styrk á næsta ári, segir rekstraraðili m.a. „Nú er unnið að kaupum á ferju fyrir Hrísey–Grímsey. Þessi ferja á að yfirtaka þungaflutninga núverandi Hríseyjarferju og annast alla flutninga milli Grímseyjar og lands. Hríseyjarferjan Sævar verður áfram rekin sem farþegaferja fyrir Hrísey og fyrir léttari flutning. Erfitt er að fullmóta fyrir fram rekstur þessarar nýju ferju og gera sér grein fyrir hver áhrif hún kann að hafa á rekstur núverandi ferju.
    Því er sótt um þennan styrk til öryggis þannig að komið verði í veg fyrir að fyrirvaralaust verði á næsta ári farið af stað með beiðni um aðstoð vegna þess að ekki hafi tekist upp sem skyldi. Komi í ljós að ekki þurfi að nota styrkinn er það vel.“
    Rekstur Hríseyjarferjunnar Sævars á árinu 1988 sýndi halla að fjárhæð tæpar 70 þús. kr. Eins og fyrr er nefnt var enginn rekstrarstyrkur veittur til ferjunnar á þessu ári né á árinu 1987, en til greiðslu af lánum og upp í kaup á rafal var veittur styrkur 300 þús. kr. Umræddur rafall kostaði 830 þús. kr. Heildargjöld fyrirtækisins námu 9,7 millj. kr., en að frádregnum kostnaði við rafalinn 8,8 millj. kr. Tekjur ferjunnar, þ.e. flutningstekjur, námu 9,1 millj. kr. eða 94% heildargjalda.
    Farþegum með ferjunni hefur fjölgað á hverju ári frá því að ferjan kom til Hríseyjar árið 1979 þar til árið 1988 er þeim fækkaði um 2.000. Það veldur lækkun tekna um 300.000 kr.
    Á yfirstandandi ári er gert ráð fyrir að farþegum fjölgi aftur og verði fleiri en nokkru sinni fyrr.

Mjóafjarðarbátur.


    Sótt er um styrk vegna áætlunarferða milli Mjóafjarðar, Dalatanga og Neskaupstaðar. Fyrirkomulag ferða er með sama sniði og áður. Farnar eru tvær ferðir í viku frá Mjóafirði til Neskaupstaðar með viðdvöl þar og fara 10–12 klst. í hverja ferð. Þá er farið að Dalatanga jafnoft. Farið er á milli Dalatanga og Mjóafjarðar á landi á sumrin og þegar því verður við komið á veturna.
    Vegna áætlunarferðanna til Dalatanga hefur reynst nauðsynlegt að hafa yfir að ráða snjósleða og Subaru-bifreið og einnig Zodiak-gúmmíbát því að þegar landleiðin er ófær er farið á bátnum næsta dag og tekið land í gúmmíbátnum. Eru þær ferðir tímafrekar og bindandi þar sem oft þarf að bíða færis vegna erfiðra lendingarskilyrða á Dalatanga. Hefur það í för með sér allmikinn aukakostnað og tímatap.
    Þessi bátur, sem keyptur var á árinu 1978, er að sögn heimamanna eini möguleikinn til þess að hafa samband við Neskaupstað þar sem öll verslunarviðskipti fyrir þennan hrepp fara fram.
    Rekstraraðili Mjóafjarðarbáts, Egill Stefánsson, sækir um rekstrarstyrk á næsta ári að fjárhæð 3.000.000 kr. Egill Stefánsson lætur þess getið í umsókn sinni til nefndarinnar að hann muni láta af störfum við rekstur bátsins sökum aldurs og lasleika og flytja af staðnum. Starfsemin verður þó með sama sniði og mun Egill selja sinn eignarhluta (50%) í bátnum.
    Er sótt um stofnstyrk, að fjárhæð 3,0 millj. kr., sem greiddur verði út á þremur árum, til að gera meðeiganda Egils kleift að kaupa hlut Egils í bátnum.

Herjólfur.


    Á árinu 1988 var tap á rekstri Herjólfs 19,7 millj. kr. og er það án ríkisframlags sem var 25,0 millj. kr., verðbreytingafærslna, afskrifta og óreglulegra liða. Samkvæmt efnahagsreikningi í árslok er eigið fé fyrirtækisins jákvætt um 51 millj. kr. og hafði það þá aukist um 9 millj. kr. á árinu. Skammtímaskuldir námu 22,0 millj. kr. í lok síðasta árs og höfðu þær þá hækkað um rúma 1 millj. kr. frá árinu áður. Veltufjárhlutfallið er 0,64 sem er svipað og það var í lok ársins 1987 (0,70).
    Í lok september sl. var tap á rekstri Herjólfs 9,6 millj. kr. og er þá ekki tekið tillit til ríkisframlags og afskrifta. Í lok þessa árs er reiknað með að gjöld án afskrifta verði 148,3 millj. kr. og tekjur 124,6 millj. kr. Samkvæmt því áætlar rekstraraðili að tap á rekstri Herjólfs verði tæpar 23,7 millj. kr. í lok þessa árs, án ríkisframlags, verðbreytingafærslna, afskrifta, verðbóta og óreglulegra rekstrarliða.
    Gjöld og tekjur fyrirtækisins á næsta ári eru settar fram á áætluðu meðalverðlagi ársins 1990 með framreikningi á niðurstöðutölum ársins 1989, en auk þess er tekið tillit til „viðbótarkostnaðar vegna endurnýjunar og aukins viðhalds á skipinu aldursins vegna svo og á flutningatækjum félagsins“, segir í greinargerð forsvarsmanna fyrirtækisins.
    Gjöld hækka samkvæmt framanrituðu um 26% og tekjur um 14%. Hallinn á rekstrinum hækkar úr 23,7 millj. kr. 1989 í 44,4 millj. kr. 1990 (án afskrifta og ríkisframlags). Stjórn fyrirtækisins hefur tekið þá ákvörðun að hækka ekki fargjöld frá þeirri gjaldskrá sem nú er í gildi. Það er talið óraunhæft og lagt til að fargjöld verði hækkuð um a.m.k. 10%. Við það ættu tekjur fyrirtækisins að aukast um 4,0 millj. kr. og hallinn og þörf fyrir ríkisframlag að minnka samsvarandi.

Flutningar til Grímseyjar.


    Fyrir nokkrum árum hætti Drangur ferðum sínum um Eyjafjörð og til Grímseyjar. Til þess að sinna þeim flutningaverkefnum, sem flóabáturinn annaðist, var samið við Flugfélag Norðurlands hf. um að flytja vörur til Grímseyjar og jafnframt hefur Skipaútgerð ríkisins séð um flutning á þungavöru til eyjarinnar og fisk frá henni. Eins og fram kemur hér að framan þar sem rætt er um Hríseyjarferju eru uppi ráðagerðir um kaup á ferju til siglinga um Eyjafjörð til Hríseyjar og Grímseyjar. Ef af þeim kaupum verður er talið rétt að endurskoða úthlutun samkvæmt þessum lið. Áætlað er að þessir flutningar muni kosta um 9,6 millj. kr. á næsta ári.

    Áður en sagt er skilið við málefni flóabáta og ferja er rétt að geta þess að fram komu í nefndinni ábendingar þess efnis að þar sem verulegar fjárveitingar hafa þegar verið ákveðnar og eru fyrirhugaðar til smíði og kaupa á ferjum og flóabátum, fjárfestingar sem skipta munu hundruðum milljóna króna, væri tímabært að leiða hugann að því hvort það væri ekki frekar á verksviði fjárveitinganefndar Alþingis að veita fjármagn til reksturs og stofnkostnaðar ferja og flóabáta.
    Málefni annarra báta verða ekki rakin hér, enda er þar um smáar upphæðir að ræða.
    Ekki verða heldur tilgreindar sérstakar umsóknir um fjárveitingar til vetrarsamgangna á landi. Ítarlega var fjallað um hverja umsókn og var samstaða í nefndinni um hverja fjárveitingu.
    Um lið nr. 56, óráðstafað, er það að segja að hann er fyrst og fremst hugsaður sem sjóður sem hægt yrði að grípa til í neyðartilvikum þegar samgöngur teppast og grípa þarf til dýrari flutningstækja. Slíkir flutningar yrðu síðan greiddir samkvæmt reikningi og hefur verið farið fram á það við Halldór S. Kristjánsson, skrifstofustjóra í samgönguráðuneytinu, að hann annaðist greiðslu slíkra reikninga í samráði við formenn samgöngunefnda Alþingis.
    Að þessu sinni var framlag samkvæmt þessum lið hækkað verulega og er skýringin sú að nefndin telur brýnt samkvæmt fyrirliggjandi staðreyndum að styrkja loftflutninga til einangraðra staða á Vestfjörðum og samþykkti að verja allt að 2,5 millj. kr. í þessu skyni. Greiðslur fari fram í samráði við formenn samgöngunefndanna.
    Samvinnunefnd samgöngumála leggur til að á fjárlögum 1990 verði veittar samtals 131.100.000 kr., sem lagt er til á sérstöku þskj., í staðinn fyrir 109.609.000 kr. á þessu ári.

Alþingi, 18. des. 1989.



Karvel Pálmason,


form. Ed.-nefndar, frsm.


Hjörleifur Guttormsson,


form. Nd.-nefndar.


Skúli Alexandersson,


fundaskr. Ed.-nefndar.


Guðni Ágústsson,


fundaskr. Nd.-nefndar.


Stefán Guðmundsson.


Árni Gunnarsson.


Egill Jónsson.


Friðjón Þórðarson.


Halldór Blöndal.


Matthías Á Mathiesen.


Jón Helgason.


Málmfríður Sigurðardóttir.


Þorv. Garðar Kristjánsson.


Ólafur Þ. Þórðarson.