Ferill 178. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
1989. – 1059 ár frá stofnun Alþingis.
112. löggjafarþing. – 178 . mál.
Nd.
433. Nefndarálit
um frv. til l. um veiðieftirlitsgjald.
Frá sjávarútvegsnefnd.
Nefndin hefur rætt um frumvarpið. Til viðræðna voru kallaðir Arthur Bogason og Örn Pálsson frá Landssambandi smábátaeigenda, Helgi Laxdal frá Farmanna- og fiskimannasambandi Íslands, Kristján Ragnarsson frá Landssambandi íslenskra útvegsmanna, Óskar Vigfússon og Hólmgeir Jónsson frá Sjómannasambandi Íslands og Árni Kolbeinsson, ráðuneytisstjóri í sjávarútvegsráðuneytinu.
Nefndin telur rétt að gera eftirfarandi breytingar á frumvarpinu:
Í frumvarpinu er gert ráð fyrir því að veiðieftirlitsgjald standi að öllu leyti straum af kostnaði við veiðieftirlit. Nefndin leggur til að ríkissjóður beri þennan kostnað að hálfu fyrst um sinn og eru breytingar á 1. og 2. gr. til samræmis við þetta. Í því felst að heimild fjármálaráðuneytisins til gjaldtöku í þessu sambandi fellur niður.
Í öðru lagi telur nefndin rétt að breyta orðalagi 3. gr. frumvarpsins þannig að vegna fasts gjalds smábáta frá 6–10 brl. komi tilvísun til gjaldbreytinga í 2. gr. frumvarpsins.
Í þriðja lagi leggur nefndin til að 4. gr. frumvarpsins falli niður og efni hennar verði athugað nánar í tengslum við heildarendurskoðun á lögum um stjórn fiskveiða.
Í fjórða lagi leggur nefndin til að lögin taki gildi hinn 1. janúar 1990.
Nefndin leggur til að frumvarpið verði samþykkt með áðurgreindum breytingum.
Þórhildur Þorleifsdóttir var viðstödd afgreiðslu málsins og samþykk henni.
Alþingi, 20. des. 1989.
Jón Sæmundur Sigurjónsson,
form., frsm.
Hreggviður Jónsson,
fundaskr.
Alexander Stefánsson.
Matthías Bjarnason.
Guðni Ágústsson.
Kristinn Pétursson.
Geir Gunnarsson.