Ferill 210. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1989. – 1059 ár frá stofnun Alþingis.
112. löggjafarþing. – 210 . mál.


Ed.

443. Nefndarálit



um frv. til l. um breyt. á l. nr. 75/1981, um tekjuskatt og eignarskatt, með síðari breytingum.

Frá 2. minni hl. fjárhags- og viðskiptanefndar.



    Nefndin hefur haft skamman tíma til að fjalla um málið en þó reynt að afla upplýsinga bæði frá embættismönnum og öðrum viðmælendum nefndarinnar. Frumvarpið er annar veigamesti þáttur hinnar margþættu skattránsherferðar sem vinstri stjórn Steingríms Hermannssonar herðir nú á hendur borgurum þessa lands og atvinnufyrirtækjum. Hinn þátturinn er virðisaukaskatturinn. Samhliða þessu skattráni eru svo lagðir minni baggar á þjóðina hvarvetna þar sem því verður við komið. Eins og að líkum lætur hefur þessi skattastefna mjög verið í þjóðmálaumræðunni en stjórnarherrar verið rökheldir enda tókst þeim að styrkja valdastöðu sína á Alþingi og láta því kné fylgja kviði. Kom það glöggt í ljós við afgreiðslu málsins í neðri deild.
    Annar minni hl. telur því ljóst að tilgangslaust sé að flytja fjölda breytingartillagna og ber því aðeins fram tvær tillögur á sérstöku þingskjali.
    Á sama hátt er tilgangslaust að skila ítarlegu nefndaráliti en vitnað er til vandaðs nefndarálits 1. minni hl. fjárhags- og viðskiptanefndar neðri deildar. Álit minni hl. hefur komið fram í margvíslegri umfjöllun skattamála utan þings og innan síðustu vikurnar og verður nánar skýrt í umræðum.

Alþingi, 20. des. 1989.



Ey. Kon. Jónsson,


frsm.


Halldór Blöndal.