Ferill 264. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1989. – 1059 ár frá stofnun Alþingis.
112. löggjafarþing. – 264 . mál.


Ed.

470. Frumvarp til laga



um breyting á lögum um Landsvirkjun, nr. 42/1983.

Flm.: Jón Helgason, Egill Jónsson, Skúli Alexandersson,


Guðmundur Ágústsson, Danfríður Skarphéðinsdóttir.



1. gr.

    Við 1. mgr. 13. gr. laganna bætast þrír nýir málsliðir svohljóðandi: Þó skal veittur afsláttur af gjaldskránni þeim rafveitum sem vegna strjálbýlis eða annarra óviðráðanlegra ástæðna búa við háan dreifingarkostnað þannig að smásöluverð fyrir hverja tegund afnota verði hvergi meira en 5% hærra en vegið meðaltal á landinu öllu. Sama gildir um raforkuverð til upphitunar þar sem verð á öðrum orkugjöfum reiknast einnig inn í meðaltalið. Iðnaðarráðuneytið setur reglur um þessa verðjöfnun og annast framkvæmd hennar.

2. gr.

    Lög þessi öðlast gildi 1. júní 1990, þannig að frá þeim tíma kemur verðjöfnunin til framkvæmda í áföngum og verður að fullu náð samkvæmt ákvæðum 1. gr. hinn 1. júní 1992.

Greinargerð.


    Á síðasta þingi var flutt tillaga til þingsályktunar um sameiningu Landsvirkjunar og Rafmagnsveitna ríkisins og jöfnun orkuverðs. Samkvæmt þeirri tillögu var gert ráð fyrir að fela ríkisstjórninni að undirbúa lagabreytingu sem fæli í sér sameiningu Landsvirkjunar og Rafmagnsveitna ríkisins þar sem jafnframt skyldi kveðið á um að smásöluverð frá þessu nýja fyrirtæki skyldi verða sambærilegt við vegið meðaltal frá öðrum rafveitum. Við fyrri umræðu um þessa tillögu kom fram andstaða við sameiningu þessara stofnana og tillagan hlaut ekki afgreiðslu frá nefnd.
    Samkvæmt þessu frumvarpi er farin einfaldari leið til að ná fram jöfnun raforkuverðs. Kveðið er á um að Landsvirkjun skuli veita þeim rafveitum, sem hafa erfiða aðstöðu til dreifingar, nægilegan afslátt af heildsöluverði til þess að smásöluverð fyrir hverja tegund afnota hjá þessum rafveitum verði hvergi meira en 5% hærra en vegið meðaltal á landinu öllu. Hið sama gildi einnig um raforkuverð til upphitunar þar sem verð á öðrum orkugjöfum reiknist einnig inn í meðaltalið.
    Landsvirkjun veitir nú Rafmagnsveitum ríkisins og fleiri rafveitum nokkurn afslátt af orkuverði til upphitunar svo að hér er aðeins um að ræða útfærslu á þeirri aðferð sem framkvæmd hefur verið um nokkurt skeið. Landsvirkjun hefur einkarétt á raforkuöflun í landinu og afhendingu orkunnar til dreifiveitna. Það er því eðlilegt að fyrir slík réttindi verði fyrirtækið einnig að taka á sig skyldur og þá ekki síst þær að sjá um að m.a. annars þau héruð, sem Landsvirkjun sækir orkuna fyrst og fremst til, búi við sambærilegt orkuverð og meginhluti þjóðarinnar.
    Notendur rafhitunar hjá Rafmagnsveitum ríkisins hafa nú 225 millj. kr. til að lækka orkukostnað um 82 aura kílówattsstundina, niður í 2,20 kr. Er það svipaður hitunarkostnaður og hjá dýrustu hitaveitunum, en hjá Hitaveitu Reykjavíkur er verðið 86 aurar. Rafmagn til heimilisnotkunar er hins vegar um það bil 30% hærra hjá Rafmagnsveitum ríkisins en Rafmagnsveitu Reykjavíkur, en eitthvað minni munur er á iðnaðartaxta. Að nokkru leyti stafar sá munur af því að lögð hefur verið áhersla á að halda niðri verði á rafhitun hjá Rafmagnsveitum ríkisins svo að tiltölulega stærri hluti rekstrarkostnaðarins lendir á heimilistöxtum. En til upphitunar fer nærri helmingur af orkusölu Rafmagnsveitna ríkisins.
    Heildarsala Rafmagnsveitna ríkisins til heimilisnotkunar og iðnaðar er aðeins lítill hluti af sölu annarra rafveitna sem selja á lægra verði. Verðmiðlun mundi því valda tiltölulega lítilli hækkun hjá þeim. Af þessum tölum sést að ekki er um svo háar upphæðir að ræða miðað við þann ávinning sem næst að geta selt öllum, hvar sem þeir búa, orkuna á sambærilegu verði frá hinu samtengda orkukerfi. Þar er um svo mikið réttlætismál að ræða. Hvatningin til að kappkosta hagkvæman rekstur er heldur ekki tekin frá einstökum rafveitum þar sem hér skal miða við meðaltal svo að þær, sem bestum árangri ná, munu halda áfram að njóta þess.
    Samkvæmt ákvæðum 2. gr. kemur verðjöfnunin til framkvæmda á tímabilinu 1. júní 1990 til 1. júní 1992. Landsvirkjun væntir þess að raungildi heildsöluverðs á raforku haldi áfram að lækka á næstu árum. Með þessari aðlögun á gildistöku ákvæða 1. gr. er ætlast til að þessi raunverðshækkun standi fyrst og fremst undir kostnaði við verðjöfnunina svo að hún valdi ekki beinni hækkun hjá öðrum.