Ferill 267. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
1989. – 1059 ár frá stofnun Alþingis.
112. löggjafarþing. – 267 . mál.
Sþ.
477. Tillaga til þingsályktunar
um breytta tilhögun við afgreiðslu fjárlaga.
Flm.: Ásgeir Hannes Eiríksson.
Alþingi ályktar að breyta þurfi tilhögun við afgreiðslu fjárlaga þannig að fjárlög verði framvegis afgreidd fyrir þinglausnir á vori. Eins verði kannað hvort rétt sé að flytja til fjárlagaárið. Fjárveitinganefnd er falið að ganga frá drögum að frumvarpi þar að lútandi fyrir þinglausnir 1990.
Greinargerð.
Alþingi lendir jafnan í tímaþröng með afgreiðslu fjárlaga fyrir jól og áramót. Þessu tímaleysi fylgja margvísleg vandamál fyrir Alþingi og alþingismenn.
Í fyrsta lagi leiðir tímaþröngin til þess að alþingismönnum gefst síður tækifæri til að kynna sér þingmál til hlítar og brjóta þau til mergjar. Vinna í þingnefndum skilar ekki þeim árangri sem þarf. Fyrir bragðið er þingheimur ekki nægilega vel heima í hverju máli.
Í öðru lagi fylgir þessu mikil vinna hjá þingmönnum í fjárveitinganefnd Alþingis á haustmánuðum. Þannig gefst nefndarmönnum ekki nægilegur tími til að sinna öðrum þingstörfum eins og lög gera ráð fyrir.
Í þriðja lagi kallar þessi skorpuvinna á meiri yfirvinnu og mikið álag hjá starfsfólki Alþingis, fjármálaráðuneytis, Fjárlaga- og hagsýslustofnunar, Ríkisendurskoðunar og fleiri stjórnardeilda.
Síðast en ekki síst býður þessi staða því heim að Alþingi lendir inn í hringiðu óvandaðra vinnubragða í skammdeginu. Hópar þingmanna nota sér stöðuna til að knýja fram niðurstöður í óskyldum málum.
Eins og málum er nú háttað við fjárlagagerð þarf að samþykkja mörg lagafrumvörp fyrir næstu áramót til að fjárlögin öll taki gildi. Ríkisstjórnin hefur öflugan meiri hluta á Alþingi og því er það vilji þingsins að mál þessi verði að lögum að lokinni umfjöllun í þingflokkum og þingnefndum.
Tímaþröngin um áramót færir aftur á móti hópum þingmanna vopn í hendur sem þeir nota sér vægast sagt á ódýran hátt. Í því sambandi leyfir flutningsmaður sér að vitna í frétt í Morgunblaðinu frá 19. des. sl. Þar telur Ólafur G. Einarsson, formaður þingflokks sjálfstæðismanna, upp ýmsa afarkosti sem sjálfstæðismenn settu Alþingi til þess að þingmenn fengju lokið nauðsynlegum störfum fyrir jól. Þar segir þingmaðurinn orðrétt:
„Þetta er skilyrði af okkar hálfu ef á að vera hægt að halda hér áfram í sæmilegri sátt og ljúka þingi fyrir jól.“
Í sömu frétt er talað við Guðmund Bjarnason heilbrigðisráðherra þar sem hann telur líklegt að fallið verði frá nokkrum hugmyndum hans um heilbrigðismál. Þannig er ljóst að svokölluð skilyrði formanns þingflokks sjálfstæðismanna eru strax farin að hafa þvingandi áhrif á störf Alþingis.
Nú kunna skilyrði og afarkostir af þessu tagi að hafa misjöfn áhrif á þingmenn. En flutningsmanni líður eins og gísl í höndum flugræningja, enda fara slíkir hópar oft á kreik um jól í bæði sæmilegri og ósæmilegri sátt. Þannig miðar þessi tillaga ekki síst að því að losa Alþingi úr klóm pólitískra hryðjuverkamanna um jól.
Þann skamma tíma, sem flutningsmaður hefur setið á Alþingi, hefur hann stundum heyrt talað um virðingu Alþingis í ræðustóli. Oft er þessu slegið fram í málflutningi þegar rök eru á þrotum.
Það má vel spyrja nú hvort afarkostir af því tagi, sem Alþingi eru settir, séu samboðnir þeirri virðingu sem þingheimur vill halda.