Ferill 69. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1989. – 1059 ár frá stofnun Alþingis.
112. löggjafarþing. – 69 . mál.


Ed.

488. Frumvarp til lánsfjárlaga



fyrir árið 1990.

(Eftir 3. umr. í Nd., 22. des.)



    Samhljóða þskj. 427 með þessum breytingum:

23. gr. hljóðar svo:
    Þrátt fyrir ákvæði 1. og 2. mgr. 8. gr. og 26. gr. laga nr. 79/1985, um skipulag ferðamála, skal framlag ríkissjóðs til Ferðamálasjóðs og til sérstakra verkefna Ferðamálaráðs samkvæmt fyrrnefndum lögum eigi nema hærri fjárhæð en 48.600 þús. kr. á árinu 1990.

30. gr. hljóðar svo:
    Þrátt fyrir ákvæði 1. tölul. 10. gr. laga nr. 82/1989, um málefni aldraðra, skal framlag ríkissjóðs til Framkvæmdasjóðs aldraðra eigi vera hærra
en 205.000 þús. kr. á árinu 1990.