Ferill 281. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1989–90. – 1059 ár frá stofnun Alþingis.
112. löggjafarþing. – 281 . mál.


Sþ.

511. Fyrirspurn


til landbúnaðarráðherra um niðurskurð vegna riðuveiki.

Frá Elínu R. Líndal.


1.    Hefur riða verið staðfest á nýjum svæðum sl. þrjú ár? Ef svo er, þá hvar?
2.    Hafa áður þekkt riðusvæði stækkað með nýjum tilfellum sl. þrjú ár? Ef svo er, þá hver?
3.    a.    Hjá hve mörgum bændum hefur riðuniðurskurður verið framkvæmdur og hver er heildartala fjárins?
    b.    Hjá hve mörgum er bótasamningi lokið?
    c.    Hversu margir hafa hafið sauðfjárbúskap að nýju?
4.    Hefur bótasamningi eða framkvæmd hans verið breytt síðan skipulegur niðurskurður hófst?
5.    Er verðgildi bótanna sambærilegt nú og við upphaf baráttunnar við riðuveiki?
6.    Ætlar landbúnaðarráðherra að beita sér fyrir einhverjum breytingum á framkvæmd niðurskurðar eða bótasamninga?