Ferill 282. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1989–90. – 1059 ár frá stofnun Alþingis.
112. löggjafarþing. – 282 . mál.


Sþ.

512. Fyrirspurn


til utanríkisráðherra um viðbrögð ríkisstjórnarinnar í framhaldi af yfirlýsingu forsætisráðherra um brot sendiherra Bandaríkjanna á 41. gr. Vínarsáttmálans.

Frá Þorsteini Pálssyni.


    Hefur ríkisstjórnin litið á yfirlýsingu forsætisráðherra í umræðum á Alþingi 21. des. 1989, um að sendiherra Bandaríkjanna hafi farið út fyrir þau mörk sem hefð og 41. gr. Vínarsáttmálans setja sendimönnum erlendra ríkja, sem markleysu eða hafa einhver viðbrögð verið ákveðin í framhaldi af henni?