Ferill 285. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
1989–90. – 1059 ár frá stofnun Alþingis.
112. löggjafarþing. – 285 . mál.
Nd.
517. Frumvarp til laga
um bann við að farga matvælum.
Flm.: Ásgeir Hannes Eiríksson.
1. gr.
Bannað er að fleygja matvælum á Íslandi, urða þau eða brenna, kasta í sjó innan fiskveiðilögsögu, eða í ár og vötn, eða farga þeim á annan hátt hverju nafni sem nefnast.2. gr.
Með orðinu matvæli í lögum þessum er átt við viðurkennd matvæli til manneldis sem að öllu jöfnu fást keypt í verslunum og sölustöðum með verslunarleyfi, veitingaleyfi eða önnur opinber leyfi. Gildir þá einu hvort um er að ræða fisk og annað sjávarfang, vatnafiska úr sjó, ám eða vötnum; ávexti og grænmeti úr jörðu, af trjám eða úr gróðurhúsum; kjöt af dilkum, nautpeningi, hestum, svínum eða alifuglum og villibráð; af nýslátruðu eða frosið, reykt eða geymt á annan hátt; nýmjólk og mjólkurafurðir hvers konar og nýlenduvörur allar; önnur matvæli en að framan greinir og ekki eru talin hér upp, innlend eða innflutt, enda séu matvælin bæði ósýkt og óskemmd, ólöskuð að öðru leyti og söluhæf samkvæmt lögum og reglugerðum þar að lútandi. Sölutími sé ekki runninn út og engin ástæða til að ætla annað en um boðlega neysluvöru sé að ræða.3. gr.
Bannað er að farga matvælum skv. 2. gr. til að halda uppi verði þeirra til neytenda, vinnslustöðva, kaupmanna og annarra, eða til að rýma til fyrir nýjum birgðum.Bannað er að farga sjávarafla sem veiddur er af áhöfnum fiskiskipa hvers konar sem hafa leyfi íslenskra stjórnvalda til fiskveiða og löndunar hér á landi. Sama gildir um önnur skip sem heimildir hafa til að veiða í íslenskri fiskveiðilögsögu. Bannið gildir um hvers konar sjávarfang sem berst um borð í veiðiferðum skipanna og allt bendir til að sé boðleg söluvara til íslenskra neytenda eða til útflutnings. Með allan veiddan afla ber að koma að landi.
Á sama hátt er bannað að farga öllum öðrum matvælum nema til að losna við ónýta neyslu- eða söluvöru, enda sé það verk unnið samkvæmt úrskurði heilbrigðisfulltrúa, dýralækna, fiskmatsmanna eða annarra eftirlitsmanna hins opinbera á þessu sviði og þeim heimilt að fylgjast með þegar matvælunum er fargað.
4. gr.
Ef framleiðandi, ræktandi eða kaupmaður matvæla eða annar leyfishafi stendur frammi fyrir því að birgðir af matvælum hlaðast upp án þess að hann nái að selja þau á frjálsum markaði ber honum að gefa neytendum kost á að bjóða í vöruna á meðan hún er enn söluhæf.5. gr.
Dómsmálaráðuneytið skal setja reglugerð um nánari útfærslu á lögunum, þar á meðal um undanþágur sem taka til smyglvarnings og annarra matvæla sem farga þarf samkvæmt öðrum lögum. Lögin taka ekki til eðlilegrar rýrnunar um borð í veiðiskipum, hjá ræktendum, vinnslustöðvum, kaupmönnum, veitingahúsum og öðrum framleiðendum matvæla. Enn fremur skal í reglugerðinni kveðið nánar á um refsingu við brotum á lögunum. Þá skal í reglugerð kveðið á um hvernig selja á neytendum vörur skv. 4. gr.6. gr.
Viðurlög samkvæmt lögunum eru sektir sem nema a.m.k. tvöföldu andvirði þeirra matvæla sem fargað er í bága við lögin og mest tíföldu við ítrekað brot. Við ákvörðun sektar skal miðað við verð á þeim degi sem brot var framið. Ef sök er sönnuð en ekki unnt að meta andvirði hins fargaða á auðveldan hátt skal beita sektum sem ekki eru lægri en ein milljón króna. Við ítrekað brot skal brotamaður jafnframt sviptur rekstrarleyfum sínum, vinnsluleyfum, veiðileyfum, verslunarleyfum eða öðrum þeim leyfum sem heimila honum að meðhöndla matvæli. Heimilt er að dæma brotamenn í varðhald eða fangelsi til vara.7. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi.Greinargerð.
Það er glæpsamlegt að fleygja mat. Þetta frumvarp er flutt til að sporna við því að matvælum sé fleygt til að halda uppi verði og til að koma í veg fyrir að afla sé kastað fyrir borð eða matvælum fargað í öðrum tilgangi en að losna við ónýtan mat.
Það kemur alltaf öðru hverju fyrir að framleiðendur matvæla farga birgðum sínum til að halda uppi verði og rýma fyrir nýjum sendingum. Þannig voru mörg tonn af dilkakjöti urðuð á sorphaugum Reykjavíkur fyrir nokkrum árum. Bílhlöss af tómötum fóru sömu leið og fleiri dæmi eru til.
Menn, sem eru kunnugir fiskveiðum við landið, hafa sagt opinberlega frá því að smáfiski sé fleygt fyrir borð í veiðiferðum. Alltaf berast mönnum öðru hverju til eyrna sögur af þessu tagi. Sömu sögu er að segja um ýmis önnur matvæli sem fargað er í öðrum tilgangi en að losna við ónýta vöru.
Þetta gengur ekki lengur. Það er glæpsamlegt að fleygja mat. Íslendingar hafa að vísu nóg að bíta og brenna þessa stundina en stutt er síðan matur var munaður hér á landi og óvíst hvað framtíðin ber í skauti sér. Margt eldra fólk man því tímana tvenna og trúir ekki að óskemmdum mat sé fleygt á öskuhaugana eða fyrir borð; það trúir ekki eigin eyrum.
Matvæli eru dýr hér á landi bæði vegna of mikils kostnaðar við framleiðslu og of mikils innflutnings hjá fámennri þjóð. Þá er verði haldið háu með óhóflegum matarskatti og er sú stefna andstæð þeim markmiðum sem flestar aðrar menningarþjóðir keppa að. Þess vegna veitir landsmönnum ekki af þeim matvælum sem þeir framleiða og geta framleitt. Ef birgðir af matvælum hrannast upp í landinu er sjálfsagt að fólk fái að kaupa þær á lægra verði, á uppboði eða fái þær jafnvel að gjöf. Allt er betra en að fleygja þeim og með lagni er hægt að nýta hvert bein sem dregið er úr sjó.
Hér skal að vísu fúslega viðurkennt að ofát er jafnslæmt fyrir þjóðina og sultur. Best er meðalhófið en það næst seint með þeim öfgum að fleygja óskemmdum mat á öskuhaugana eða fyrir borð.