Ferill 129. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1989–90. – 1059 ár frá stofnun Alþingis.
112. löggjafarþing. – 129 . mál.


Nd.

534. Nefndarálit



um frv. til l. um breyt. á l. nr. 73 28. maí 1969, um Stjórnarráð Íslands.

Frá minni hl. allsherjarnefndar.



    Minni hl. er andvígur frumvarpinu og leggur til að það verði fellt. Ástæður þess eru eftirfarandi:
    Í fyrsta lagi er málsmeðferðin ófullnægjandi. Minni hl. hafði boðið upp á samstarf um afgreiðslu frumvarpsins ef 128. mál um yfirstjórn umhverfismála yrði afgreitt samtímis. Minni hl. getur ekki fallist á þá skoðun meiri hl. að samþykkja að stofna umhverfisráðuneyti án þess að ljóst sé hver verkefni það eigi að hafa. Það hljóti að fylgjast að og verði ekki með neinni skynsemi skilið í sundur.
    Í öðru lagi er minni hl. andvígur því að stofnað verði nýtt ráðuneyti umhverfismála en vill í stað þess að sett verði almenn lög um umhverfisvernd og samræming þeirra falin einu ráðuneyti, sbr. t.d. frumvarp um samræmda stjórn umhverfismála, 4. mál. Umhverfismál eru flókin og samofin flestum öðrum málaflokkum. Stjórn umhverfismála fléttast því inn í málefni sem heyra undir mörg ráðuneyti. Forðast ber að líta svo á að stjórnun sé forgangsverkefni í umhverfismálum. Skynsamlegra væri að auka framlög til framkvæmda á sviði umhverfismála en koma upp dýru stjórnkerfi.
    Í þriðja lagi telur minni hl. nefndarinnar að stefna beri að því að fækka ráðuneytum en ekki fjölga.

Alþingi, 31. jan. 1990.



Ólafur G. Einarsson,


fundaskr., frsm.


Friðjón Þórðarson.


Ingi Björn Albertsson.