Ferill 299. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1989–90. – 1059 ár frá stofnun Alþingis.
112. löggjafarþing. – 299 . mál.


Sþ.

535. Tillaga til þingsályktunar



um skipulega fræðslu og leiðsögn fyrir útlendinga sem taka sér búsetu á Íslandi.

Flm.: Danfríður Skarphéðinsdóttir, Anna Ólafsdóttir Björnsson, Guðrún Agnarsdóttir,


Kristín Einarsdóttir, Málmfríður Sigurðardóttir, Þórhildur Þorleifsdóttir.



    Alþingi ályktar að fela ríkisstjórninni að sjá um að útlendingar, sem taka sér búsetu á Íslandi, hljóti skipulega fræðslu og leiðsögn sem miði að því að auðvelda þeim að takast á við daglegt líf í íslensku umhverfi.
    Fræðslan skal einkum ná til eftirtalinna atriða:
—     kennslu í íslensku,
—     fræðslu um réttindi og skyldur íslenskra þjóðfélagsþegna,
—     fræðslu um íslenska þjóðfélagið og helstu stofnanir þess,
—     fræðslu um sögu landsins og staðhætti, íslenska menningu og þjóðlíf.

Greinargerð.


    Eins og sjá má á fylgiskjali með tillögu þessari er nú búsett á Íslandi fólk frá öllum heimsálfum, en auk þess hafa fjölmargir einstaklingar fengið íslenskan ríkisborgararétt síðari ár. Á allra síðustu árum hefur æ oftar komið í ljós að erlendar konur, sem giftast Íslendingum, virðast að ýmsu leyti vera verr settar en karlar hvað varðar það að tengjast og aðlagast íslensku þjóðfélagi. Einkum er þetta erfitt fyrir konur sem eru upprunnar í þjóðfélögum þar sem staða konunnar og viðhorf til kvenna er gjörólíkt því sem gerist hér á landi, þjóðfélögum þar sem er litið svo á að vettvangur konunnar sé eingöngu heimilið og engin félagsleg þjónusta er fyrir hendi.
    Þrátt fyrir þá staðreynd að staða kvenna hér á landi er allt önnur er ekki auðvelt fyrir þessar konur að brjótast undan því viðhorfi sem þær hafa vanist frá bernsku. Hlutskipti þeirra verður því oftar en ekki að einangrast við heimilisstörf.
    Af þessum sökum kynnast þær e.t.v. aðeins þröngum hópi fólks og leita sumar eingöngu eftir félagsskap við eigin landsmenn séu þeir til staðar. Þar eð engin upplýsinga- og fræðsluskylda er fyrir hendi hér á landi reynist þeim mjög erfitt að læra tungumálið og fæstar þekkja réttindi sín og skyldur og leita ekki eftir slíkri fræðslu af eigin hvötum. Við hjúskaparslit eða fráfall maka standa þær oft frammi fyrir vandamálum sem eru þeim óyfirstíganleg. Þó að flutningsmenn bendi hér sérstaklega á stöðu kvenna sem setjast að á Íslandi vegna hjúskapartengsla telja þeir að sjálfsögðu ekki síður nauðsynlegt að karlar frá fjarlægum löndum, sem kvænast íslenskum konum, fái haldgóðan skilning á þeim viðhorfum sem konur þeirra hafa alist upp við.
    Fyrsta desember 1989 bjuggu tæplega fimm þúsund erlendir ríkisborgarar á Íslandi. Starfsfólk erlendra sendiráða og erlendir þegnar á vegum Bandaríkjahers eiga ekki lögheimili hér á landi og fylla því ekki þennan hóp, sjá fylgiskjal. Samkvæmt upplýsingum Hagstofu Íslands frá 1. desember 1989 voru tæplega tíu þúsund manns búsettir á Íslandi sem eru fæddir erlendis, sjá fylgiskjal. Vitað er að nokkur hluti þess hóps eru börn íslenskra foreldra sem búið hafa erlendis um skeið. Ekki liggja fyrir aðgengilegar tölur um hve margir í þessum tæplega tíu þúsund manna hópi eru af erlendu bergi brotnir. Tölurnar sýna þó að hér á landi er búsettur stór hópur fólks sem á rætur sínar í öðrum og ólíkum samfélögum og síðari ár hefur þeim fjölgað sem öðlast hafa íslenskan ríkisborgararétt.
    Annars staðar á Norðurlöndum og í mörgum öðrum nágrannalöndum okkar telja stjórnvöld sér skylt að bjóða erlendu fólki sem flyst til landsins skipulega fræðslu og leiðsögn sem miði að því að það eigi auðveldara með að laga sig að samfélaginu og nýta sér þá þjónustu sem í boði er. Íslensk stjórnvöld hafa tekið á móti hópum flóttamanna og falið Rauða krossi Íslands umsjón með þeim meðan þeir eru að stíga sín fyrstu spor í framandi þjóðfélagi. Þannig hafa þeir sem hingað hafa komið í skipulögðum hópum notið nokkurrar kennslu í íslensku og leiðsagnar um íslenskt þjóðfélag.
    Þess má vænta að framhald verði á innflutningi fólks sem ekki á athvarf í sínu heimalandi en auk þess koma árlega fleiri eða færri einstaklingar til landsins á eigin vegum, ýmist vegna hjúskapartengsla, til náms eða í atvinnuleit. Með auknum samskiptum við umheiminn og bættum samgöngum hefur það aukist að miklum mun að fólk dveljist við nám í öðrum löndum og fjarlægum, auk þess sem Íslendingar hafa lagst í ferðalög til hinna fjarlægustu heimshluta. Einnig hefur athygli útlendinga beinst að Íslandi í auknum mæli. Áhugi á því
að kynnast landi og þjóð hefur orðið til þess að fólk frá öðrum löndum hefur flykkst hingað til náms og í atvinnuleit. Öll þessi samskipti hafa leitt til nánari kynningar og jafnvel hjúskapartengsla þannig að erlent fólk hefur sest hér að í sívaxandi mæli.
    Mjög mismunandi er hvernig fólk er undir það búið að laga sig að íslenskum aðstæðum. Í stuttu máli má segja að fólki reynist þetta því erfiðara því óskyldara sem tungumálið er íslensku og þjóðfélag þess ólíkara því íslenska. Lega landsins, loftslag og veðurfar hefur einnig mjög mikil áhrif.
    Sú fræðsla, sem hér er lagt til að fari fram, hlýtur að vera nauðsynleg öllu erlendu fólki sem hyggur á búsetu hér. Þekking á sögu og uppruna þjóðarinnar, réttindum og skyldum þegnanna og góð tök á íslenskri tungu hljóta að vera frumskilyrði þess að fólk, sem hér sest að, líti á sig sem raunverulega þátttakendur í samfélaginu. Erlent fólk, sem velur sér búsetu á Íslandi, stendur frammi fyrir margháttuðum erfiðleikum í því að samlagast þjóðlífi og þarf oft að leita eftir félagslegum stuðningi. Það ætti að vera stjórnvöldum metnaðarmál að leggja þessu fólki lið í viðleitni þess til að gerast góðir og gegnir þegnar í samfélagi okkar.



Fylgiskjal.


(Texti er ekki til tölvutækur.)