Ferill 317. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
1989–90. – 1059 ár frá stofnun Alþingis.
112. löggjafarþing. – 317 . mál.
Sþ.
559. Fyrirspurn
til heilbrigðisráðherra um aðgerðir vegna tillagna nauðgunarmálanefndar.
Frá Guðrúnu Agnarsdóttur.
1. Hvað hefur verið gert til að auka fræðslu í grunnnámi heilbrigðisstétta um kynferðisbrot, áhrif þeirra á brotaþola og meðferð þeirra?
2. Hafa verið haldin sérstök námskeið um kynferðisbrot fyrir starfsfólk heilbrigðisþjónustunnar og hefur slík fræðsla verið tekin upp sem hluti af reglubundinni endurmenntun starfsfólks heilbrigðisstétta?
3. Hvað hefur verið gert til að koma á fót neyðarmóttöku fyrir fórnarlömb nauðgana og annarra kynferðisbrota eins og nauðgunarmálanefnd lagði til í skýrslu sinni er skilað var í október 1988?
a. Hvar hefur neyðarmóttöku verið valinn staður?
b. Hefur starfsfólk verið ráðið sérstaklega að neyðarmóttöku og það undirbúið undir starf sitt þar?
c. Hvaða ráðstafanir hafa verið gerðar til að tengja starf neyðarmóttökunnar starfi annarra þeirra sem annast brotaþola í nauðgunarmálum og öðrum kynferðisbrotamálum?