Ferill 319. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
1989–90. – 1059 ár frá stofnun Alþingis.
112. löggjafarþing. – 319 . mál.
Sþ.
561. Fyrirspurn
til dómsmálaráðherra um breytingar á lögum um meðferð opinberra mála.
Frá Guðrúnu Agnarsdóttur.
Hyggst dómsmálaráðherra leggja fram frumvarp til laga um:
1. að þolendur kynferðisbrota öðlist fortakslausan rétt til endurgjaldslausrar aðstoðar löglærðs talsmanns allt frá upphafi rannsóknar og þar til meðferð máls lýkur,
2. að vikið verði frá frjálsu sönnunarmati varðandi fyrri kynferðishegðun brotaþola í nauðgunarmálum eins og þegar hefur verið gert meðal margra annarra ríkja,
3. að tilgreint verði tæmandi í lögum hvenær ákæruvaldið megi falla frá saksókn í nauðgunarmálum; einnig að sett verði ákvæði um rökstuðning fyrir niðurfellingu í nauðgunarmálum og hverjum hún skuli kynnt,
4. að brotaþoli í nauðgunarmálum öðlist skýlausan rétt til að krefjast þess að með mál verði farið fyrir luktum dyrum,
5. að heimiluð verði skýrslutaka af brotaþola án návistar hins brotlega,
6. að ákveðnar reglur verði settar um fortakslaust fréttabann á persónulegar upplýsingar um brotaþola nema knýjandi nauðsyn sé til þess að birta slíkar upplýsingar opinberlega,
7. að brotaþola/konu verði tryggð greiðsla þeirra bóta, sem dómstólar dæma henni, með því að ríkissjóður greiði henni bæturnar og endurkrefji síðan dómþola?