Ferill 116. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1989–90. – 1059 ár frá stofnun Alþingis.
112. löggjafarþing. – 116 . mál.


Sþ.

599. Breytingartillögur



við till. til þál. um könnun á áhrifum steinatöku í náttúru Íslands og hertar reglur í þeim efnum til náttúruverndar.

Frá félagsmálanefnd.



1.    Tillgr. orðist svo:
         Alþingi ályktar að fela ríkisstjórninni að láta Náttúrufræðistofnun Íslands kanna áhrif af steinatöku og söfnun steingervinga á náttúru Íslands og gera í framhaldi af því, að höfðu samráði við Náttúruverndarráð, tillögur um aðgerðir til náttúruverndar á þessu sviði eftir því sem þörf er talin á.
2.         Fyrirsögn till. verði: Till. til þál. um könnun á áhrifum af steinatöku og söfnun steingervinga.