Ferill 360. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
1989–90. – 1059 ár frá stofnun Alþingis.
112. löggjafarþing. – 360 . mál.
Sþ.
617. Fyrirspurn
til utanríkisráðherra um lendingar- og þjónustugjöld á Keflavíkurflugvelli.
Frá Ólafi Þ. Þórðarsyni.
1. Mun ráðherrann beita sér fyrir endurskoðun á gjaldskrá um lendingar- og þjónustugjöld á Keflavíkurflugvelli og samræmingu þeirra við gjaldskrár samkeppnisflugvalla?
2. Er þess að vænta að afgreiðsla á Keflavíkurflugvelli verði færð í hendur hlutlausra aðila sem stuðli að auknum umsvifum á vellinum?