Ferill 129. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1989–90. – 1059 ár frá stofnun Alþingis.
112. löggjafarþing. – 129 . mál.


Ed.

633. Nefndarálit



um frv. til l. um breyt. á l. nr. 73 28. maí 1969, um Stjórnarráð Íslands.

Frá 1. minni hl. allsherjarnefndar.



    Frumvarp þetta um breytingu á lögum um Stjórnarráð Íslands felur það eitt í sér að stofnað verði sérstakt ráðuneyti umhverfismála.
    Kvennalistakonur hafa frá upphafi lagt mikla áherslu á úrbætur í umhverfismálum og verið þeirrar skoðunar að nauðsyn beri til að hafa sérstakt ráðuneyti umhverfismála. Þingkonur Kvennalistans hafa alla tíð reynt að vinna því máli brautargengi á Alþingi og lögðu m.a. fram ítarlega tillögu um það efni á 111. löggjafarþingi þar sem fram kemur hvernig þær vilja sjá málum borgið í slíku ráðuneyti.
    Í lok 111. löggjafarþings kom loks fram stjórnarfrumvarp um stofnun umhverfisráðuneytis og starfssvið þess. Kvennalistakonur lýstu stuðningi við það frumvarp enda þótt það væri í raun ófullburða og gengi miklu skemur en þær hefðu kosið. Málinu var síðan vísað til sérstakrar nefndar sem vann að því á milli þinga og átti fulltrúi frá Kvennalistanum sæti í þeirri nefnd.
    Niðurstaða nefndarinnar var að skipta málinu í tvennt, þ.e. frumvarp það sem hér um ræðir um einfalda breytingu á stjórnarráðslögunum og annað frumvarp, 128. mál, sem skilgreindi verkefni umhverfisráðuneytis. Svo sem vænta mátti hefur reynst erfitt að ná samkomulagi um hið síðarnefnda. Um starfssvið umhverfisráðuneytis eru mjög skiptar skoðanir, ekkert síður innan stjórnarflokkanna en annarra.
    Fyrsti minni hl. er þeirrar skoðunar að það veiki verulega grundvöllinn undir ásættanlegu samkomulagi um meginmál þessarar stjórnkerfisbreytingar ef umhverfisráðuneyti verður stofnað áður en slíku samkomulagi er náð.
    Þegar þetta frumvarp var afgreitt frá nefndinni var frumvarpið um verkefni umhverfisráðuneytisins enn í umfjöllun allsherjarnefndar neðri deildar. Ljóst er að í neðri deild munu koma fram breytingartillögur við það en á þessari stundu er ekki vitað í hverju þær felast. Því er með öllu ófrágengið verkefni hins nýja ráðuneytis.
    Fyrsti minni hl. telur það lýsa fullkomnu ábyrgðarleysi og vanvirðu ríkisstjórnarflokkanna við málefnið að þröngva fram afgreiðslu þessa frumvarps án þess að ljóst sé hvaða verkefni hinu nýja ráðuneyti verða falin.
    Kvennalistakonur vilja koma á fót raunverulegu umhverfisráðuneyti málefnisins vegna og telja því nauðsynlegt að um leið og slíkt ráðuneyti verði stofnað fái það ákveðin verkefni og þann sess í stjórnarkerfinu sem því ber.
    Ríkisstjórnin hefur með afgreiðslu þessa máls misst sjónar á því sem ætti að vera aðaltilgangurinn með stofnun umhverfisráðuneytis — að koma betra skipulagi á stjórn umhverfismála með markvissa umhverfisvernd í huga. Það eru kvennalistakonum mikil vonbrigði að geta ekki greitt stofnun umhverfisráðuneytis atkvæði sitt á Alþingi.
    Fyrsti minni hl. telur að stofnun umhverfisráðuneytis sé fyrsta skrefið í átt til þess að umhverfismál skipi verðugan sess í stjórnkerfi landsins. Umhverfisráðuneyti án verkefna er hins vegar umbúðirnar einar og sér 1. minni hl. sér því ekki fært að taka þátt í afgreiðslu þessa frumvarps.

Alþingi, 20. febr. 1990.



Danfríður Skarphéðinsdóttir.