Ferill 377. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
1989–90. – 1059 ár frá stofnun Alþingis.
112. löggjafarþing. – 377 . mál.
Sþ.
650. Fyrirspurn
til dómsmálaráðherra um stimpilgjöld.
Frá Önnu Ólafsdóttur Björnsson.
1. Hver er ástæða misræmis í túlkun bæjarfógeta í Reykjavík og Kópavogi annars vegar og hins vegar í Hafnarfirði um skyldu hjóna og sambúðarfólks til að greiða stimpilgjöld af yfirlýsingu sambúðarfólks vegna fasteigna sem annar aðilinn er skráður fyrir þegar óskað er eftir að nafni hins sé bætt við þannig að skráning taki til beggja aðila?
2. Hvernig er þessum málum háttað annars staðar á landinu?
3. Hvernig ber að mati dómsmálaráðherra að túlka lög um stimpilgjöld í þessu tilliti?