Ferill 265. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
1989–90. – 1059 ár frá stofnun Alþingis.
112. löggjafarþing. – 265 . mál.
Nd.
668. Nefndarálit
um frv. til l. um ábyrgðadeild fiskeldislána.
Frá meiri hl. fjárhags- og viðskiptanefndar.
Nefndin hefur fjallað um frumvarpið og fékk á sinn fund til viðræðna um það Snorra Olsen og Sveinbjörn Óskarsson frá fjármálaráðuneytinu, Friðrik Sigurðsson frá Landssambandi fiskeldis- og hafbeitarstöðva, Kristin Zimsen frá Búnaðarbanka Íslands, Jón Snorra Snorrason frá Landsbanka Íslands og Snorra Tómasson frá Framkvæmdasjóði Íslands.
Nefndin klofnaði í afstöðu sinni til málsins. Meiri hl. leggur til að frumvarpið verði samþykkt með breytingum sem fluttar eru tillögur um á sérstöku þingskjali. Breytingarnar eru eftirtaldar:
1. Við 2. gr.
a. Lagt til að hin nýja ábyrgðadeild hafi heimild til að veita 50% ábyrgð. Sú tillaga er byggð á reynslu af viðskiptum banka og fiskeldisfyrirtækja á undanförnum missirum. Komi til þess að bankar dragi úr lánum sínum, eða krefjist mjög aukinna trygginga, gæti ella svo farið að eldislán lækkuðu mjög og eldisfyrirtækin stæðu verr eftir samþykkt frumvarpsins en áður. Með breytingartillögunni er hins vegar stigið skref í þátt átt að tryggja eldisfyrirtækjum sambærileg afurðalán og tíðkast í helstu samkeppnislöndum okkar.
b. Nauðsynlegt er álitið að telja það hlutverk sjóðsins að veita hafbeitarfyrirtækjum eldislánaábyrgð fremur en að heimild sé aðeins til slíks.
2. Við 3. gr.
a. Þessi breyting er sú sama og nefnd er hér fyrr í a-lið 1. tölul., þ.e. hækkunin úr 37,5% í 50%.
b.–e. Lagt er til að sólarlagsákvæðin séu lengd um eitt ár, þ.e. fjögur ár í stað þriggja. Þetta byggist á því að unnt verði á ábyrgðartíma að ljúka eldisferli og framleiða stærri lax, 4–6 kg, sem eykur mjög hagkvæmni eldisstöðvanna.
3. Við 4. gr. Með breytingu á orðinu „vátryggingar“ í „tryggingar“ er víðara hugtak notað, enda getur verið nauðsynlegt að setja skilyrði um fleiri tryggingar en vátryggingar.
4. Við 6. gr. Lagt er til að 2. málsl. greinarinnar falli brott. Fjármálaráðherra og sjóðsstjórn ákveða iðgjöld. Lagagrein um að deildin skuli rekin hallalaus setur þá ábyrgð á sjóðsstjórn að leggja til nógu há iðgjöld. Reynslan frá Tryggingasjóði fiskeldislána er 7% iðgjald og 7% áhættugjald eða samtals 14% gjald. Iðgjaldsupphæðin er þá ákveðin að hluta með líkindareikningi og öryggisstuðli þannig að ekki komi til halli á rekstri sjóðsins. Líkur benda sterklega til að þetta ákvæði leiði til hærra iðgjalds en ella er þörf á einmitt í byrjun þegar þessi atvinnugrein er í þröngri stöðu.
5. Við 8. gr. Lagt er til að hin nýja ábyrgðadeild taki við ábyrgðum Framkvæmdasjóðs. Nú eru mál þannig að Tryggingasjóður fiskeldislána veitir einfalda ábyrgð en Framkvæmdasjóður veitir sjálfskuldarábyrgð með bakábyrgð Tryggingasjóðs. Samkvæmt frumvarpinu tekur ábyrgðadeildin við hlutverki Tryggingasjóðs fiskeldislána, þ.e. heldur ábyrgðinni gagnvart Framkvæmdasjóði. Eðlilegra er að nýja ábyrgðadeildin taki við málinu í heild og millibilshlutverki Framkvæmdasjóðs í þessu máli ljúki.
Alþingi, 23. febr. 1990.
Friðrik Sophusson,
frsm.
Þórhildur Þorleifsdóttir,
fundaskr.
Matthías Bjarnason.
Guðmundur G. Þórarinsson.