Ferill 265. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1989–90. – 1059 ár frá stofnun Alþingis.
112. löggjafarþing. – 265 . mál.


Nd.

669. Breytingartillögur



við frv. til l. um ábyrgðadeild fiskeldislána.

Frá meiri hl. fjárhags- og viðskiptanefndar (FrS, ÞÞ, MB, GGÞ).



1.    Við 2. gr.
    a.    Í stað „37,5%“ í 2. málsl. komi: 50%.
    b.    Í stað orðanna „Heimilt er“ í upphafi 4. málsl. komi: Hlutverk sjóðsins er einnig.
2.    Við 3. gr.
    a.    Í stað „37,5%“ í 1. málsl. komi: 50%.
    b.    Í stað orðanna „þrjú ár“ í 1. málsl. komi: fjögur ár.
    c.    Í stað orðanna „þremur árum“ í 2. málsl. komi: fjórum árum.
    d.    Í stað orðsins „þriðjung“ í 2. málsl. komi: fjórðung.
    e.    Í stað orðanna „sex ár“ í 3. málsl. komi: átta ár.
3.    Við 4. gr. Í stað orðsins „vátryggingar“ í 1. og 2. málsl. komi: tryggingar.
4.    Við 6. gr. 2. málsl. falli brott.
5.    Við 7. gr. Í stað orðsins „vátryggingar“ komi: tryggingar.
6.    Við 8. gr. Við 2. mgr. bætist: Ábyrgðir Framkvæmdasjóðs Íslands, sem byggjast á einfaldri ábyrgð Tryggingasjóðs fiskeldislána, falla niður samhliða því að Tryggingasjóður fiskeldislána er lagður niður.