Ferill 390. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1989–90. – 1059 ár frá stofnun Alþingis.
112. löggjafarþing. – 390 . mál.


Sþ.

684. Fyrirspurn



til fjármálaráðherra um greiðslu vaxta af ofgreiddum sköttum.

Frá Guðmundi Ágústssyni.



1.     Hvernig er háttað framkvæmd á greiðslu vaxta af ofgreiddum sköttum, sbr. 2. mgr. 112. gr. laga nr. 75/1981?
2.     Er hugsanlegt að gjaldendur, sem ofgreitt hafa skatta, m.a. vegna rangrar álagningar skattstjóra, þurfi að óska sérstaklega eftir því að fá vexti fyrir það tímabil sem féð var í vörslu ríkissjóðs?
3.     Er hugsanlegt að þeir gjaldendur, sem ekki átta sig á rétti sínum til vaxta, fái aldrei leiðréttingu þrátt fyrir ótvíræð ákvæði laganna um að endurgreiða skuli?
4.     Er framkvæmd þessa lagaákvæðis eins hjá öllum innheimtumönnum ríkissjóðs?
5.     Hafi orðið misbrestur á framkvæmd laganna að þessu leyti, hefur fjármálaráðherra þá í hyggju að beita sér fyrir leiðréttingu þeim til handa sem ekki hafa fengið greidda vexti svo sem vera ber?