Ferill 396. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1989–90. – 1059 ár frá stofnun Alþingis.
112. löggjafarþing. – 396 . mál.


Sþ.

692. Tillaga til þingsályktunar



um könnun á magni endurnýtanlegs pappírs, söfnun hans og endurnýtingu.

Flm.: Svanfríður Jónasdóttir, Margrét Frímannsdóttir.



    Alþingi ályktar að fela umhverfisráðherra að láta kanna hve mikið fellur til árlega af endurnýtanlegum pappír og með hvaða hætti væri unnt að safna honum skipulega saman og endurnýta.

Greinargerð.


    Á árinu 1989 voru flutt til landsins 15.173,3 tonn af pappír. Sáralítið af því magni hefur verið endurnýtt. Ýmsir aðilar hafa verið með tilburði í þá átt að safna saman pappír til útflutnings eða endurvinnslu, en nú er einungis einn aðili sem safnar pappírsúrgangi og endurvinnur, þ.e. fyrirtækið Silfurtún hf. Þar eru framleiddir eggjabakkar og plöntuhlífar úr afskurði frá prentsmiðjum og stefnir nú í að með þeim hætti verði á þessu ári nýtt 200 tonn af pappírsúrgangi sem ella hefðu farið á haugana. Tvö hundruð tonn eru lítill hluti af öllum þeim pappír sem árlega er fluttur til landsins og fullyrða má að mun meira mætti nýta til endurvinnslu ef skipulega yrði staðið að könnun á því sem til fellur af endurnýtanlegum pappírsúrgangi, með hvaða hætti væri unnt að safna honum saman og þeim möguleikum sem eru á framleiðslu úr endurnýtanlegum pappír.
    Vaxandi fjölda fólks ofbýður sú sóun sem á sér stað daglega á auðlindum jarðar. Við Íslendingar höfum ekki enn verið knúnir til alvarlegrar umhugsunar um afleiðingar þeirrar græðgi sem felst í lífsmunstri og venjum okkar Vesturlandabúa. Á því er þó að verða breyting. Þótt helstu auðlindir okkar séu endurnýjanlegar og mengun sé lítil miðað við þéttbýl iðnríki er vaxandi skilningur á nauðsyn þess að staldra við og reyna að bæta fyrir þau spjöll, sem unnin hafa verið á náttúru landsins, og koma í veg fyrir frekari eyðileggingu.
    Ýmsar aðrar þjóðir, sem daglega horfa upp á og finna áþreifanlega fyrir afleiðingum tillitslausrar umgengni við umhverfið, hafa með ýmsum ráðum reynt að sporna við frekari eyðileggingu og sóun. Liður í þeirri viðleitni eru markvissar aðgerðir til endurnýtingar þeirra efna og gæða sem endurnýtanleg eru.
    Hér á landi var stigið skref í rétta átt þegar farið var að safna notuðum drykkjarvöruumbúðum til endurvinnslu. Næsta skref ætti að vera skipuleg söfnun pappírs til endurnýtingar. Með slíkum aðgerðum er ekki aðeins verið að bjarga verðmætum, heldur felst í slíkri viðleitni ákveðið viðhorf og heilbrigð siðferðiskennd gagnvart náttúruauðlindum sem ekki hvað síst hafa gildi fyrir uppvaxandi kynslóð.