Ferill 403. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1989–90. – 1059 ár frá stofnun Alþingis.
112. löggjafarþing. – 403 . mál.


Ed.

703. Frumvarp til laga



um breytingu á lögum nr. 51 29. maí 1981, um varnir gegn sjúkdómum og meindýrum á plöntum.

(Lagt fyrir Alþingi á 112. löggjafarþingi 1989–90.)



1. gr.

    Við 3. gr. laganna bætist ný málsgrein er verði 2. mgr., svohljóðandi:
    Til að standa straum af kostnaði við eftirlit með innflutningi plantna samkvæmt lögum þessum er ráðherra heimilt að láta innheimta sérstakt eftirlitsgjald af öllum innfluttum plöntum og má gjaldið vera tiltekin krónutala á hverja þyngdareiningu eða hlutfall af tollverði vörunnar. Þó má eftirlitsgjaldið aldrei vera hærra en nemur 2% af tollverði vörunnar. Eftirlitsgjald þetta má taka lögtaki. Ráðherra setur í reglugerð nánari ákvæði um gjaldskyldu, innheimtu, gjalddaga, lögvernd og annað er lýtur að framkvæmd á innheimtu gjaldsins. Þá setur ráðherra í reglugerð ákvæði um eftirlitsgjald á útfluttar plöntur.

2. gr.

    Lög þessi öðlast þegar gildi.


Athugasemdir við lagafrumvarp þetta.


    Í lögum nr. 51 29. maí 1981, um varnir gegn sjúkdómum og meindýrum á plöntum, er m.a. gert ráð fyrir því að reynt sé að koma í veg fyrir að hættulegir skaðvaldar berist til landsins og dreifist innan lands, svo og að þeim skaðvöldum, sem þegar hafa borist til landsins, verði útrýmt ef það telst framkvæmanlegt. Eru landbúnaðarráðherra veittar ýmsar heimildir samkvæmt lögunum í þessu skyni, þar á meðal að kveða á um eftirlit með inn- og útflutningi og dreifingu innan lands á öllum tegundum plantna, mold, húsdýraáburði o.fl. sem borið getur sjúkdóma og meindýr í plöntur. Eftirlit þetta hefur Rannsóknastofnun landbúnaðarins á hendi samkvæmt ákvörðun ráðherra í reglugerð.
    Reynslan sýnir að skaðvaldar, sem borist hafa til landsins með innfluttum plöntum, hafa valdið verulegu tjóni í ræktun hér á landi. Má í því sambandi nefna bakteríusjúkdóminn hringrot í kartöflum og skordýrið „ameríska blómatripsið“ í gróðurhúsum, sem valdið hafa verulegu tjóni og kostnaði við útrýmingaraðgerðir. Á síðasta ári var óskað eftir sérstakri fjárveitingu að upphæð 6 millj. kr. til að auðvelda útrýmingu á „ameríska blómatripsinu“ sem áður er nefnt, án þess að það væri samþykkt.
    Telja verður eðlilegt að lög um varnir gegn sjúkdómum og meindýrum á plöntum veiti svigrúm til að leggja sérstakt eftirlitsgjald á innfluttar plöntur, eins og þær eru skilgreindar í lögunum, þannig að innflutningur þessara vörutegunda beri að einhverju eða öllu leyti þann kostnað sem af eftirliti leiðir. Slíkt gjald er jafnframt nauðsynlegt til að unnt sé að efla það eftirlit, sem nú er með slíkum innflutningi, en mikilvægi þess þarf vart að tíunda nánar. Heimild til gjaldtöku þeirrar, sem frumvarp þetta miðar að, skortir í áðurnefnd lög nr. 51 29. maí 1981 og því er frumvarp þetta flutt.
    Fordæmi er fyrir gjaldtöku sem þessari í lögum nr. 53 16. maí 1978, um eftirlit með framleiðslu á fóðurvörum, áburði og sáðvöru og verslun með þær vörur. Í 23. og 24. gr. þeirra laga er kveðið á um gjaldskyldu innflutningsaðila og framleiðenda á vörunum til eftirlitssjóðs Rannsóknastofnunar landbúnaðarins og miðast gjaldtakan við að standa undir óhjákvæmilegum kostnaði við framkvæmd eftirlits.
    Gert er ráð fyrir því að eftirlitsgjaldið sé annað tveggja tiltekin krónutala á hverja þyngdareiningu eða hlutfall af tollverði vörunnar. Er innheimtu þess fyrst og fremst ætlað að ná til innfluttra blómlauka, græðlinga, pottaplantna, trjáa og runna, afskorinna blóma, jólatrjáa, kartaflna og fersks grænmetis í 6. og 7. kafla tollskrár. Ekki er ætlunin að innheimta gjaldið af innfluttum ávöxtum vegna plöntusjúkdóma, enda verður að líta svo á að eftirlit þeirra vegna snúist fyrst og fremst um ýmis aðskotaefni. Á sama hátt er ekki ætlunin að innheimta eftirlitsgjaldið af frystum og þurrkuðum matjurtum.
    Í 1. gr. frumvarpsins er sá varnagli að gjaldið verði aldrei hærra en sem nemur 2% af tollverði vörunnar. Þá er í greininni gert ráð fyrir að ráðherra setji í reglugerð fyllri ákvæði varðandi gjaldskyldu og önnur atriði er lúta að framkvæmd á innheimtu eftirlitsgjaldsins.