Ferill 404. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1989–90. – 1059 ár frá stofnun Alþingis.
112. löggjafarþing. – 404 . mál.


Sþ.

704. Tillaga til þingsályktunar



um heillaóskir til litáísku þjóðarinnar í tilefni sjálfstæðisyfirlýsingar hennar.

Frá utanríkismálanefnd.



    Alþingi ályktar að senda litáísku þjóðinni heillaóskir vegna sjálfstæðisyfirlýsingar Litáens sem þjóðþingið samþykkti í gær.
    Alþingi telur að sjálfsforræði þjóða með lýðræðiskjörnum þingum sé grundvöllur frjálsra samskipta og stuðli að friði í heiminum.
    Alþingi fagnar því endurheimt sjálfstæðis Litáens og væntir góðrar samvinnu við lýðræðiskjörna fulltrúa þess.

Greinargerð.


    Þing Litáens samþykkti í gær yfirlýsingu um endurheimt sjálfstæðis landsins. Á fundi utanríkismálanefndar í morgun var einróma samþykkt af því tilefni að flytja þingsályktunartillögu þessa.