Ferill 128. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1989–90. – 1059 ár frá stofnun Alþingis.
112. löggjafarþing. – 128 . mál.


Nd.

708. Nefndarálit



um frv. til l. um breyt. á l. nr. 47 16. apríl 1971, um náttúruvernd, l. nr. 20 30. apríl 1986, um Siglingamálastofnun ríkisins, og ýmsum lögum er varða yfirstjórn umhverfismála.

Frá meiri hl. allsherjarnefndar.



    Nefndin óskaði eftir áliti fjölmargra aðila um frumvarpið og bárust umsagnir frá Almannavörnum ríkisins, Bjarna Guðleifssyni, dr. sci., borgarlækni, Búnaðarfélagi Íslands, Bændaskólanum á Hólum, Bændaskólanum á Hvanneyri, Dýralæknafélagi Íslands, eiturefnanefnd, Félagi íslenskra iðnrekenda, Félagi íslenskra náttúrufræðinga, félagsmálaráðuneytinu, Ferðamálaráði Íslands, Fjárlaga- og hagsýslustofnun, Geislavörnum ríkisins, Hafrannsóknastofnun, heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytinu, Heilbrigðisfulltrúafélagi Íslands, Hinu íslenska náttúrufræðifélagi, Hjörleifi Guttormssyni alþingismanni, Hollustuvernd ríkisins, iðnaðarráðuneytinu, Jarðfræðafélagi Íslands, landbúnaðarráðuneytinu, Landgræðslu ríkisins, landlækni, Landmælingum Íslands, Landvernd, Lífi og landi, Líffræðistofnun Háskólans, menntamálaráðuneytinu, Náttúrufræðistofnun Íslands, Náttúruverndarráði, Orkustofnun, Rannsóknaráði ríkisins, Rannsóknastofnun landbúnaðarins, Rannsóknastöð Skógræktar ríkisins að Mógilsá, röntgendeildum Landspítalans, Borgarspítalans og Landakotsspítala, Röntgentæknafélagi Íslands, Sambandi íslenskra sveitarfélaga, samgönguráðuneytinu, Siglingamálastofnun ríkisins, Skipulagi ríkisins, Skógrækt ríkisins, Skógræktarfélagi Íslands, Stéttarsambandi bænda, Veðurstofu Íslands, Vinnueftirliti ríkisins, Vísindaráði, yfirdýralækninum í Reykjavík, Þjóðminjasafni Íslands. Auk þess hafði nefndin til athugunar umsagnir sem bárust allsherjarnefnd á síðasta þingi um þau frumvörp um yfirstjórn umhverfismála er þá lágu fyrir og umsagnir þær sem bárust nefnd þeirri sem samdi frumvarp það sem nú er til umfjöllunar.
    Nefndin hefur kannað rækilega þau atriði frumvarpsins sem mestur ágreiningur er um og kallað til viðræðna við nefndina þá aðila sem málið varðar mest. Þeir eru Hermann Sveinbjörnsson, stjórnarformaður Hollustuverndar ríkisins, Leifur Eysteinsson, framkvæmdastjóri Hollustuverndar ríkisins, Þórhallur Halldórsson, forstöðumaður heilbrigðiseftirlits Hollustuverndar ríkisins, Ólafur Pétursson, forstöðumaður mengunarvarnasviðs Hollustuverndar ríkisins, Guðlaugur Hannesson, forstöðumaður rannsóknarstofu Hollustuverndar ríkisins, Daníel Viðarsson, forstöðumaður eiturefnasviðs Hollustuverndar ríkisins, Páll Bergþórsson veðurstofustjóri, Magnús Jóhannesson siglingamálastjóri, Gunnar Ágústsson, forstöðumaður mengunarvarnasviðs Siglingamálastofnunar ríkisins, Páll Sigurðsson, ráðuneytisstjóri í heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytinu, Sigurður M. Magnússon, forstöðumaður Geislavarna ríkisins, Guðjón Magnússon, stjórnarmaður í Geislavörnum ríkisins, Ólafur Ólafsson landlæknir, Jón Loftsson skógræktarstjóri, Sveinn Runólfsson landgræðslustjóri, Jón Gunnar Ottósson, forstöðumaður Rannsóknastöðvar Skógræktar ríkisins að Mógilsá, Sveinbjörn Dagfinnsson, ráðuneytisstjóri í landbúnaðarráðuneytinu, Þór Magnússon þjóðminjavörður, Páll Hersteinsson veiðistjóri, Ágúst Guðmundsson, forstjóri Landmælinga Íslands, Þorsteinn Tómasson, forstöðumaður Rannsóknastofnunar landbúnaðarins, Jónas Jónsson búnaðarmálastjóri, Hjörtur E. Þórarinsson, formaður Búnaðarfélags Íslands, Bjarni Guðráðsson frá Búnaðarfélagi Íslands, Einar Þorsteinsson frá Búnaðarfélagi Íslands og Birgir Blöndal, skrifstofustjóri Sambands íslenskra sveitarfélaga.
    Ljóst er að skiptar skoðanir eru um tilflutning stofnana á milli ráðuneyta. Hluti vandans felst í því að verkefni margra stofnana eru fjölþætt og ekki er hægt að telja alla þætti starfseminnar beint til umhverfismála. Einnig er vandasamt að kljúfa stofnanir upp með tilliti til ólíkra verkefna og tryggja að verksvið þeirra eða ráðuneyta skarist ekki. Hefur meiri hl. nefndarinnar kannað sérstaklega hvort unnt væri að skilja á milli mengunarvarnasviðs og heilbrigðiseftirlits Hollustuverndar ríkisins með því að kljúfa stofnunina upp. Í ljós kom að á því eru margir vankantar og ókostirnir fleiri en kostirnir. Ekki reyndist heldur unnt að láta mengunarvarnasviðið heyra undir umhverfisráðherra, en önnur svið undir heilbrigðis- og tryggingarmálaráðherra, á svipaðan hátt og frumvarpið gerir ráð fyrir að mengunarvarnasvið Siglingamálastofnunar ríkisins heyri undir umhverfisráðherra, en önnur svið stofnunarinnar undir samgönguráðherra.
    Tilgangur með stofnun umhverfisráðuneytis er m.a. sá að gera umhverfismálum hærra undir höfði innan stjórnsýslunnar en verið hefur og tryggja samræmi í yfirstjórn þeirra. Með skírskotun til þess telur meiri hl. nefndarinnar rétt að þær stofnanir, sem frumvarpið fjallar um, flytjist undir yfirstjórn umhverfisráðuneytis, að undanskilinni húsafriðunarnefnd. Með því eykst umhverfisþátturinn í starfi stofnana á næstu árum, þótt ekki megi vanrækja aðra þætti sem gætu eins átt undir önnur ráðuneyti en umhverfisráðuneyti.
    Meiri hl. nefndarinnar leggur til að frumvarpið verði samþykkt með eftirfarandi breytingum sem gerð er tillaga um á sérstöku þingskjali.
    Í fyrsta lagi er lagt til að lokamálsgrein 1. gr. verði breytt á þann veg að umhverfisráðherra beri að leita samráðs við landbúnaðarráðherra um friðunar- og uppgræðsluaðgerðir á sviði gróður- og skógverndar.
    Í öðru lagi er lagt til að 21. gr falli brott. Meiri hl. nefndarinnar telur rétt að húsafriðunarmálefni og húsafriðunarnefnd heyri áfram undir menntamálaráðuneytið.
    Í þriðja lagi er lagt til að við bætist bráðabirgðaákvæði, sem áður var í 129. máli, um Stjórnarráð Íslands, þó með þeirri breytingu að einungis er gert ráð fyrir endurskoðun laga um landgræðslu og skógrækt.
    Í fjórða lagi eru tvær breytingar tæknilegs eðlis. Lagt er til að breytt verði tilvísun 1. mgr. 1. gr og einnig gildistökuákvæði frumvarpsins í 22. gr.

Alþingi, 12. mars 1990.



Jón Kristjánsson,


form., frsm.


Guðni Ágústsson,


með fyrirvara.


Aðalheiður Bjarnfreðsdóttir.


Sighvatur Björgvinsson.