Ferill 128. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1989–90. – 1059 ár frá stofnun Alþingis.
112. löggjafarþing. – 128 . mál.


Nd.

709. Breytingartillögur



við frv. til l. um breyt. á l. nr. 47 16. apríl 1971, um náttúruvernd, l. nr. 20 30. apríl 1986, um Siglingamálastofnun ríkisins, og ýmsum lögum er varða yfirstjórn umhverfismála.

Frá meiri hl. allsherjarnefndar (JK, AðB, GuðnÁ, SighB).




1.    Við 1. gr.
    a.    1. mgr. orðist svo:
             Við 7. gr. laga nr. 47 16. apríl 1971, um náttúrurvernd, sbr. lög nr. 29 10. maí 1989, bætast þrjár nýjar málsgreinar er orðist svo.
    b.    4. mgr. orðist svo:
             Umhverfisráðherra getur, að fengnum tillögum Náttúruverndarráðs og í samráði við landbúnaðarráðherra, ákveðið friðunar- og uppgræðsluaðgerðir á sviði gróður- og skógverndar skv. 5. og 6. mgr.
2.    21. gr. falli brott.
3.    22. gr. orðist svo:
         Lög þessi öðlast þegar gildi.
4.    Við bætist svofellt ákvæði til bráðabirgða:
    Fyrir 1. nóvember 1990 skal umhverfisráðherra í samráði við landbúnaðarráðuneyti beita sér fyrir endurskoðun á lögum um Landgræðslu ríkisins, nr. 17/1965, og Skógrækt ríkisins, nr. 3/1955, með síðari breytingum.