Ferill 405. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1989–90. – 1059 ár frá stofnun Alþingis.
112. löggjafarþing. – 405 . mál.


Sþ.

710. Fyrirspurn



til samgönguráðherra um skipulagðar hópferðir erlendra aðila um hálendi Íslands.

Frá Danfríði Skarphéðinsdóttur.



    Hvernig hyggst samgönguráðherra bregðast við tíðindum um áform erlendra aðila í ferðaþjónustu um að bjóða upp á jeppaferðir fyrir erlenda ferðamenn um hálendi Íslands næsta sumar?