Ferill 406. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1989–90. – 1059 ár frá stofnun Alþingis.
112. löggjafarþing. – 406 . mál.


Sþ.

711. Fyrirspurn



til félagsmálaráðherra um atvinnumál fatlaðra.

Frá Danfríði Skarphéðinsdóttur.



1.     Hve margir fatlaðir eru nú skráðir atvinnulausir? Svar óskast sundurliðað eftir kjördæmum.
2.     Liggur fyrir sú úttekt á atvinnumálum fatlaðra sem unnið hefur verið að á vegum félagsmálaráðuneytisins síðan í haust? Ef svo er, hvaða vísbendingar er að finna í henni um atvinnumál fatlaðra?
3.     Hvernig hyggst félagsmálaráðherra vinna að jafnrétti með fötluðum og ófötluðum á vinnumarkaði?