Ferill 408. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1989–90. – 1059 ár frá stofnun Alþingis.
112. löggjafarþing. – 408 . mál.


Sþ.

713. Fyrirspurn



til heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra um breytingu á reglugerð um bifreiðastyrki til fatlaðra.

Frá Margréti Frímannsdóttur.



    Hefur ráðherra uppi áform um að breyta reglugerð frá 22. apríl 1987 um þátttöku almannatrygginga í bifreiðakaupum fatlaðra
a.    hvað varðar þann fjölda sem árlega nýtur hærri styrksins, sbr. 2. tölul. 5. gr. reglugerðarinnar,
b.    hvað snertir skilyrði fyrir úthlutun varðandi aldur þeirra bifreiða sem styrkur fæst út á, sbr. 4. tölul. 4. gr.?