Ferill 128. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1989–90. – 1059 ár frá stofnun Alþingis.
112. löggjafarþing. – 128 . mál.


Nd.

725. Nefndarálit



um frv. til l. um breyt. á l. nr. 47 16. apríl 1971, um náttúruvernd, l. nr. 20 30. apríl 1986, um Siglingamálastofnun ríkisins, og ýmsum lögum er varða yfirstjórn umhverfismála.

Frá minni hl. allsherjarnefndar.



    Nefndin hefur rætt frumvarpið á allmörgum fundum en ekki orðið sammála um afgreiðslu þess.
    Meiri hl. nefndarinnar, fulltrúar stjórnarliða, leggur til að frumvarpið verði samþykkt með smávægilegum breytingum.
    Minni hl. nefndarinnar, undirritaðir nefndarmenn, leggur fram breytingartillögur á sérstöku þingskjali. Er samþykkt þeirra forsenda fyrir stuðningi minni hl. við frumvarpið.
    Nefndinni hafa borist fjölmargar umsagnir um frumvarpið og til fundar við hana hafa komið margir fulltrúar ráðuneyta, stofnana og samtaka. Flestir þessara fulltrúa höfðu fram að færa athugasemdir við einstakar greinar og sumir þeirra lýstu fullri andstöðu við þau ákvæði frumvarpsins er vörðuðu stofnanir þeirra. Sem dæmi um slíka andstöðu má nefna:

1.     Í ályktun búnaðarþings, sem samþykkt var 12. mars, er skorað á Alþingi að vanda betur undirbúning og val á þeim verkefnum sem umhverfisráðuneyti er ætlað að vinna. Fulltrúar á búnaðarþingi telja ósættanlegt með öllu að umhverfisráðuneyti verði falið að annast gróðurvernd, eins og lagt er til í 1. og 2. mgr. 1. gr. frumvarpsins, og einnig að umhverfisráðherra geti fyrirskipað friðunar- og uppgræðsluaðgerðir. Því leggur búnaðarþing til breytingar á 1. og 2. mgr. 1. gr. og að lokamálsgreinin falli brott. Þá kemur fram í greinargerð með ályktuninni frá jarðræktarnefnd þingsins að ekki sé brýn þörf á að slíta embætti veiðistjóra úr tengslum við meðferð landbúnaðarmála, en framkvæmd laga um eyðingu svartbak og laga um eyðingu refa og minka er nátengd landbúnaði og unnin í náinni samvinnu við bændur.
2.     Meiri hluti stjórnar Hollustuverndar ríkisins er andvígur flutningi stofnunarinnar í hið nýja umhverfisráðuneyti. Sömu afstöðu hefur framkvæmdastjóri hennar.
3.     Forstöðumaður heilbrigðissviðs, allt heilbrigðiseftirlitið og heilbrigðisfulltrúafélagið eru á sama hátt andvíg breytingunni.
4.     Forstöðumaður rannsóknarstofu Hollustuverndar telur það svið tvímælalaust eiga heima undir heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneyti.
5.     Forstöðumaður eiturefnaeftirlits hefur efasemdir um að breytingin sé skynsamleg.
6.     Forstöðumaður Geislavarna ríkisins er andvígur flutningi stofnunar sinnar.
7.     Veðurstofustjóri telur flutning Veðurstofunnar frá samgönguráðuneyti óskynsamlega ráðstöfun.
8.     Siglingamálastjóri er andvígur þeim ákvæðum frumvarpsins er varða Siglingamálastofnun.
9.     Ráðuneytisstjóri heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytis er andvígur flutningi Hollustuverndar og Geislavarna ríkisins.
10.     Landlæknir er sömu skoðunar og ráðuneytisstjóri heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytis.
11.     Skógræktarstjóri segir ætlunina að skilja að þætti sem ekki verði sundur skildir og lýsir hann andstöðu sinni.
12.     Landgræðslustjóri segir gróðurvernd óaðskiljanlegan hluta landgræðslu og lýsir andstöðu sinni.
13.     Ráðuneytisstjóri landbúnaðarráðuneytis er mjög andvígur frumvarpinu.

    Fyrrgreindir aðilar eru fulltrúar stofnana og stétta sem búa eiga við hið breytta skipulag ef frumvarpið verður að lögum. Þeir hafa unnið að umhverfismálum að svo miklu leyti sem af þeim hefur verið krafist og undir yfirstjórn þeirra ráðuneyta sem stofnanirnar heyra til. Þeir telja af reynslu sinni að viðkomandi málaflokkar séu best komnir þar sem þeir eru nú og færa fyrir því mikilvæg rök sem ekki er kostur að rekja nánar hér.
    Það verður að teljast í hæsta máta óskynsamleg ráðstöfun að breyta þessu skipulagi breytinganna vegna eða af því að nú hefur verið stofnað umhverfisráðuneyti sem talið er að þurfi að fá einhver viðfangsefni flutt frá öðrum ráðuneytum. Vænlegra er að ná samkomulagi um tilflutning verkefna á milli ráðuneyta. Í frumvarpinu er það ekki gert heldur er lagt til að verkefnin verði flutt með valdboði, óháð skoðunum þeirra sem búa þurfa við hið nýja fyrirkomulag.
    Með vísan til hinna alvarlegu athugasemda sem komið hafa fram um frumvarpið leggur minni hl. nefndarinnar fram breytingartillögur sínar. Taka þær ekki einungis mið af reynslu þeirra sem fást við þau verkefni sem frumvarpið gerir ráð fyrir að flytjist yfir í umhverfisráðuneyti heldur miða þær einnig að því að gera umhverfisráðuneyti að skilvirkum samræmingar- og eftirlitsaðila á sviði umhverfismála en ekki að ógnvekjandi bákni þar sem saman fara lítil skilvirkni og mikill kostnaður. Einnig er rétt að fara hægt í sakirnar og flytja ekki verkefni á milli ráðuneyta fyrr en ljóst er að þeim er ætlað að vera til frambúðar í hinu nýja ráðuneyti. Í ljósi þessara skoðana vill minni hl. nefndarinnar ítreka að það er forsenda fyrir stuðningi við frumvarpið að breytingartillögur á þskj. 726 nái fram að ganga.

Alþingi, 12. mars 1990.



Ólafur G. Einarsson,


fundaskr., frsm.


Friðjón Þórðarson.


Ingi Björn Albertsson.