Ferill 420. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
1989–90. – 1059 ár frá stofnun Alþingis.
112. löggjafarþing. – 420 . mál.
Ed.
732. Frumvarp til laga
um breytingu á lögum nr. 77/1979, um Háskóla Íslands, með síðari breytingum.
(Lagt fyrir Alþingi á 112. löggjafarþingi 1989–90).
1. gr.
2. gr. laganna orðist svo:Stjórn háskólans er falin háskólaráði, rektor, deildum, deildarforsetum og framkvæmdastjórum stjórnsýslusviða.
Háskólaráð hefur, svo sem lög mæla og nánar segir í reglugerðum, úrskurðarvald í málefnum háskólans og háskólastofnana, vinnur að þróun og eflingu þeirra og markar þeim heildarstefnu. Háskólaráð er æðsti ákvörðunaraðili innan háskólans, nema annað sé ótvírætt tekið fram í lögum eða reglugerðum.
Háskólaráði er heimilt að skipa starfsnefndir sem eru því til ráðgjafar og aðstoða við stefnumótun.
Rektor er yfirmaður stjórnsýslu háskólans og er æðsti fulltrúi hans gagnvart mönnum og stofnunum innan háskólans og utan. Hann hefur almennt eftirlit með starfsemi háskólans og hefur frumkvæði að því að háskólaráð marki heildarstefnu í málefnum stofnunarinnar.
Í umboði rektors, og svo sem lög mæla og nánar segir í reglugerðum, hafa framkvæmdastjórar stjórnsýslusviða yfirumsjón og eftirlit með hinni almennu stjórnsýslu háskólans, en deildarforsetar hafa eftirlit með starfi og stjórnsýslu deilda.
Svið hinnar almennu stjórnsýslu skulu vera: Fjármálasvið, samskiptasvið, starfsmannasvið, bygginga- og tæknisvið, rannsóknasvið og kennslusvið. Framkvæmdastjóri fjármálasviðs ber heitið háskólaritari. Hann hefur í umboði rektors og háskólaráðs heimild til að skuldbinda háskólann og háskólastofnanir fjárhagslega, hefur yfirumsjón með gerð fjárhagsáætlunar háskólans og framkvæmd hennar samkvæmt fjárlögum og hefur umsjón með sjóðum hans. Ábyrgðarsvið annarra framkvæmdastjóra stjórnsýslusviða skulu afmörkuð í reglugerð.
Rektor, deildarforsetar og framkvæmdastjórar stjórnsýslusviða leysa úr
þeim málum sem þurfa ekki að koma fyrir háskólaráð, háskóladeildir eða stjórnvöld af laganauðsyn eða samkvæmt venju.
Áður en lögum og reglugerðum, er snerta háskólann eða háskólastofnanir, verður breytt eða við þau aukið skal leita umsagnar háskólaráðs um breytingar eða viðauka, svo og um nýmæli. Nú varðar málefni sérstaklega eina deild og skal háskólaráð þá leita álits hennar áður en það lætur uppi umsögn sína.
Háskólinn á stjórnarfarslega undir menntamálaráðherra.
2. gr.
1. mgr. 4. gr. laganna orðist svo:Í háskólaráði eiga sæti rektor, forsetar háskóladeilda, tveir fulltrúar kjörnir til tveggja ára í senn í skriflegri atkvæðagreiðslu á vegum Félags háskólakennara úr hópi þeirra félagsmanna, sem ekki eru kjörgengir til starfa deildarforseta, og fjórir fulltrúar stúdenta, kjörnir hlutfallskosningu í sérstökum kosningum til tveggja ára í senn. Kjörinn skal einn fulltrúi Félags háskólakennara og tveir fulltrúar stúdenta árlega. Einnig eiga setu á fundum ráðsins háskólaritari og einn kjörinn fulltrúi starfsmanna í stjórnsýslu. Rektor er forseti ráðsins, en varaforseta og ritara kýs ráðið úr hópi deildarforseta til eins árs í senn.
3. gr.
1. mgr. 7. gr. laganna orðist svo:Háskólaráð ræður framkvæmdastjóra stjórnsýslusviða til fimm ára í senn. Rektor ræður annað starfslið almennrar stjórnsýslu eftir því sem fé er veitt til. Deildarforsetar ráða starfslið einstakra deilda að höfðu samráði við rektor og eftir því sem fé er veitt til.
4. gr.
8. gr. laganna orðist svo:Heimilt er að kveða nánar á í reglugerð um starfssvið og starfshætti háskólaráðs, rektors og framkvæmdastjóra stjórnsýslusviða. Háskólaráð setur öðru starfsliði stjórnsýslu erindisbréf.
5. gr.
Framan við 9. gr. laganna, sbr. 1. gr. laga nr. 8/1985, bætist ný málsgrein sem orðist svo:Háskóladeildir eru grunneiningar háskólans. Innan þeirra fer fram kennsla, rannsóknir og stjórnun. Deildir eru sjálfráðar um eigin málefni innan þeirra
marka er sameiginlegar reglur háskólans setja. Reglubundið mat skal fara fram á starfi deilda.
Í upptalningu á deildum í 2. mgr. (núverandi 1. mgr.) breytist nafn viðskiptadeildar í viðskipta- og hagfræðideild.
6. gr.
4. og 5. mgr. 14. gr. laganna orðist svo:Heimilt er að ákveða í reglugerð að deild sé skipt í skorir eftir kennslugreinum og fjalli hver skor um málefni kennslugreinarinnar eftir því sem nánar segir í reglurgerð. Enn fremur eiga þar sæti tveir fulltrúar stúdenta í skor þar sem tala annarra, sem rétt hafa til fundarsetu með atkvæðisrétti, er átta eða færri og síðan einn fulltrúi stúdenta fyrir hverja fimm til viðbótar.
Heimilt er að setja ákvæði í reglugerð um stjórnunarnefnd í háskóladeild (deildarráð) og skal þá m.a. kveða á um fjölda nefndarmanna, starfssvið og starfshætti. Í deildarráði skulu sitja tveir fulltrúar stúdenta þar sem tala annarra, sem rétt hafa til fundarsetu með atkvæðisrétti, er átta eða færri og síðan einn fulltrúi stúdenta fyrir hverja fimm til viðbótar. Heimilt er háskóladeild á fundi að afsala sér ákvörðunarvaldi í tilteknum málum eða málaflokkum til slíkrar stjórnarnefndar og afturkalla heimildina að því er varðar mál er eigi hafa hlotið afgreiðslu í nefndinni.
7. gr.
Við 15. gr. laganna bætist ný málsgrein svohljóðandi:Deildarforseti hefur yfirumsjón með að ákvarðanir deilda og deildarráðs séu framkvæmdar. Hann er yfirmaður stjórnsýslu deildar. Hann hefur frumkvæði að mótun heildarstefnu fyrir deild, gerð fjárhagsáætlunar og forgangsröð verkefna. Hann hefur eftirlit með notkun fjárveitinga. Hann skal stuðla að samstarfi og samræmingu við aðrar deildir og stjórnsýslusvið.
8. gr.
16. gr. laganna orðist svo:Hver deild eða námsbraut semur kennsluskrá fyrir sig og skal þar gerð grein fyrir námsefni, kennsluháttum, prófkröfum, stjórn deildar- og námsbrautamála og félagsmálum stúdenta. Við hverja deild, skor og námsbraut skulu starfa ráðgefandi námsnefndir sem jafnmargir kennarar og nemendur eiga sæti í. Hlutverk námsnefnda er að fjalla um tillögur um námsefni í hverri kennslugrein, semja umsagnir og tillögur um námsskipan og kennslufyrirkomulag greinar.
9. gr.
Við 18. gr. laganna bætist ný málsgrein svohljóðandi:Deildarforsetar eiga rétt á að vera leystir undan skyldum í sínu fasta starfi að nokkru eða öllu leyti. Rektor ákveður með samþykki menntamálaráðherra hvernig ráðstafa skuli starfsskyldum þeirra.
10. gr.
Á eftir 3. mgr. 36. gr. laganna, sbr. 5. gr. laga nr. 8/1985, bætast tvær nýjar mgr. svohljóðandi:Heimilt er háskólaráði, að fenginni staðfestingu menntamálaráðherra, að starfrækja endurmenntunarstofnun er hafi að meginhlutverki að standa fyrir endurmenntun háskólamanna. Slík endurmenntunarstofnun starfi í nánum tengslum við allar deildir háskólans. Háskólaráð getur heimilað að félög háskólamanna og aðrir skólar á háskólastigi taki þátt í stjórn stofnunarinnar, að fengnu samþykki menntamálaráðherra. Nánar skal kveðið á um starfssvið og stjórn slíkrar stofnunar í reglugerð.
Heimilt er háskólaráði, að fenginni staðfestingu menntamálaráðherra, að starfrækja námsráðgjöf sem sérstaka háskólastofnun. Háskólaráð setur reglur um stjórn stofnunarinnar og starfsemi.
11. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi og skal þá fella ákvæði þeirra inn í meginmál laga nr. 77/1979, um Háskóla Íslands, með áorðnum breytingum, og gefa þau út svo breytt.Athugasemdir við lagafrumvarp þetta.
1. Almennar athugasemdir.
Frumvarp þetta er lagt fram að tillögu háskólaráðs Háskóla Íslands. Eftirfarandi athugasemdir fylgdu drögum að frumvarpinu frá háskólanum:
„Þann 6. júlí sl. samþykkti háskólaráð tillögur til breytinga á lögum nr. 77/1979, um Háskóla Íslands, með miklum meiri hluta atkvæða. Tillögurnar, sem lagðar voru fram af rektor, byggjast á skýrslu stjórnsýslunefndar, Stjórnsýslunefnd Háskóla Íslands – Lokaskýrsla. Á fundi háskólaráðs þann 18. desember 1986 var ákveðið að skipa vinnunefnd til „athugunar á leiðum til úrbóta um endurskoðun á stjórnsýslu háskólans“. Í starfsáætlun háskólaráðs fyrir árið 1987 frá 15. janúar 1987 er að finna nánari lýsingu á verkefni nefndarinnar. Þar segir að endurskoðun á stjórnsýslu háskólans sé „skilgreining á verkaskiptingu, ábyrgð og valdi hinna ýmsu embættismanna á öllum stigum stjórnsýslu allt frá grasrótum“.
Tillögurnar beinast fyrst og fremst að því að auka sjálfræði eininga háskólans og þar með valddreifingu, skilvirkni og ábyrgðarskil í almennri stjórnsýslu og deildum, auk þess sem þátttaka háskólaþegna í ákvörðunum verður virkari. Allt þetta stuðlar að því að háskólinn ræki hlutverk sitt betur og að ekki verði gengið á sjálfstæði hans.
Í fyrsta lagi gera tillögurnar ráð fyrir að stefna beri að aukinni valddreifingu og sjálfræði rekstrareininga innan háskólans. Allar deildir háskólans hafa náð þeirri stærð og þroska að tímabært er að auka sjálfræði þeirra.
Í öðru lagi miða tillögurnar að því að starfsmenn háskólans, hvort sem þeir sinna fyrst og fremst kennslu og rannsóknum eða stjórnsýslustörfum, vinni saman að stefnumótun og framkvæmd málefna háskólans.
Í þriðja lagi er lögð áhersla á að eðlilegri verkaskiptingu og sérhæfingu verði komið á innan hinnar sameiginlegu stjórnsýslu þannig að skyld verkefni falli undir sömu stjónunareiningu.
Í fjórða lagi miða tillögurnar að því að treysta sjálfstæði háskólans með lýðræðislegu stjórnskipulagi og sveigjanleika í starfsháttum.
2. Aðdragandi.
Á fundi háskólaráðs 18. desember 1986 var ákveðið að skipa vinnunefnd til „athugunar á leiðum til úrbóta um endurskoðun á stjórnsýslu háskólans“. Í starfsáætlun háskólaráðs fyrir árið 1987 frá 15. janúar 1987 er að finna nánari lýsingu á verkefni nefndarinnar. Þar segir að endurskoðun á stjórnsýslu háskólans sé „skilgreining á verkaskiptingu, ábyrgð og valdi hinna ýmsu embættismanna á öllum stigum stjórnsýslu allt frá grasrótum“. Í nefndina voru skipaðir af háskólaráði 18. desember 1986: Þórir Einarsson prófessor, formaður, Valdimar K. Jónsson prófessor, Ásmundur Brekkan prófessor, Jónatan Þórmundsson prófessor og Jón Gunnar Grjetarsson stud. phil.
Nefndin kom fyrst saman 22. janúar 1987 og hefur síðan haldið 45 fundi. Edda Magnúsdóttir, starfsmannastjóri Háskóla Íslands, tók síðan til starfa í nefndinni sumarið 1988 og frá og með 18. nóvember 1988 tók Þórólfur Þórlindsson prófessor við sæti Jónatans Þórmundssonar í nefndinni. Á rúmlega tveggja ára starfsferli nefndarinnar gerði hún rektor oft grein fyrir störfum sínum og helstu hugmyndum auk þess sem tekið var saman stutt yfirlit yfir starfsemi nefndarinnar í júní 1987.
Nefndin reyndi fyrst að gera sér grein fyrir því í hvaða röð ætti að taka á þeim verkefnum sem teljast mega innan starfssviðs hennar. Fyrsta skrefið var að fara ofan í saumana á skipulaginu sem kveðið er á um í gildandi lögum og reglum um Háskóla Íslands. Annað skrefið var að bera það saman við hvernig skipulagið er í raun. Þriðja skrefið var síðan að vega og meta kosti og galla hvors um sig og koma með tillögu að nýju stjórnskipulagi fyrir Háskóla Íslands er taki mið af breyttum aðstæðum, bæði í háskólasamfélaginu og utan þess.
Nefndin kannaði gaumgæfilega stjórnsýslu deilda og tengsl þeirra við yfirstjórn og almenna stjórnsýslu háskólans, aflaði upplýsinga frá deildarforsetum um starfsemi og stjórnskipan hverrar deildar og óskaði eftir að þær upplýsingar bærust í samræmdu formi. Því miður fengust ekki upplýsingar frá öllum deildarforsetum og þurfti nefndin því að afla þeirra eftir öðrum leiðum. Óskað var skriflegra upplýsinga frá deildarforsetum og enn fremur rætt við nokkra þeirra sérstaklega. Jafnframt ræddi nefndin við yfirstjórnendur háskólans, þar á meðal við rektor, háskólaritara og kennslustjóra.
Í starfi sínu kynntu nefndarmenn sér skýrslur fyrri nefnda á vegum háskólans sem fjölluðu um stjórnsýslu og skipulag skólans og tóku mið af mörgum atriðum sem þar er að finna og hafa ekki náð fram að ganga. Jafnframt kynnti nefndin sér gögn um stjórnskipulag háskóla í Bandaríkjunum Norður-Ameríku og Evrópu. Enn fremur var í starfi nefndarinnar tekið mið af Greinargerð með tillögu að skipulagi fyrir aðalskrifstofu Háskóla Íslands, merkt Fjárlaga- og hagsýslustofnun frá júní 1988. Snemma í starfi nefndarinnar naut hún góðs af verkefni nokkurra nemenda í Stjórnun II í viðskipta- og hagfræðideild þar sem gerð var grein fyrir stjórnskipulagi háskólans.
Í febrúar 1989 kynnti nefndin hugmyndir sínar í áfangaskýrslu stjórnsýslunefndar Háskóla Íslands. Fljótlega eftir að áfangaskýrsla stjórnsýslunefndar Háskóla Íslands var lögð fram voru haldnir kynningarfundir með helstu yfirmönnum stjórnsýslu háskólans, deildarforsetum, skrifstofustjórum, fulltrúum stúdenta og fulltrúum Félags háskólakennara. Á þessum fundum kom fram ánægja með tillögur nefndarinnar í heild. Nokkrir gerðu þó athugasemdir við einstök atriði, höfnuðu sumum þeirra en vildu fá nánari skilgreiningu á öðrum. Nær allir voru ánægðir með þá valddreifingu, sem kemur fram í tillögum nefndarinnar, og þótti þar tekið á raunverulegum vanda í stjórnsýslu háskólans. Jafnframt var óskað eftir því að skriflegar ábendingar eða breytingartillögur bærust fyrir lok aprílmánaðar. Óhætt er að fullyrða að fá mál hafa fengið jafnítarlega kynningu og umfjöllun innan háskólans og þessar tillögur.
Lokaskýrsla var síðan lögð fram í mars 1989. Á fundi háskólaráðs 6. júlí lagði rektor fram tillögur sem byggðust á skýrslu stjórnsýslunefndar og nokkrum af þeim ábendingum og athugasemdum sem borist höfðu. Voru tillögur rektors samþykktar með miklum meiri hluta atkvæða. Nokkrum breytingartillögum var hafnað.
3. Meginefni tillagnanna.
Tillögurnar byggjast einkanlega á þrennu:
1. þeim breytingum sem í reynd hafa orðið á stjórnskipulaginu,
2. þeim markmiðum sem stjórnsýslunefndin telur að hafa beri í huga við skipulagsbreytingar,
3. þeim álitamálum og gagnrýni sem fram hefur komið í viðræðum hennar við deildarforseta, yfirmenn stjórnsýslu og í almennri umræðu innan háskólans.
Tillögurnar beinast fyrst og fremst að því að auka sjálfræði eininga háskólans og þar með valddreifingu, skilvirkni og ábyrgðarskil í almennri stjórnsýslu og deildum, auk þess sem þátttaka háskólaþegna í ákvörðunum verður virkari og rektorsábyrgð á stjórnsýslunni efld. Allt þetta stuðlar að því að háskólinn ræki hlutverk sitt betur og ekki verði gengið á sjálfstæði hans. Hér verður gerð grein fyrir helstu breytingum, sem tillögurnar gera ráð fyrir, í fjórum efnisflokkum: a) Valddreifingu og sjálfstæði rekstrareininga, b) starfsnefndum háskólaráðs, c) skiptingu hinnar sameiginlegu stjórnsýslu í framkvæmdasvið og d) lýðræðislegum vinnubrögðum og sveigjanleik.
3.1 Valddreifing og sjálfræði rekstrareininga.
Í fyrsta lagi gera tillögurnar ráð fyrir að stefna beri að aukinni valddreifingu og sjálfræði rekstrareininga innan háskólans. Allar deildir háskólans hafa náð þeirri stærð og þroska að tímabært er að auka sjálfræði þeirra. Stjórnsýsla þeirra hefur vaxið út úr hinni sameiginlegu stjórnsýslu háskólans og lotið fyrirmælum og leiðbeiningum hennar. Nú er svo komið að stjórnsýsla deilda getur staðið á eigin fótum og ætti að fella hana stjórnunarlega að fullu inn í störf deilda. Deildir þurfa að axla fjárhagslega ábyrgð á rekstri sínum þannig að stjórnsýsla, sem greidd hefur verið af sameiginlegu fé, komi á rekstur deilda. Samfara þessu þarf að styrkja bæði starf deildarforseta og skrifstofustjóra deilda. Þá gegnir það furðu að í háskólalögunum frá 1979 skuli háskóladeildir ekki vera taldar upp sem einn af stjórnaraðilum háskólans í upphafi 2. gr. heldur aðeins háskólaráð, rektor, háskólaritari og kennslustjóri. Deildir háskólans stjórna þó aðalstarfsemi hans þar sem þær einar rækja meginverkefni háskólans – að vera vísindaleg rannsóknastofnun og vísindaleg fræðslustofnun, en hin almenna stjórnsýsla háskólans er einungis stoðstarfsemi við þessa aðalstarfsemi.
Deildarforseti er í fyrirsvari deildar út á við og inn á við. Nú er staða deildarforseta ekki nægilega vel skilgreind. Um hana eru margvísleg
ákvæði dreifð um háskólalög og reglugerðir. Deildarforseti sæti í háskólaráði og tekur þannig þátt í ákvörðunum ráðsins (4. og 13. gr.). Hann getur orðið varaforseti háskólaráðs og þar með staðgengill rektors (3. gr.). Hann boðar deildarfundi (14. og 15. gr.). Atkvæði hans ræður ef atkvæði deildarfundar falla jöfn (15. gr.). Hann metur að hve miklu leyti erlend háskólapróf stúdenta skuli viðurkennd (30. gr.). Þessi ákvæði eru ófullnægjandi því að samkvæmt þeim er helsta verksvið deildarforseta nánast að vera fundarstjóri.
Deildir þurfa að verða sjálfstæðar kostnaðareiningar. Vanda þarf betur gerð fjárlagatillagna og fjárhagslegt eftirlit á ráðstöfun fjárlagaheimilda fyrir deildir í samráði við fjármálastjórn skólans. Þótt hægt sé að flytja ýmis verkefni til deilda frá hinni almennu stjórnsýslu án laga og reglugerðarbreytinga er þó æskilegt að til séu skýr, formleg ákvæði um sjálfræði deilda. Gefa þarf gaum að stjórnskipulagi deilda með það í huga að fá fram skilvirkari ákvarðanatöku. Skilvirk stjórnsýsla nýtir að sjálfsögðu vel ráðstöfunarþætti sína og aflar sér trausts, en auknu sjálfræði fylgir aukin ábyrgð og því er í tillögunum gert ráð fyrir að reglubundið mat fari fram á starfsemi deilda. Slíkt mat hefur nú þegar farið fram á verkfræðideild og munu aðrar deildir fylgja í kjölfarið.
Þetta krefst þess að deildarforsetastarfið verði eflt og deildarskrifstofur verði færðar undir stjórn deildanna. Kveða þarf betur á í lögum og reglugerð um valdsvið hans og tryggja að hann geti rækt það af skilvirkni og í samræmi við aukið sjálfræði deilda. Skýr ákvæði þarf um að deildarforseti sé yfirmaður stjórnsýslu deildar og hafi því svipaða stöðu í deild og rektor gagnvart háskólanum í heild.
3.2 Starfsnefndir háskólaráðs.
Í öðru lagi miða tillögurnar að því að starfsmenn háskólans, hvort sem þeir sinna fyrst og fremst kennslu og rannsóknum eða stjórnsýslustörfum, vinni saman að stefnumótun og framkvæmd málefna háskólans. Skilvirkni í starfi háskólaráðs hefur aukist með tilkomu fastra starfsnefnda í einstökum málaflokkum. Þær hafa undirbúið mál fyrir ráðið ýmist að eigin frumkvæði eða ráðsins og dæmi eru um að ráðið hafi framselt ákvarðanavald til þeirra, t.d. úthlutun úr Rannsóknasjóði háskólans. Sumar þessara nefnda fjalla um breiða málaflokka er tengjast öllum skólanum. Hafa þær í daglegu tali verið kallaðar starfsnefndir háskólaráðs (kennslumálanefnd, vísindanefnd, þróunarnefnd, kynningarnefnd, alþjóðasamskiptanefnd, starfsnefnd um byggingamál). Aðrar sinna afmarkaðri verkefnum (lögskýringarnefnd, áfrýjunar- og sáttanefnd, samræmingarnefnd, stundakennslunefnd, reglugerðarnefnd). Þá er algengt að
nefndir séu skipaðar til úrlausnar á afmörkuðum verkefnum bæði á vegum stjórnsýslu og háskólaráðs. Með þessu móti hefur þátttaka þegna háskólasamfélagsins í undirbúningi og töku ákvarðana aukist verulega.
Þessi tilhögun hefur gefist vel og er ástæða til að finna því starfi farveg í formlegu skipulagi háskólans. Þessu markmiði reynir nefndin m.a. að ná fram með því að fella starfsnefndir á kerfisbundinn hátt inn í stjórnskipulag háskólans. Stjórnsýslunefndin telur að reynslan af starfsnefndum háskólaráðs sé sú að frumkvæði og nýjar hugmyndir hafi komið þaðan og stefnumótandi mál hafi fengið vandaðri umfjöllun í háskólaráði vegna forvinnu nefndanna.
3.3 Skipting hinnar sameiginlegu stjórnsýslu í framkvæmdasvið.
Í þriðja lagi er lögð áhersla á að eðlilegri verkaskiptingu og sérhæfingu verði komið á innan hinnar sameiginlegu stjórnsýslu þannig að skyld verkefni falli undir sömu stjórnunareiningu. Núgildandi lög gera ráð fyrir þrískiptingu stjórnsýslunnar í svið háskólaritara, kennslustjóra og byggingarstjóra. Á báðum fyrri ábyrgðarsviðum hefur verkefnum og starfsfólki fjölgað nokkuð að undanförnu þótt því fari fjarri að fjöldi starfsfólks í stjórnsýslu í Háskóla Íslands nálgist það sem tíðast er í sambærilegum háskólum í nágrannalöndum okkar. Út frá skilgreindu starfssviði háskólaritara hafa t.d. orðið til tvö veigamikil störf, fjármálastjóri og starfsmannastjóri. Enn fremur hafa bæst við aðstoðarmaður rektors og prófstjóri. Mikið af tíma hins fyrrnefnda hefur farið í störf fyrir vísindanefnd og þróunarnefnd háskólaráðs. Þá hefur ný starfsemi verið tekin upp á undanförnum árum, svo sem Endurmenntunarstofnun, námsráðgjöf, nemendaskrá háskólans og Rannsóknaþjónusta háskólans. Þetta hefur leitt til breytinga á skipulaginu án þess að hugað hafi verið að því að samræma þær lögum og reglugerðum.
Framan af þróaðist stjórnsýslan ekki í réttu hlutfalli við aukin umsvif háskólans í kennslu og rannsóknum svo að ekki var vansalaust á ýmsum sviðum. Í skýrslu þróunarnefndar frá árinu 1984, bls. 97, segir um þetta:
„Nefndinni virðist verka- og ábyrgðardreifingin milli stjórnsýsluaðila mjög á reiki í einstökum atriðum, en enginn beri heildarábyrgð á verkefnasviði eða hafi völd til að hagræða málum eða málaflokkum sem hann vinnur að. Nefndin telur þetta eina meginástæðuna fyrir því að heildarmálefni háskólans koma lítt til umræðu. Ýmsu í þessu efni mætti hagræða innan ramma núgildandi laga og reglugerðar, en þó er rétt að huga að því hvort ekki eigi að gefa betri skipan festu með breytingum á lögum og reglugerð.“
Í samræmi við hugmyndir um dreifingu valds og ábyrgðar hafa nýir
embættismenn í reynd verið kallaði til ábyrgðar með því að sitja skipulagsfundi stjórnsýslunnar með rektor, háskólaritara og kennslustjóra. Á það við starfsmannastjóra, fjármálastjóra og aðstoðarmann rektors eins og áður var getið. Auk þess situr varaforseti háskólaráðs fundina. Hópurinn ræðir vikulega úrlausnarefni sem efst eru á baugi og myndar því eins konar framkvæmdanefnd. Í tillögunum felst að völdum verði dreift innan stjórnsýslu yfirstjórnar þannig að ábyrgð á framkvæmd einstakra, afmarkaðra málaflokka er samkvæmt tillögum nefndarinnar falin fleiri aðilum en áður.
Tillögurnar gera ráð fyrir að starfsemi hinnar almennu stjórnsýslu verði skipt í sex meginsvið, er heyri undir rektorsembættið, þar sem fari saman vald og ábyrgð. Fyrir stjórnsýsluframkvæmd sviðsins sé einn embættismaður eða framkvæmdastjóri ábyrgur. Starfsmenn viðkomandi sviðs starfi í nánum tengslum við nefndirnar og veiti þeim upplýsingar. Lagt er til að háskólaráð ráði framkvæmdastjóra stjórnsýslusviða til fimm ára í senn. Stjórnsýslusviðin, sem gert er ráð fyrir, eru þessi: bygginga- og tæknisvið, fjármálasvið, kennslusvið, rannsóknasvið, samskiptasvið og starfsmannasvið.
Framkvæmdastjóri stjórnsýslusviðs skal framkvæma ákvarðanir háskólaráðs og rektors um málefni á sínu sviði og leysa úr málum sem upp koma innan þess. Hann skal hafa frumkvæði að því að stefna sé mörkuð í málefnum sviðsins. Hann skal stuðla að samstarfi og samræmingu verkefna við önnur svið og deildir. Framkvæmdastjóri stjórnsýslusviðs skal vera í nánum tengslum við starfsnefndir háskólaráðs á sviðinu og sjá þeim fyrir aðstoð og aðgangi að upplýsingum sem lúta að viðfangsefnum þeirra. Stutt lýsing á ábyrgðarsviði einstakra framkvæmdastjóra fer hér á eftir:
Framkvæmdastjóri fjármálasviðs (háskólaritari) hefur í umboði rektors og háskólaráðs heimild til að skuldbinda háskólann og háskólastofnanir fjárhagslega, hefur yfirumsjón með fjármálastjórn háskólans, bókhaldi og samræmdri innkaupastarfsemi. Hann skal undirbúa gerð fjárhagsáætlunar skólans, að fengnum tillögum deilda og stofnana, og hafa eftirlit með notkun fjárveitinga samkvæmt fjárlögum. Hann hefur eftirlit með sjóðum háskólans.
Framkvæmdastjóri samskiptasviðs hefur í umboði rektors yfirumsjón með rekstri almennrar skrifstofu, upplýsingum til aðila innan skólans og utan, kynningu á skólanum og samskiptum háskólans við aðra háskóla og stofnanir.
Framkvæmdastjóri starfsmannasviðs hefur í umboði rektors yfirumsjón með sameiginlegum málefnum háskólans er lúta að launum og öðrum starfsmannamálum í samræmi við lög, reglugerðir og stefnu skólans.
Framkvæmdastjóri bygginga- og tæknisviðs hefur í umboði rektors yfirumsjón með viðhaldi fasteigna og lóða, rekstri verkstæða, húsvörslu og ræstingu. Í samráði við starfsnefndir háskólaráðs á bygginga- og tæknisviði skipuleggur hann tæknilegan undirbúning og eftirlit með nýbyggingum.
Framkvæmdastjóri rannsóknasviðs hefur í umboði rektors yfirumsjón með sameiginlegum málefnum háskólans er lúta að rannsóknum, svo sem ráðgjöf og aðstoð við kennara og stofnanir, gerð rannsóknaskrár, stjórnsýslu rannsóknasjóðs og rannsóknaþjónustu við atvinnulífið.
Framkvæmdastjóri kennslusviðs hefur í umboði rektors yfirumsjón með sameiginlegum málefnum háskólans er snerta nemendur, kennslu, prófhald, skráningu stúdenta og ráðstöfun á húsnæði háskólans til kennslu.
3.4 Lýðræðisleg vinnubrögð og sveigjanleiki.
Í fjórða lagi miða tillögurnar að því að treysta sjálfstæði háskólans með lýðræðislegu stjórnskipulagi og sveigjanleika í starfsháttum. Sjálfstæði háskóla um eigin málefni er forsenda fyrir frjórri starfsemi hans og viðurkennd meginregla í lýðræðisríkjum. Í reynd eru sjálfstæði háskólans takmörk sett með fjárveitingum Alþingis og stjórnvaldsaðgerðum ráðherra menntamála og fjármála. Nýleg dæmi um að gengið hafi verið á sjálfstæði hans er ágreiningur um stöðuveitingar og skertur ráðstöfunarréttur yfir happdrættisfé. Krafan til stjórnskipulagsins er að innan þess gefist kostur á virkri og skynsamlegri stefnumörkun og stjórnsýslu er skapi háskólanum traust út á við og tryggi samstöðu meðal háskólaþegnanna.
Eldri reglur um aðild að ákvörðunum sýna að litið hafi verið á háskólann sem samfélag kennara fyrst og fremst. Nýrri hugmyndir eru þær að háskólinn sé samfélag kennara, sérfræðinga, nemenda og stjórnsýslufólks sem deili stjórnunarábyrgð með sér samkvæmt nánar skilgreindum reglum í háskólalögum og reglugerð. Reglur um sjálfsstjórn háskólans koma fram í lögum þegar skipað er fyrir um ákvarðanatöku í einstökum málum eins og stöðuveitingum. Þar fyrir utan ræðst sjálfsstjórn hans af stjórnsýsluhefð sem byggist á því að menntamálaráðuneyti og ráðherra eru alla jafna ekki með beina íhlutun í einstök málefni háskólans. Auk þess hefur háskólaráð umsagnarrétt um breytingar, viðauka og nýmæli er varða lög og reglugerð um skólann (2. gr.).
Í tillögunum er leitast við að styrkja enn frekar sjálfræði háskólans og lýðræðisleg vinnubrögð innan hans. Í háskólaráði, sem hefur æðsta ákvörðunarvald í sjálfsstjórnarmálefnum háskólans, mætast fulltrúar háskólasamfélagsins. Í háskólaráði sitja nú rektor, níu deildarforsetar, fjórir fulltrúar stúdenta og tveir frá Félagi háskólakennara. Auk þess sitja ráðsfundi háskólaritari og kennslustjóri með málfrelsi og tillögurétti en án atkvæðisréttar. Einn hópur samfélagsins er þó undanskilinn beinum áhrifum í háskólaráði en það er starfsfólk stjórnsýslu. Tillögurnar gera ráð fyrir að einn fulltrúi starfsmanna stjórnsýslunnar, auk háskólaritara, taki sæti í háskólaráði með málfrelsi og tillögurétti en án atkvæðisréttar. Verði hann kjörinn skriflegri kosningu af starfsfólki stjórnsýslu til tveggja ára í senn. Einnig er lagt til að fjöldi stúdenta í skorarstjórn og deildarráði sé hlutfall af fjölda manna í stjórn en ekki föst tala eins og verið hefur.
Í tillögunum er einnig gert ráð fyrir að stjórnsýslufólk sé ráðið til fimm ára í senn. Þetta fyrirkomulag þykir eðlilegt þegar um stjórnunarstöður er að ræða þannig að hægt sé að tryggja eðlilega endurnýjun í þessum störfum. Þá gefur þetta fyrirkomulag einnig kost á sveigjanlegri starfsháttum innan skólans en áður. Með þessu móti skapast svigrúm til þess að ráða háskólakennara, t.d. á sviði fjármála eða tæknimála, tímabundið til stjórnsýslustarfa. Gildir þetta einnig að sjálfsögðu fyrir stjórnsýslufólk sem óskar eftir því að fara tímabundið út í kennslu eða önnur störf innan háskólans.
4. Kostnaður.
Kostnaður af þessum breytingum er óverulegur. Lagt er til að stöður sex framkvæmdastjóra stjórnsýslusviða verði stofnaðar, auk þess sem heimilt verði að fella niður að hluta eða fullu starfsskyldur sem fylgja föstu starfi þeirra er gegna starfi deildarforseta. Á móti kemur að jafnmargar stöður verða lagðar niður. Þau stöðuheiti sem nú eru til og munu falla niður eru:
Stöður sem falla niður: Nýjar stöður:
Byggingastjóri. Framkvæmdastjóri bygginga- og tæknisviðs.
Kennslustjóri. Framkvæmdastjóri kennslusviðs.
Aðstoðarháskólaritari. Framkvæmdastjóri samskiptasviðs.
Starfsmannastjóri. Framkvæmdastjóri starfsmannasviðs.
Háskólaritari. Framkvæmdastjóri rannsóknasviðs.
Ráðgjafi rektors íbyggingamálum (80% staða). Háskólaritari (framkvæmdastjóri fjármálasviðs).
Athugasemdir við einstakar greinar frumvarpsins.
Um 1. gr.
Ákvæði um stjórn háskólans í 1. mgr. 2. gr. er útvíkkað þannig að það nái yfir deildir, deildarforseta og framkvæmdastjóra stjórnsýslusviða. Orðin „háskólaritari“ og „kennslustjóri“ falla niður í samræmi við ný starfsheiti.
Í 2. mgr. 2. gr. er kveðið á um ótvírætt forustuhlutverk háskólaráðs í stjórnun skólans.
Á eftir 2. mgr. 2. gr. kemur ný málsgrein sem veitir háskólaráði heimild til að skipa starfsnefndir sem eru því til ráðgjafar og aðstoða rektor og háskólaráð við stefnumótun. Rökstuðning fyrir slíkum starfsnefndum er að finna í hinni almennu greinargerð með frumvarpinu.
4. mgr. 2. gr. er óbreytt utan þess að nú er lögð áhersla á að hlutverk rektors sé að hafa frumkvæði að því að háskólaráð marki heildarstefnu í málefnum stofnunarinnar. Breytingin hér er sú að í núgildandi lögum er sagt að rektor vinni sérstaklega að mörkun heildarstefnu í málefnum stofnunarinnar. Þessi áhersla er í samræmi við almennan skilning á hlutverki háskólaráðs.
Á eftir 4. mgr. 2. gr. bætist ný málsgrein við þar sem kveðið er á um yfirumsjón með almennri stjórnsýslu skólans. Þar kemur fram að framkvæmdastjórar stjórnsýslusviða hafa yfirumsjón og eftirlit með hinni almennu stjórnsýslu en deildarforsetar með stjórnsýslu deilda. Breytingin er einkanlega fólgin í því að áður voru það rektor, háskólaritari og kennslustjóri sem höfðu þessi hlutverk með höndum. Forsendur þessarar breytingar eru raktar í almennum athugasemdum með frumvarpinu.
Í 6. mgr. 2. gr. er gerð grein fyrir framkvæmdasviðum hinnar almennu stjórnsýslu auk þess sem hlutverk framkvæmdastjóra fjármálasviðs (háskólaritara) er skilgreint. Hér er einnig gefin heimild til að afmarka ábyrgðarsvið annarra framkvæmdastjóra í reglugerð.
7. mgr. 2. gr. þarfnast ekki skýringa.
Um 2. gr.
Í 1. mgr. 4. gr. er áréttað að fulltrúar Félags háskólakennara séu kjörnir til háskólaráðs í skriflegri atkvæðagreiðslu. Einnig er sú breyting gerð að einn kjörinn fulltrúi starfsmanna sitji fundi ráðsins. Kemur hann í stað kennslustjóra.
Um 3. gr.
Í 1. mgr. 7. gr. er gerð sú breyting að háskólaráð ræður framkvæmdastjóra stjórnsýslusviða til fimm ára, en áður höfðu háskólaritari og kennslustjóri
verið forsetaskipaðir. Einnig er gert ráð fyrir því að rektor, en ekki menntamálaráðherra, ráði annað starfslið almennrar stjórnsýslu eftir því sem fé er veitt til. Þá er gert ráð fyrir að deildarforsetar ráði starfslið deildarskrifstofa að höfðu samráði við rektor og eftir því sem fé er veitt til. Þessar breytingar eru í beinu framhaldi af þeirri valddreifingu sem tillögurnar gera ráð fyrir og eru í samræmi við sjálfstæði háskólans.
Um 4. gr.
Greinin þarfnast ekki skýringa.
Um 5. gr.
Á undan 1. mgr. 9. gr. er bætt við málsgrein sem kveður á um stöðu deilda innan háskólans. Hér er fyrst og fremst verið að undirstrika sjálfstæði og hlutverk deilda. Nýbreytnin felst í því að hér er kveðið á um reglubundið mat á starfi deilda. Slíkt mat er þegar hafið á deildum háskólans og hefur verkfræðideild nú gengið í gegnum slíkt mat og mat á öðrum deildum er í undirbúningi.
Í upptalningu á deildum í 2. mgr. breytist nafn viðskiptadeildar í viðskipta- og hagfræðideild í samræmi við reglugerðarbreytingar sem þegar hafa verið gerðar.
Um 6. gr.
Hér er sú breyting gerð að fjöldi stúdenta í skorarstjórn og deildarráði sé hlutfall af fjölda manna í stjórn en ekki föst tala. Þessi breyting er í anda reglna um fjölda stúdenta á deildarfundum og er í anda þeirra lýðræðislegu vinnubragða sem tíðkast innan háskólans.
Um 7. gr.
Í samræmi við aukna fjárhagslaga og stjórnunarlega ábyrgð deilda er nauðsynlegt að starf deildarforseta verði eflt. Með þessu ákvæði er ótvírætt kveðið á um ábyrgð deildarforsetastarfsins á sviði fjármála og stjórnunar í deild.
Um 8. gr.
Orðinu „skor“ er bætt inn í setningu. Hér er aðeins um eðlilega leiðréttingu að ræða.
Um 9. gr.
Einni málsgrein er bætt við 18. gr. núverandi laga. Hún kveður á um að deildarforsetar eigi rétt á að vera leystir undan skyldum sínum í föstu starfi að nokkru eða öllu leyti. Þetta er í samræmi við aukin völd og ábyrgð deildarforseta sem lýst er í almennum athugasemdum.
Um 10. gr.
Við 36. gr. laganna bætast tvær málsgreinar. Er sú fyrri um endurmenntunarstofnun. Endurmenntunarstofnun hefur verið starfrækt um nokkurt skeið í samstarfi háskólans, Tækniskóla Íslands, Bandalags háskólamanna og þriggja félaga háskólamanna. Á fundi háskólaráðs 27. júní 1989 samþykkti ráðið stofnun endurmenntunarstofnunar og óskaði síðan eftir heimild ráðuneytisins fyrir reglugerðarbreytingu þar að lútandi. Taldi ráðuneytið að ekki væri að finna stoð fyrir slíkri stofnun í lögum háskólans og því þyrfti lagabreyting að koma til áður en sett yrði reglugerð um þessa starfsemi. Þann 5. janúar sl. samþykkti háskólaráð svo tillögu um lagabreytingu og var hún send ráðuneytinu 9. mars sl. ásamt viðeigandi gögnum.
Síðari málsgreinin fjallar um námsráðgjöf. Í henni segir að námsráðgjöf, sem hingað til hefur fallið undir yfirstjórn, skuli starfrækt sem háskólastofnun undir háskólaráði. Námsráðgjöfin hefur mjög svo sjálfstætt hlutverk innan háskólans og því ekki ástæða til að tengja hana stjórnunarlega öðrum aðilum í stjórnsýslu.
Um 11. gr.
Greinin þarfnast ekki skýringa.