Ferill 222. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
1989–90. – 1059 ár frá stofnun Alþingis.
112. löggjafarþing. – 222 . mál.
Nd.
743. Nefndarálit
um frv. til l. um breyt. á l. nr. 39/1988, um bifreiðagjald.
Frá meiri hl. fjárhags- og viðskiptanefndar.
Nefndin hefur fjallað um frumvarpið og fékk á sinn fund til viðræðna um það Ásmund Stefánsson frá Alþýðusambandi Íslands, Hannes Sigurðsson frá Vinnuveitendasambandi Íslands, Stefán Magnússon og Björn Pétursson frá Félagi íslenskra bifreiðaeigenda og Braga Sigurjónsson og Stefán A. Finnsson frá Landssambandi vörubifreiðastjóra. Þá sátu einnig fund nefndarinnar frá fjármálaráðuneytinu þeir Bolli Þór Bollason og Snorri Olsen.
Meiri hl. nefndarinnar leggur til að frumvarpið verði samþykkt með breytingum sem flutt er tillaga um á sérstöku þingskjali. Umsögn Alþýðusambands Íslands er prentuð sem fylgiskjal með áliti þessu.
Alþingi, 14. mars 1990.
Páll Pétursson, form.
Jón Sæmundur Sigurjónsson, frsm.
Ragnar Arnalds.
Guðmundur G. Þórarinsson.
Fylgiskjal.
Reykjavík, 14. mars 1990.
Páll Pétursson,
form. fjárhags- og viðskiptanefndar neðri deildar Alþingis,
Alþingi.
Í framhaldi af fundi okkar í morgun vil ég taka eftirfarandi fram:
Ég hef kannað áhrif frumvarps til breytinga á lögum nr. 39/1988, um bifreiðagjald, á framfærsluvísitölu. Þó málið hafi ekki verið yfirfarið í Kauplagsnefnd tel ég allt benda til þess að með breytingunum sé uppfyllt það fyrirheit ríkisstjórnarinnar að náð verði verðlagsáhrifum sem svara 0,3% á mælikvarða framfærsluvísitölu.
Virðingarfyllst,
f.h. Alþýðusambands Íslands,
Ásmundur Stefánsson.