Ferill 429. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1989–90. – 1059 ár frá stofnun Alþingis.
112. löggjafarþing. – 429 . mál.


Ed.

750. Frumvarp til útvarpslaga.




I. KAFLI

Réttur til útvarps.

1. gr.

    Með útvarpi, hljóðvarpi eða sjónvarpi er í lögum þessum, sem sett eru með hliðsjón af lögum um fjarskipti, nr. 73/1984, hvað varðar tæknilega eiginleika, átt við hvers konar dreifingu dagskrárefnis til almennings með rafsegulöldum hvort heldur í tali, tónum eða myndum, um þráð eða þráðlaust.
    Það telst eigi útvarp í skilningi laga þessara ef útsending nær aðeins til húsakynna á einni samfelldri lóð. Óheimil er samtenging á milli lóða nema uppfyllt séu skilyrði 3. tölul. 3. gr. um þýðingarskyldu.
    Þrátt fyrir ákvæði 2. mgr. er menntamálaráðherra heimilt að ákveða með reglugerð að lagning og not þráðar sem loftnetskerfis á nánar tilgreindu svæði í því skyni eingöngu að dreifa viðstöðulaust útvarpsefni óbreyttu frá innlendum og erlendum útvarpsstöðvum teljist ekki vera rekstur útvarpsstöðvar samkvæmt lögum þessum og skuli einvörðungu vera háð ákvæðum 1. tölul. 19. gr. laga þessara.

2. gr.

    Ríkisútvarpið annast útvarp í samræmi við ákvæði II. og III. kafla laga þessara. Almenn ákvæði annarra kafla laganna eiga jafnt við um Ríkisútvarpið og aðrar útvarpsstöðvar.
    Menntamálaráðherra getur veitt öðrum leyfi til útvarps skv. 3.–5. gr.
    Menntamálaráðherra skipar þrjá menn til setu í útvarpsnefnd til þriggja ára í senn samkvæmt tilnefningu Hæstaréttar. Hlutverk útvarpsnefndar er að vera menntamálaráðuneytinu til ráðuneytis um vafaatriði og ágreiningsmál sem kunna að rísa vegna starfsemi útvarpsstöðva, þar með talið Ríkisútvarpsins, sbr. einnig 4. tölul. 3. gr. og 2. mgr. 6. gr.

3. gr.

    Menntamálaráðherra getur veitt sveitarfélögum og öðrum lögaðilum leyfi til útvarps fyrir almenning. Í leyfum skal tekið fram úr hvaða bæjar- eða sveitarfélagi útvarpað skuli og til hvaða svæðis.
    Útvarpsleyfi eru háð eftirfarandi almennum skilyrðum:
1.    Útvarpa má eingöngu á metra- og desimetrabylgju samkvæmt úthlutun Póst- og símamálastofnunar á senditíðnum í samræmi við alþjóðasamþykktir. Póst- og símamálastofnun gefur út leyfisbréf til handa þeim aðilum sem fengið hafa lögmætt leyfi til útvarps. Í leyfisbréfi skal kveðið á um tæknilega eiginleika í samræmi við settar reglur og alþjóðasamþykktir, svo sem um tíðni og útgeislað afl og hvaðan útvarpað skuli. Þó er heimilt í undantekningartilvikum að veita leyfi til útvarps á öðrum bylgjum þar sem landfræðilegar aðstæður torvelda útsendingar á metra- og desimetrabylgju eða þegar um útflutning á útvarpsefni er að ræða.
2.    Óheimilt er að veita erlendum aðila, félagi eða stofnun, leyfi til útvarpsreksturs þar sem eignarhlutdeild erlendra aðila er meiri en 10%.
3.    Útvarpsstöðvar skulu stuðla að almennri menningarþróun og efla íslenska tungu. Efni á erlendu máli, sem útvarp flytur, skal jafnan fylgja íslenskt tal eða neðanmálstexti á íslensku. Það skal þó ekki eiga við ef um er að ræða erlenda söngtexta eða þegar dreift er viðstöðulaust um gervihnött og móttökustöð, fréttum eða dagskrárefni er sýnir atburði sem gerast í sömu andrá. Útvarpsstöðvar skulu leitast við að talsetja efni svo sem kostur er, einkum dagskrárefni sem ætlað er börnum og ungmennum.
4.    Útvarpsstöðvar skulu í öllu starfi sínu halda í heiðri lýðræðislegar grundvallareglur. Þeim ber að virða tjáningarfrelsi og stuðla að því að fram komi í dagskrá rök fyrir mismunandi skoðunum í umdeildum málum.
         Þeir aðilar, einstaklingar, félög eða stofnanir sem telja að Ríkisútvarpið eða útvarpsstöð hafi ekki uppfyllt framangreind skilyrði eða skilyrði 2. mgr. 8. gr. gagnvart þeim og hún synjar þeim um að koma sjónarmiðum sínum á framfæri í dagskrá með þeim hætti sem þeir vilja við una, geta lagt málið fyrir útvarpsnefnd. Nefndin skal þá, eins fljótt og við verður komið, fella úrskurð um kæruefnið og er sá úrskurður bindandi fyrir málsaðila.
5.    Skylt er útvarpsstöðvum að lesa tilkynningar frá almannavörnum, löggæslu, slysavarnafélögum eða hjálparsveitum og gera hlé á dagskrá ef brýna nauðsyn ber til og almannaheill krefst.
6.    Útvarpsstöðvar bera ábyrgð á því að efni, sem þær senda út, sé í samræmi við lög um vernd     barna og ungmenna, höfundalög, almenn hegningarlög, lög um jafnrétti kynjanna og önnur lög eftir því sem við á.
7.    Útvarpsstöðvar, er sækja um leyfi til útvarps eftir gildistöku laga þessara, skulu gera menntamálaráðherra grein fyrri þeirri dagskrárstefnu sem fyrirhuguð er, hvenær útvarp skuli hefjast og hvernig fjárhagslegri ábyrgð er háttað. Áður en útvarpsstöð tekur til starfa skulu ábyrgðarmenn hennar tilkynna menntamálaráðherra hver sé útvarpsstjóri sem beri ábyrgð á útvarpsefni skv. V. kafla laga þessara. Breyting í þeim efnum skal og tilkynnt menntamálaráðherra.
8.    Skipulagning og mótun dagskrár og ákvarðanir um útvarp einstakra dagskrárliða skulu vera í höndum stjórnenda útvarpsstöðva. Útvarpsstöð stendur straum af kostnaði við framleiðslu eigin dagskrárefnis, sjá þó 4. mgr. 4. gr. laga þessara. Rekstri, bókhaldi og fjárreiðum útvarpsstöðvar skal haldið aðgreindum frá öðrum rekstri og fjárreiðum handhafa útvarpsleyfis.
9.    Menntamálaráðherra gefur út leyfisbréf til þeirra útvarpsstöðva er leyfi skulu fá eftir gildistöku laga þessara þar sem nánar er kveðið á um hver sé handhafi útvarpsleyfis, leyfistími, ef um tímabundið leyfi er að ræða og leyfisgjald. Menntamálaráðherra ákveður upphæð leyfisgjalds. Leyfi til útvarps verða ekki framseld.

4. gr.


    Útvarpsstöðvum, er leyfi fá til útvarps, er heimilt að afla tekna með auglýsingum, afnotagjaldi eða sérstöku gjaldi vegna útsendingar fræðslu- og skýringarefnis.
    Auglýsingar skulu vera skýrt afmarkaðar frá öðrum dagskrárliðum og vera á lýtalausu íslensku máli.
    Útvarpsstöðvar skulu eigi síðar en einum mánuði fyrir hverjar almennar kosningar til Alþingis og sveitarstjórna og til forsetakosninga koma sér saman um reglur til að takmarka stjórnmálaauglýsingar. Nái handhafar útvarpsleyfa og Ríkisútvarpið ekki samkomulagi samkvæmt þessari grein skal menntamálaráðuneytið að höfðu samráði við útvarpsnefnd setja reglur er gilda um birtingu stjórnmálaauglýsinga síðasta mánuðinn fyrir kosningar.
    Utanaðkomandi aðilar geta einungis styrkt gerð einstakra dagskrárliða á sviði menningar, fræðslu og íþrótta, enda greiði þeir allan kostnað við framleiðslu og útsendingu viðkomandi dagskrárliðar. Með öllu er óheimilt að leita styrkja frá utanaðkomandi aðilum vegna gerðar frétta- og dægurmálaefnis.
    Nú aflar útvarpsstöð tekna með afnotagjaldi þannig að móttaka útsendinga er háð notkun tiltekins myndlykils og skal þá einvörðungu heimilt að nota þá myndlykla til móttöku sem samþykktir hafa verið af viðkomandi útvarpsstöð.

5. gr.

    Útvarpsstöðvum er heimilt að reisa sendi- og endurvarpsstöðvar, eiga og reka senditæki, viðtæki og önnur slík tæki sem eru sérstaklega framleidd fyrir útvarpssendingar, enda fullnægi tækin reglum sem Póst- og símamálastofnun setur um öldutíðni, útgeislun og fleira í samræmi við settar reglur og alþjóðasamþykktir varðandi fjarskipti sem Ísland er aðili að.

6. gr.

    Heimilt er með reglugerð að setja nánari ákvæði um framkvæmd 3.–5. gr.
    Þeir aðilar, einstaklingar, félög eða stofnanir sem telja að útvarpsstöð hafi ekki uppfyllt skilyrði laga þessara, geta lagt málið fyrir menntamálaráðherra. Menntamálaráðherra getur afturkallað leyfi til útvarps að fenginni umsögn útvarpsnefndar sé brotið gegn ákvæðum laga þessara, enda sé um alvarleg og ítrekuð brot að ræða. Útvarpsstöð getur áfrýjað úrskurði ráðherra til dómstóla, en áfrýjun frestar þó ekki framkvæmd afturköllunarinnar.

II. KAFLI

Ríkisútvarpið.

7. gr.

    Ríkisútvarpið er sjálfstæð stofnun í eigu íslenska ríkisins.

8. gr.

    Ríkisútvarpið skal leggja rækt við íslenska tungu, sögu þjóðarinnar og menningu.
    Ríkisútvarpið skal halda í heiðri lýðræðislegar grundvallarreglur og mannréttindi, svo og frelsi til orðs og skoðana. Það skal gæta fyllstu óhlutdrægni í frásögn, túlkun og dagskrárgerð. Stefnt skal að því að hlutur innlends efnis sé sem mestur og vandað sé til þess sem verða má. Ríkisútvarpið skal veita almenna fræðslu og gera sjálfstæða dagskrárþætti er snerta Ísland eða Íslendinga sérstaklega.
    Ríkisútvarpið skal veita almenna fréttaþjónustu og er vettvangur fyrir mismunandi skoðanir á málum sem efst eru á baugi hverju sinni eða almenning varða. Ríkisútvarpið skal flytja fjölbreytt skemmtiefni við hæfi fólks á öllum aldri og flytja efni á sviði lista, bókmennta, vísinda, trúarbragða, sögu og tónlistar. Það skal efla skilning á mismunandi viðhorfum og menningarheimum.
    Sérstaklega skal þess gætt að hafa á boðstólum fjölbreytt efni við hæfi barna og unglinga, jafnt í hljóðvarpi sem sjónvarpi. Útvarpsefni skal miðast við fjölbreytni íslensks þjóðlífs. Ríkisútvarpið skal veita alla þá þjónustu sem unnt er með tækni útvarpsins og þjóðinni má að gagni koma.

9. gr.

    Ríkisútvarpið skal senda til alls landsins og næstu miða minnst tvær hljóðvarpsdagskrár og minnst eina sjónvarpsdagskrá árið um kring.
    Heimilt er Ríkisútvarpinu að senda út fleiri dagskrár hljóðvarps og sjónvarps, í lengri eða skemmri tíma, til alls landsins eða hluta þess samkvæmt ákvörðunum útvarpsráðs.
    Ríkisútvarpið skal annast hljóðvarp til annarra landa samkvæmt ákvörðunum útvarpsráðs.
    Ríkisútvarpinu er heimilt að reisa sendi- og endurvarpsstöðvar, eiga og reka jarðstöðvar, senditæki og önnur slík tæki sem sérstaklega eru framleidd til útvarpsstarfsemi, enda fullnægi tækin reglum er Póst- og símamálastofnun setur um öldutíðni, útgeislun og fleira í samræmi við settar reglur og alþjóðasamþykktir varðandi fjarskipti sem Ísland er aðili að.
    Heimilt er Ríkisútvarpinu að hafa samvinnu við aðra aðila um dagskrárgerð og útsendingar.
    Ríkisútvarpið skal stefna að því að koma upp aðstöðu til dagskrárgerðar og hljóðvarps í einstökum landshlutum.
    Ríkisútvarpið skal starfrækja kennsluútvarp í samvinnu við fræðsluyfirvöld og skal veita til þess fé á fjárlögum. Nánar skal kveðið á um þá starfsemi í reglugerð.

10. gr.

    Ríkisútvarpinu er heimilt að hafa dagskrárefni, sem flutt hefur verið, til útlána eða sölu, enda sé gengið frá samningum við rétthafa.

11. gr.

    Ríkisútvarpið starfar í aðaldeildum sem aftur skiptast í deildir. Framkvæmdastjóri er fyrir hverri aðaldeild. Framkvæmdastjórn tekur ákvörðun um fjölda aðaldeilda, en þær skulu að minnsta kosti vera þrjár, fjármáladeild, hljóðvarp og sjónvarp.
    Fjármáladeild fjallar um fjármál stofnunarinnar, innheimtu og gengur frá fjárhagsáætlun fyrir allar deildir stofnunarinnar.
    Hljóðvarp og sjónvarp annast öflun og útsendingu dagskrárefnis. Kappkosta skal að hlutur innlends efnis í dagskránni verði ætíð sem mestur og til þess vandað svo sem verða má.

12. gr.

    Í framkvæmdastjórn sitja útvarpsstjóri, framkvæmdastjórar aðaldeilda og tveir fulltrúar kjörnir af starfsmönnum, annar frá hljóðvarpi en hinn frá sjónvarpi, svo og fulltrúi útvarpsráðs en hann hefur þar málfrelsi og tillögurétt. Útvarpsstjóri er formaður framkvæmdastjórnar og er framkvæmdastjóri fjármáladeildar varamaður hans. Allir starfsmenn Ríkisútvarpsins eiga rétt á því að leggja mál sín fyrir framkvæmdastjórn.
    Framkvæmdastjórn skal vinna að samræmingu á starfi deilda.

13. gr.

    Útvarpsstjóri annast almennan rekstur, mannaráðningar og stjórn Ríkisútvarpsins. Hann sér um fjárreiður þess og hefur yfirumsjón með gerð fjárhagsáætlunar í samráði við fjármálastjóra og útvarpsráð.
    Útvarpsstjóri undirbýr og stjórnar framkvæmd dagskrár og gætir þess að settum reglum um hana sé fylgt.

14. gr.

    Menntamálaráðherra skipar útvarpsstjóra. Hann skipar einnig framkvæmdastjóra aðaldeilda að fengnum tillögum framkvæmdastjórnar og útvarpsráðs. Útvarpsstjóri og framkvæmdastjórar eru skipaðir til fimm ára í senn, með heimild til ráðningar í önnur fimm ár.
    Starfsmenn Ríkisútvarpsins, aðrir en framkvæmdastjórar, skulu ráðnir af útvarpsstjóra, að fengnum tillögum framkvæmdastjórnar. Dagskrárstjórar og fréttastjórar útvarps og sjónvarps, svo og leiklistarstjóri og tónlistarstjóri hljóðvarps, skulu ráðnir til fimm ára í senn, með heimild til ráðningar í önnur fimm.

15. gr.

    Útvarpsráð skipa sjö menn. Skulu þeir ásamt jafnmörgum varamönnum kosnir hlutfallskosningu á Alþingi eftir hverjar alþingiskosningar. Menntamálaráðherra skipar formann og varaformann úr hópi hinna kjörnu útvarpsráðsmanna.
    Útvarpsstjóri á sæti á fundum útvarpsráðs og hefur þar málfrelsi og tillögurétt.

16. gr.

    Útvarpsráð fylgist með og tekur ákvarðanir til að tryggja að gerð dagskrárefnis og rekstur dagskrárdeilda sé innan marka fjárhagsáætlunar. Útvarpsráð tekur einnig í samráði við útvarpsstjóra, ákvarðanir um hljóðvarp til annara landa og dagskrár hljóðvarps og sjónvarps, sbr. 9. gr.

III. KAFLI

Fjármál Ríkisútvarpsins.

17. gr.

    Ríkisútvarpið hefur sjálfstæðan fjárhag. Tekjum þess má eingöngu verja í þágu útvarpsstarfsemi.
    Megintekjustofnar Ríkisútvarpsins eru afnotagjald, þ.e. gjald fyrir hljóðvarp og sjónvarp, og gjöld fyrir auglýsingar í hljóðvarpi og sjónvarpi og aðrar tekjur samkvæmt lögum þessum, sbr. 4. mgr. 4. gr.
    Menntamálaráðherra staðfestir afnotagjald að fengnum tillögum Ríkisútvarpsins. Heimilt er menntamálaráðherra að fela innheimtumönnum ríkis- og sveitarfélaga að annast innheimtuna, að fenginni tillögu framkvæmdastjórnar Ríkisútvarpsins.
    Útvarpsstjóri staðfestir auglýsingataxta og aðrar gjaldskrár eftir tillögu framkvæmdastjóra fjármáladeildar.

18. gr.

    Í sjóð, sem nefnist Framkvæmdasjóður Ríkisútvarpsins, skal leggja 10% af brúttótekjum stofnunarinnar. Fé Framkvæmdasjóðs skal verja til að tryggja viðunandi húsnæði, tækjakost og dreifikerfi fyrir starfsemi Ríkisútvarpsins.

19. gr.

    Eigandi viðtækis, sem nýta má til móttöku á útsendingum Ríkisútvarpsins, skal greiða afnotagjald, útvarpsgjald, af hverju tæki. Þó skal aðeins greiða eitt útvarpsgjald fyrir einkaafnot fjölskyldu á heimili. Afslátt skal veita þeim sem aðeins geta nýtt sér svart/hvíta móttöku sjónvarpsefnis og þeim sem einungis geta nýtt sér hljóðvarpssendingar. Einnig er heimilt að veita fyrirtækjum og stofnunum afslátt vegna fjölda tækja á sama stað. Nánari ákvæði um afslátt, skilgreiningu á heimili og innheimtu gjaldsins skal setja í reglugerð.
    Í reglugerð má einnig ákveða undanþágu blindra og heyrnarlausra manna frá greiðslu útvarpsgjalds.

20. gr.

    Eigandi, sem breytir afnotum sínum, sbr. 19. gr., skal tilkynna það Ríkisútvarpinu þegar í stað.
    Hver sá, er fæst við sölu viðtækja, skal tilkynna innheimtudeild Ríkisútvarpsins í fyrstu viku næsta mánaðar eftir sölumánuð hverjir séu kaupendur. Í tilkynningunni skal greina fullt nafn, nafnnúmer, kennitölu og heimilisfang kaupanda og seljanda, enn fremur aðrar upplýsingar samkvæmt reglugerð.

21. gr.

    Ríkisútvarpið heldur skrá yfir öll viðtæki sem notuð eru hér á landi og í íslenskum skipum og flugvélum og nota má til móttöku útvarpsefnis.
    Afmá skal viðtæki af skrá ef sönnur, sem innheimtustjóri metur gildar, eru á það færðar að tækið sé orðið ónýtt eða verði af öðrum ástæðum ekki lengur notað til móttöku útsendinga Ríkisútvarpsins.

22. gr.

    Útvarpsgjaldi ásamt dráttarvöxtum, öðru vangreiðsluálagi og öllum innheimtukostnaði fylgir lögveðsréttur í viðkomandi viðtæki sem helst þótt eigendaskipti verði. Gengur veðið fyrir hvers konar eldri sem yngri samningsveðum, dómveðum og öðrum höftum sem á viðtæki kunna að hvíla, nema eignarréttarfyrirvörum.
    Lögveðið helst í þrjú ár frá gjalddaga.
    Eigendur viðtækja bera ábyrgð á greiðslu útvarpsgjalda af þeim til Ríkisútvarpsins sem á hafa fallið áður en tilkynning um eigendaskipti skv. 20. gr. hefur borist Ríkisútvarpinu.

23. gr.

    Innheimtustjóri Ríkisútvarpsins skal fullnægja almennum dómaraskilyrðum.

24. gr.

    Fyrsta virkan dag eftir eindaga leggst á útvarpsgjald 10% álag vegna kostnaðar af innheimtu.
    Þegar mánuður er liðinn frá eindaga útvarpsgjalda getur innheimtustjóri krafist lögtaks fyrir ógreiddum gjöldum ásamt vöxtum og kostnaði og skal úrskurður auglýstur eins og fyrir er mælt um opinber gjöld.

25. gr.


    Innheimtustjóri getur framkvæmt eða látið framkvæma innsiglun á viðtæki:
1.    ef það er hagnýtt til móttöku án þess að það hafi verið tilkynnt til Ríkisútvarpsins,
2.    ef vanskil eru orðin á greiðslu útvarpsgjalds,
3.    ef hlutaðeigandi aðili hefur sagt upp útvarpsnotum.
    Nú eru fyrir hendi skilyrði skv. 1. tölul. 1. mgr. eða gert hefur verið lögtak í viðtæki fyrir vangreiddu útvarpsgjaldi og getur þá innheimtustjóri tekið eða látið taka viðtækið úr vörslu eiganda eða annars vörslumanns.
    Viðkomandi héraðsdómari kveður upp dómsúrskurð ef nauðsyn ber til vegna framangreindra framkvæmda.

IV. KAFLI


Dreifing og réttindi.

26. gr.

    Ríkisútvarpið, útvarpsnefnd og Póst- og símamálastofnun skulu hafa náið samstarf til að tryggja að útvarps- og fjarskiptastarfsemi verði í heild sem hagstæðust fyrir þjóðina.
    Heimilt er Ríkisútvarpinu, að fengnu samþykki menntamálaráðherra, að semja
við Póst- og símamálastofnun um að reisa sendistöðvar og endurvarpsstöðvar Ríkisútvarpsins.

27. gr.

    Ríkisútvarpið hefur sama rétt og Póst- og símamálastofnun um nauðsynlegar lagnir um lönd manna, lóðir og byggingar vegna starfsemi sinnar. Óheimilt er að leggja svo nýjar lagnir að þær trufli lagnir eða tæki Ríkisútvarpsins. Reynist raflagnir, vélar eða tæki fyrirtækja sem stofnsett eru í nágrenni útvarpsstöðva, valda truflunum á starfsemi Ríkisútvarpsins eða útvarpsstöðva er leyfi hafa til útsendingar, sbr. 3. gr., er viðkomandi stöðvum heimilt í samráði við Póst- og símamálastofnun að gera eða fyrirskipa á kostnað eigenda nauðsynlegar ráðstafanir til að hindra slíkar truflanir. Sama gildir ef fyrirtæki breyta starfsemi eða vélabúnaði sínum þannig að truflunum valdi. Starfsmönnum Póst- og símamálastofnunar er heimilt að fara tálmunarlaust um lönd manna til eftirlits eða athugana í þessum efnum, en skulu forðast að valda eigendum eða íbúum meiri óþægindum en brýnasta nauðsyn krefur.

28. gr.

    Fyrir útvarp um þráð gilda eftirtaldar reglur sérstaklega, sbr. þó skilyrði í 3. gr.:
1.    Leyfi til útvarps um þráð er háð því að sveitarstjórnir heimili lagningu þráðar um lönd sín.
2.    Lagning og not þráðar í því skyni eingöngu að dreifa viðstöðulaust dagskrá útvarpsstöðva óbreyttri er háð skilyrðum laga þessara nema öðruvísi sé kveðið á um í reglugerð, sbr. 3. mgr. 1. gr. Samgönguráðuneytið skal setja reglur um gerð og notkun slíkra kerfa og eftirlit með þeim. Áskilja má að notkun þessara kerfa sé háð leyfi Póst- og símamálastofnunar.

29. gr.


    Móttaka eða sending sjónvarpsefnis um gervihnött milli fastra stöðva er háð samningi sendanda og móttakanda og samþykki Póst- og símamálastofnunar. Öðrum aðilum er óheimil móttaka slíkra sendinga.
    Heimil er öllum móttaka útvarpsefnis sem sent er um gervihnetti gagngert til dreifingar til almennings, enda hafi tilskilinna heimilda frá rétthöfum verið aflað.
    Dreifing þráðlaust eða um þráð á dagskrá, sem komin er til móttökustöðvar um gervihnött, er óheimil nema með samningi við viðkomandi útvarpsstöð er dagskrána sendir og með samþykki Póst- og símamálastofnunar, enda sé gætt ákvæða laga þessara ef um útvarpsrekstur er að ræða skv. 1. gr.

V. KAFLI

Ábyrgð á útvarpsefni.

30. gr.

    Hver sá sem hefur leyfi til útvarps samkvæmt lögum þessum skal varðveita í a.m.k. 12 mánuði hljóð- eða myndupptöku af frumsömdu útsendu efni. Fullnægjandi er að varðveita fréttir í handriti í a.m.k. 12 mánuði. Skylt er að láta þeim sem telur misgert við sig í útsendingu í té afrit af upptöku þeirrar útsendingar meðan varðveisluskylda helst.
    Ríkisútvarp, hljóðvarp og sjónvarp, skal varðveita myndir, plötur og hljómbönd eftir því sem útvarpsstjóri ákveður í samráði við þjóðskjalavörð.
    Skylt er einkaútvarpsstöðvum að hafa samvinnu við Þjóðskjalasafn um varðveislu fræðslu- og menningarefnis.

31. gr.

    Ef útsending á útvarpsefni brýtur í bága við lög fer um refsi- og fébótaábyrgð sem hér segir:
    Sá sem flytur eigið efni í sínu nafni ber ábyrgð á því. Gildir það bæði um efni sem útvarpað er samtímis því að það er flutt og efni sem útvarpað er samkvæmt áður gerðri upptöku. Ákvæði þessarar málsgreinar taka einnig til samtals í útvarpi þannig að hver, sem tekur þátt í samtali í eigin nafni, ber ábyrgð á framlagi sínu í því.
    Flytjandi ber ábyrgð á efni sem annar maður hefur samið. Þetta á þó ekki við um efni sem þulir, sem hafa atvinnu af því að lesa efni annarra, flytja. Í slíkum tilvikum ber höfundur efnisins eða umsjónarmaður, sem sett hefur efnið á dagskrá án vitundar höfundar, ábyrgðina.
    Á samsettu dagskrárefni ber umsjónarmaður ábyrgð, enda sé ekki um að ræða flutning eða samtal sem ábyrgðarreglur 2. eða 3. mgr. taka til. Jafnan skal skrá fyrir fram í gerðabók hver sé umsjónarmaður útsendingar.
    Auglýsandi ber ábyrgð á auglýsingu.
    Handhafi útvarpsleyfis ber ábyrgð á öðru efni. Í Ríkisútvarpinu ber framkvæmdastjórn ábyrgð.
    Nú hefur tiltekinn starfsmaður útvarpsstöðvar, sbr. 4. mgr., eða handhafi
útvarpsleyfis, framkvæmdastjórn Ríkisútvarpsins, sbr. 6. mgr., orðið fébótaskyldur og ber útvarpsstöðin þá ásamt honum ábyrgð á greiðslu bóta.

32. gr.

    Engan skal dæma til ábyrgðar vegna útsendingar á útvarpsefni né fyrir hlutdeild í útsendingu annan en þann sem ábyrgð ber eftir ákvæðum 31. gr. Skylt er útvarpsstöð að veita hverjum þeim, sem telur rétti sínum hafa verið hallað með útsendingu á útvarpsefni, fullnægjandi upplýsingar um hver hafi borið ábyrgð á útsendingunni samkvæmt ákvæðum 31. gr. Um rétt til málssóknar út af brotum í sambandi við útsendingu útvarpsefnis fer eftir almennum reglum laga. Refsiábyrgð og fébótaskylda falla niður ef 12 mánuðir líða frá útsendingu án þess að einkamál sé höfðað, krafa hafi verið borin fram um opinbera málssókn þegar það á við eða hafin sé opinber réttarrannsókn út af broti ef það á að sæta skilyrðislausri opinberri saksókn.

VI. KAFLI

Ýmis ákvæði.

33. gr.

    Heimilt er útvarpsstöðvum að leigja öðrum aðilum afnot af tækjabúnaði sínum til útsendingar. Útvarpsstöðvum er jafnframt heimilt að veita upplýsingaþjónustu í gegnum tæki og dreifikerfi.

34. gr.

    Óheimilt er útvarpsnotanda að hagnýta sér útvarpsefni til fjárgróða, t.d. með upptöku þess, útgáfu eða með því að selja aðgang að viðtæki sínu.

35. gr.

    Óheimil hagnýting útvarpsefnis og móttökubúnaðar, eins og kveðið er á um í 5. mgr. 4. gr. og 34. gr., varðar sektum. Beita má varðhaldsrefsingu ef sök er stórfelld. Upptæk má gera viðtæki sem notuð hafa verið til hagnýtingar á útvarpsefni í fjárgróðaskyni, sbr. 34. gr., sem og ólögmætan móttökubúnað, sbr. 5. mgr. 4. gr.
    Um önnur brot á lögum þessum fer eftir ákvæðum almennra hegningarlaga.

36. gr.

    Ráðherra setur með reglugerð nánari ákvæði um framkvæmd laganna í heild eða einstakra kafla þeirra.
    Ákveða má í reglugerð að brot gegn ákvæðum hennar varði refsingu samkvæmt lögum.

37. gr.

    Lög þessi öðlast þegar gildi. Falla þá jafnframt úr gildi útvarpslög, nr. 68/1985, og lög nr. 40/1986, um breytingu á þeim lögum.

Ákvæði til bráðabirgða.


    Skipunar- og ráðningartíma yfirmanna Ríkisútvarpsins, þ.e. framkvæmdastjóra, fjármálastjóra og útvarpsstjóra, skal ljúka eigi síðar en fimm árum eftir að lög þessi öðlast gildi.

Athugasemdir við lagafrumvarp þetta.


    Frumvarp þetta er að stofni til samið af nefnd sem starfaði undir forustu Ögmundar Jónassonar og skilaði áliti sl. vor. Ekki vannst tími til þess að ganga frá málinu að fullu sl. vor og var því fjallað um það sérstaklega á fundum með þingmönnum stjórnarflokkanna sl. sumar. Frumvarpið hefur tekið talsverðum breytingum m.a. með hliðsjón af umsögnum stjórnarflokkanna.
    Ein meginbreyting er fólgin í að ákvæði um fjölmiðlasjóð eru felld niður enda er gert ráð fyrir því að flytja síðar frumvarp um Menningar- og fjölmiðlasjóð, sem leysi af hólmi gildandi lög um menningarsjóð og menntamálaráð og Menningarsjóð útvarpsstöðva. Fyrirhugað er að hinn nýi sjóður hafi svipuð verkefni og gert var ráð fyrir í frumvarpsdrögunum um fjölmiðlasjóð eins og þau lágu fyrir sl. vor.
    Nefnd sú, sem áður er vikið að, var skipuð hinn 10. febrúar sl. og áttu sæti í henni auk Ögmundar Jónassonar sem gegndi formennsku í nefndinni, þau Eiður Guðnason alþingismaður, Hörður Vilhjálmsson fjármálastjóri Ríkisútvarpsins, Erna Indriðadóttir deildastjóri, Jón Óttar Ragnarsson sjónvarpsstjóri, Helgi Guðmundsson, fulltrúi í útvarpsréttarnefnd, Magdalena Schram blaðamaður, Þorgeir Ástvaldsson útvarpsstjóri og Arnþrúður Karlsdóttir sem jafnframt var ritari nefndarinnar. Þá störfuðu með nefndinni þau Þórhallur Arason, skrifstofustjóri í Fjármálaráðuneyti, og Þórunn J. Hafstein, deildarstjóri í menntamálaráðuneyti. Nefnd þessi skilaði áliti hinn 17. mars sl.
    Var nefndinni í starfi sínu falið að taka tillit til lokaálits útvarpslaganefndar, dags. 8. október 1988, og þeirrar reynslu sem fengist hefur af þeirri nýskipan fjölmiðlamála sem núgildandi útvarpslög fela í sér. Þess skal getið að útvarpslaganefnd sú, sem hér var nefnd, var skipuð af þáverandi menntamálaráðherra, Sverri Hermannssyni, 9. febrúar 1987 og áttu sæti í henni þeir Haraldur Ólafsson dósent, Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson lögfræðingur og Knútur Hallsson, ráðuneytisstjóri í menntamálaráðuneytinu, sem jafnframt var formaður nefndarinnar.

Helstu nýmæli frumvarpsins.


    Helstu nýmæli þessa frumvarps eru að lagt er til að útvarpsréttarnefnd verði lögð niður, en menntamálaráðherra veiti framvegis leyfi til útvarpsreksturs. Þá er gert ráð fyrir því að útvarpsnefnd skipuð þremur fulltrúum, sem tilnefndir eru af Hæstarétti, verði menntamálaráðherra til ráðuneytis og fjalli auk þess um kærur á hendur útvarpsstöð telji einstaklingar eða félög misgert við sig í dagskrá.
    Frumvarpið gerir ráð fyrir að heimildir til reksturs einkaútvarpsstöðva miðist ekki við þrönga skilgreiningu á afmörkuðum þjónustusvæðum heldur geti þær náð til alls landsins.
    Þá er lagt til að þýðingarskylda verði lögfest og lögð áhersla á að efni sérstaklega ætlað börnum og ungmennum verði talsett.
    Eins og áður er vikið að er lagt til að Menningarsjóður útvarpsstöðva verði lagður niður í núverandi mynd og að létt verði þeirri kvöð af Ríkisútvarpinu að greiða hlut af rekstrarkostnaði Sinfóníuhljómsveitar Íslands. Mun samhliða þessu frumvarpi lagt fram frumvarp til breytinga á lögum um Sinfóníuhljómsveit Íslands sem staðfestir breytingu í þessa veru.
    Í þessu frumvarpi er lagt til að breytingar verði gerðar á yfirstjórn Ríkisútvarpsins þannig að útvarpsráð fái fyrst og fremst rekstrar- og fjármálalegt eftirlitshlutverk en framkvæmdastjórn fái veigameiri hlut við stjórn stofnunarinnar. Þá er lagt til að skipunartími yfirmanna stofnunarinnar verði framvegis til fimm ára í senn.
    Varðandi tekjustofna Ríkisútvarpsins er lagt til að áfram verði innheimt afnotagjald af viðtækjum, en hvert heimili greiði þó ekki nema eitt gjald.
    Aðflutningsgjöld renni í ríkissjóð svo sem verið hefur.
    Settar eru skýrari reglur um styrk utanaðkomandi aðila við gerð einstakra dagskrárliða og varðandi auglýsingar sérstaklega er áskilið að þær séu á lýtalausu íslensku máli.


Athgasemdir við einstakar greinar og kafla frumvarpsins.


Um I. kafla.


Um 1. gr.


    Með hugtakinu útvarp er átt við bæði hljóðvarp og sjónvarp. Byggt er á sömu skilgreiningu á útvarpi og áður, þ.e. að útvarp sé hvers kyns dreifing dagskrárefnis í ljósvakamiðlum til almennings. Útvarpshugtakið tekur þó ekki til dreifingar á dagskrárefni sem nær einvörðungu til íbúa eða íbúðar á einni samfelldri lóð. Er með þessu horfið frá þeirri viðmiðun núgildandi útvarpslaga að útvarp skuli miðast við 36 íbúðir eða fleiri innan samfellds svæðis. Að áliti sérfræðings Póst- og símamálastofnunar er eðlilegra að miða við lóðarmörk, enda þótt það hafi í för með sér að í ýmsum tilvikum nái útsending til margra íbúða en í öðrum einungis til fárra.
    Rétt er að árétta að tilvísun til fjarskiptalaga er einvörðungu byggð á nauðsyn þess að hafa hliðsjón af fjarskiptalögum hvað varðar tæknilega hlið útvarpsreksturs. Útvarp er sérstök tegund boðmiðlunar sem fellur ekki undir skilgreiningu fjarskiptalaga á fjarskiptum. Þetta hefur þýðingu varðandi framkvæmd ákvæða 5. gr. um heimild útvarpsstöðva til að eiga og reka senditæki, endurvarpsstöðvar og nauðsynleg fjarskiptavirki í því sambandi.
    Í 3. mgr. 1. gr. er lagt til að menntamálaráðherra geti ákveðið með reglugerð stærð þeirra loftnetskerfa sem ekki skuli teljast til útvarps þrátt fyrir ákvæði 2. mgr. Tækniframfarir á sviði fjölmiðlunar bendir til þess að móttaka sjónvarpsefnis, sem dreift er um gervihnetti, verði sífellt einfaldari og ódýrari. Því má búast við því að það verði tæknilega ómögulegt að framfylgja ákvæðum um þýðingarskyldu þegar um viðstöðulausa dreifingu sjónvarpsefnis er að ræða.

Um 2. gr.


    Efni þessarar greinar er óbreytt frá því sem verið hefur að því frátöldu að útvarpsréttarnefnd er lögð niður og menntamálaráðherra falið að veita öðrum aðilum en Ríkisútvarpinu leyfi til útvarpsreksturs. Það þykir til einföldunar á framkvæmd laganna að menntamálaráðherra taki við hlutverki útvarpsréttarnefndar varðandi leyfisveitingar og er byggt á þeirri forsendu að menntamálaráðherra hljóti alla jafna að veita slík leyfi viðstöðulaust, sbr. 3. gr.
    Almenn ákvæði laganna eiga jafnt við um starfsemi Ríkisútvarpsins og annarra útvarpsstöðva sem leyfi fá til reksturs.
    Þá er lagt til að sérstök nefnd útvarpsnefnd verði menntamálaráðherra til ráðuneytis um vafaatriði og ágreiningsmál sem kunna að rísa vegna útsendinga eða starfsemi útvarpsstöðva og mundi útvarpsnefnd fjalla um starfsemi allra útvarpsstöðva, þar með talið Ríkisútvarpsins.

Um 3. gr.


    Greinin felur í sér nánari skilgreiningu á því hverjum ráðherra getur veitt leyfi til útvarps og hvaða takmörkunum leyfin eru háð. Í gildandi lögum segir að veita megi sveitarfélögum og lögaðilum leyfi til útvarps á afmörkuðum svæðum. Rétt þykir að taka af tvímæli um að leyfishafa sé heimilt að útvarpa á fleiri en einu svæði eða til landsins alls. Ekki þykir lengur ástæða til að binda leyfisveitinguna við þrönga skilgreiningu afmarkaðra svæða. Þá er það nýmæli að heimilt er að veita ótímabundin útvarpsleyfi þó að þau geti einnig verið tímabundin sé þess óskað.
    Verður nú vikið að einstökum töluliðum 3. gr.
    Í 1. tölul. er það nýmæli að heimilt er að veita leyfi til að útvarpa til útlanda á öðrum bylgjum en metra- eða desimetrabylgju.
    2. tölul. er óbreyttur frá núgildandi lögum.
    3. tölul. kveður sérstaklega á um þýðingarskyldu á erlendu útvarpsefni eins og verið hefur samkvæmt núgildandi reglugerð um útvarp samkvæmt tímabundnum leyfum. Þykir þýðingarmikið að taka ákvæði um þetta efni upp í útvarpslögin. Þá er í þessum tölulið að finna stefnumarkandi ákvæði um talsetningu dagskrárefnis.
    4. tölul. er efnislega samhljóða núgildandi lögum. Útvarpsnefnd tekur við hlutverki útvarpsréttarnefndar samkvæmt núgildandi lögum sem úrskurðaraðili ef kærur berast.
    5. tölul. er samhljóða 4. tölul. núgildandi laga.
    6. tölul. svarar til 5. tölul. núgildandi útvarpslaga að öðru leyti en því að nú er einnig skírskotað til jafnréttislaga og höfundalaga auk þess sem greinin tekur til allra útvarpsstöðva.
    7. tölul. er samhljóða 6. tölul. núgildandi laga.
    8. tölul. svarar til 7. tölul. núgildandi útvarpslaga, sbr. 4. mgr. 4. gr., og er efnislega óbreyttur en leitast er við að skýra efni þessa ákvæðis með því að taka núgildandi reglugerðarákvæði upp í lögin. Ákvæði um utanaðkomandi
styrktaraðila er tekið upp í 4. mgr. 4. gr.
    9. tölul. svarar til 8. tölul. núgildandi laga og er efnislega óbreyttur en tekið upp ákvæði um að útvarpsleyfi verði ekki framseld.

Um 4. gr.


    Í greininni er kveðið er á um með hvaða hætti útvarpsstöðvum er heimilt að afla tekna og er greinin efnislega óbreytt frá því sem verið hefur að því frátöldu að ekki er lengur áskilið að gjaldskrár útvarpsstöðva séu lagðar fram til samþykktar.
    Í lagagreininni eru nú tekin af öll tvímæli um hvaða grundvallarreglur skuli gilda um styrkveitingu utanaðkomandi aðila til dagskrárgerðar. Heimild til styrkveitingar er nú bundin við menningar-, fræðslu- og íþróttaefni og áskilið er að styrkveitandi greiði allan kostnað við framleiðslu og gerð efnisins. Áréttað er að utanaðkomandi aðilar geti ekki styrkt gerð frétta- eða dægurmálaefnis. Óheimilt er að kostnaðaraðilar hafi áhrif á gerð dagskrárefnis.
    Jafnframt felur greinin í sér það nýmæli að allar auglýsingar skuli vera á lýtalausu íslensku máli og gildir það jafnt um söngtexta, talað mál eða ritaðan texta.
    Sérstök ástæða þykir til að kveða á um samkomulag Ríkisútvarpsins og útvarpsstöðva um fyrirkomulag stjórnmálaauglýsinga sem miðist við að setja slíkum auglýsingum skorður.
    5. mgr. greinarinnar er nýmæli, en með þessari málsgrein er leitast við að tryggja stöðu útvarpsstöðva gegn notkun svokallaðra „sjóræningjamyndlykla“. Þá er í 29. gr. heimilað að gera slíka myndlykla upptæka. Þykir sérstök ástæða til að setja ákvæði af þessu tagi í lög þar sem notkun ólöglegra myndlykla hefur færst í vöxt hér á landi.

Um 5. gr.


    Greinin er efnislega óbreytt frá núgildandi lögum.

Um 6. gr.


    Grein þessi fjallar um heimild ráðherra til að setja í reglugerð nánari ákvæði um framkvæmd einstakra þátta er varða rekstur útvarpsstöðva og um er fjallað í 3.–5. gr. Þar sem lagt er til að útvarpsréttarnefnd skuli lögð niður er ráðherra veitt heimild til að afturkalla útvarpsleyfi skv. 3. gr. og eins er kveðið á um áfrýjunarrétt útvarpsstöðva ef um leyfissviptingu er að ræða. Áður en afstaða er tekin til afturköllunar útvarpsleyfis skal umsögn
útvarpsnefndar liggja fyrir.

Um II. kafla.


Um 7. gr.


    Með þessari grein hefst kafli um Ríkisútvarpið og er greinin samhljóða 14. gr. núgildandi útvarpslaga.

Um 8. gr.


    Í öllum meginatriðum er greinin samhljóða 15. gr. núgildandi laga og skýrir sig sjálf. Meiri áhersla er þó lögð á gerð innlends efnis og einnig að leitast skuli við að efla skilning á framandi menningarstraumum.

Um 9. gr.


    Í þessari grein laganna segir að stefnt skuli að því að koma upp aðstöðu til dagskrárgerðar og hljóðvarps í einstökum landshlutum í stað allra kjördæma áður. Ríkisútvarpið skal starfrækja kennsluútvarp í samvinnu við fræðsluyfirvöld en brýnt er að skýrt sé kveðið á um það í reglugerð hvernig Ríkisútvarpinu verði gert kleift að reka þessa starfsemi með sóma.
    Þá er staðfest að þjónusta RUV skuli ekki vera minni en nú er, þ.e. tvær hljóðvarpsrásir og ein sjónvarpsrás.

Um 10. gr.


    Þarfnast ekki skýringar.

Um 11. gr.


    Í þessari grein er deildaskipting Ríkisútvarpsins skilgreind. Framkvæmdastjórar eru fyrir aðaldeildum og er það líkt fyrirkomulag og verið hefur. Framkvæmdastjórn ræður deildaskiptingu stofnunarinnar enda ber hún ábyrgð á innra skipulagi stofnunarinnar. Þessi grein áskilur að þær þrjár aðaldeildir, sem starfandi eru nú, skuli starfa áfram.

Um 12. gr.


    Framkvæmdastjórn ber ábyrgð á rekstri Ríkisútvarpsins og í þessari lagagrein er skipan hennar og valdsvið skilgreint. Fulltrúi útvarpsráðs á sæti í framkvæmdastjórn með málfrelsi og tillögurétti til að sinna fjármálalegu eftirlitshlutverki útvarpsráðs. Rétt er að áhrif starfsmanna í stjórn stofnunarinnar verði efld til þess að stuðla að lýðræðislegum vinnubrögðum, fagmennsku og samábyrgð.

Um 13. gr.


    Í þessari grein er verksvið útvarpsstjóra skilgreint. Samkvæmt henni annast útvarpsstjóri daglegan rekstur sem formaður framkvæmdastjórnar og í umboði hennar.

Um 14. gr.


    Sú grundvallarbreyting er gerð að útvarpsstjóri, framkvæmdastjórar og deildarstjórar eru ráðnir tímabundinni ráðningu.

Um 15. gr.


    Þessi grein er óbreytt frá núgildandi lögum.

Um 16. gr.


    Þessi grein skilgreinir verksvið útvarpsráðs. Samkvæmt henni hefur ráðið einkum með höndum fjárhagslegt hlutverk, svo og ákvörðunarvald um heildardrætti í starfsemi stofnunarinnar.

Um III. kafla.


Um 17.–25. gr.


    Ríkisútvarpið hefur lengst af haft tolltekjur af viðtækjum og ýmsum búnaði sem tilheyrir móttöku útvarpsefnis. Í núgildandi lögum er ákvæði þar sem segir að Ríkisútvarpið skuli hafa tekjur af aðflutningsgjöldum af hljóðvarps- og sjónvarpstækjum. Telja verður að ákvæði af þessu tagi hafi verið eðlilegt áður en einkaréttur ríkisins til útvarpsrekstrar var afnuminn. Kaupendur tækja voru þá um leið orðnir viðskiptavinir Ríkisútvarpsins og ekki annarra innlendra aðila. Einnig þótti eðlilegt að notendur greiddu með þessum hætti kostnað af uppbyggingu dreifikerfis í landinu. Nú er hins vegar orðin sú breyting að notendur viðtækja eru viðskiptavinir annarra stöðva einnig. Vaknar sú spurning hvort eðlilegt sé að Ríkisútvarpið njóti þessara tekna umfram aðrar útvarpsstöðvar. Hins vegar er ljóst að Ríkisútvarpið er með þessu svipt veigamiklum tekjustofni sem átti að nota til sérstakra fjárfestinga, svo sem dreifikerfis, útvarpshúss og langbylgjustöðvar. Breytingin á lagagreininni frá gildandi lögum felst í því að nú eru Ríkisútvarpinu ætlaðir tveir megintekjustofnar, þ.e. afnotagjald og gjald fyrir auglýsingar. Gert er ráð fyrir að þeirri kvöð verði létt af Ríkisútvarpinu að greiða hluta í rekstrarkostnaði Sinfóníuhljómsveitar Íslands.
    Að því er varðar afnotagjöldin eru ákvæði núgildandi laga að mestu látin halda sér.
    Innheimtudeild Ríkisútvarpsins hefur séð um innheimtu útvarpsgjalds. Innheimtuárangur deildarinnar er sambærilegur við það sem gerist hjá ríki og sveitarfélögum. Í lagagreininni er ekki gert ráð fyrir að leggja innheimtudeildina niður en sett inn ákvæði er heimilar stofnuninni og ráðherra að fela innheimtumönnum ríkis og sveitarfélaga verkefnið.

Um IV. kafla.


Um 26.–27. gr.


    Greinin er efnislega óbreytt frá núgildandi lögum nema kveðið er á um aðild útvarpsnefndar að samstarfi Ríkisútvarpsins og Póst- og símamálastofnunar um dreifikerfi um landið.

Um 28. gr.


    Greinin er nánast samhljóða núgildandi 5. gr. útvarpslaga, en greinin tekur þó mið af heimild menntamálaráðherra skv. 3. mgr. 1. gr. til að undanskilja rekstur loftnetskerfa ákvæðum laganna.

Um 29. gr.


    Greinin er efnislega óbreytt frá núgildandi lögum en áréttað er að sé um útvarpsrekstur að ræða skv. 1. gr. felur það m.a. í sér skyldu til þýðingar á erlendu sjónvarpsefni.

Um V. kafla.


Um 30. gr.


    Efni þessarar greinar var áður í 17. gr. núgildandi laga og tók þá aðeins til Ríkisútvarpsins. Hér er lagt til að varðveisluskyldan nái til allra útvarpsstöðva. Jafnframt er við það miðað að útvarpsstöðvum er ekki skylt að varðveita annað efni en það er hefur menningar- og fræðslugildi.
    Varðveisluskylda er stytt úr 18 mánuðum í 12 til samræmis við málssóknarrétt á grundvelli 32. gr.

Um 31. gr.


    Sú breyting er gerð á þessari grein að skilgreining á ábyrgðaraðilum breytist. Talið er rétt að umsjónarmenn samsettra þátta séu ábyrgir fyrir þeim, innan vissra marka, fremur en stjórnandi útsendingar eins og segir í gildandi lögum. Þá er ábyrgð á öðru útsendu efni færð til samræmis við aðrar breytingar frumvarpsins. Einnig er talið rétt að skýra ábyrgð þula sem atvinnu hafa af því að lesa efni annarra.

Um 32. gr.


    Greinin er óbreytt frá núgildandi lögum.

Um VI. kafla.


Um 33. gr.


    Efni þessarar greinar var áður í 16. gr. og átti þá aðeins við um Ríkisútvarpið. Nú þykir hins vegar nauðsyn að veita öðrum stöðvum slíka heimild.
    Þá er í greininni heimilað að útvarpsstöðvar veiti upplýsingaþjónustu, TELETEKST, í gegnum tæki og dreifikerfi án þess að um dagskrárgerð eða auglýsingar sé að ræða.

Um 34.–37. gr.


    Ákvæði þessi eru óbreytt frá núgildandi lögum.

Um ákvæði til bráðabirgða.


    Hér er gert ráð fyrir að skipunar- og ráðningartíma núverandi yfirmanna Ríkisútvarpsins ljúki eigi síðar en fimm árum eftir gildistöku laga þessara og ákvæði 1. mgr. 14. gr. um tímabundna skipun taki þá gildi.