Ferill 433. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1989–90. – 1059 ár frá stofnun Alþingis.
112. löggjafarþing. – 433 . mál.


Sþ.

754. Tillaga til þingsályktunar



um endurvinnslu og fullnýtingu úrgangsefna.

Flm.: Kristín Einarsdóttir, Anna Ólafsdóttir Björnsson,


Danfríður Skarphéðinsdóttir, Guðrún Agnarsdóttir,


Málmfríður Sigurðardóttir, Þórhildur Þorleifsdóttir.



    Alþingi ályktar að fela ríkisstjórninni að stuðla að endurvinnsluiðnaði sem nýti meiri hluta þess sem til fellur af endurvinnanlegum og fullnýtanlegum úrgangsefnum. Samhliða því verði leitað leiða til að styrkja endurvinnsluiðnað sem fyrir er í landinu.

Greinargerð.


    Tillaga þessi var flutt á 110. löggjafaþingi en hlaut ekki afgreiðslu. Hún er nú flutt á ný vegna þess að málið er enn jafnbrýnt og það var fyrir rúmum tveimur árum.
    Öllum ætti að vera löngu ljóst að jörðin er ekki óþrjótandi nægtarbúr og að neysluþensla undanfarinna ára hefur leitt til þess að sífellt er gengið á auðlindir jarðar. Löngu er orðið tímabært að móta langtímastefnu í nýtingu þeirra. Hingað til hafa skammtímasjónarmið ráðið ferðinni, allt skal gert á sem „hagkvæmastan“ hátt, en ekki hugsað fram í tímann.
    Mikil verðmæti eru fólgin í því ógrynni úrgangs sem til fellur. Háum fjárhæðum er nú varið til eyðingar á sorpi og úrgangi með ýmsum aðferðum. Þessu er brennt, það er urðað eða því jafnvel sökkt í sæ án þess að hugsað sé um hvaða áhrif það hefur á lífkerfið. Eðlilegra og farsælla er að reyna að vinna samkvæmt lögmálum náttúrunnar, en þar ríkir jafnvægi sem viðhaldið er af eðlilegri hringrás efna. Úrgangur úr einni deild er nýttur sem hráefni fyrir aðra.
    Auðlindir jarðar eru langt frá því að vera óþrjótandi, reyndar eru margar nær þrotnar. Okkur, sem nú lifum, ber því að hugsa til þeirra sem á eftir koma. Þeir þurfa ekki síður á þessum hráefnum að halda.
    Þegar litið er til auðlinda eru sumar þeirra ólífrænar og takmarkaðar, t.d. málmar sem hljóta að ganga til þurrðar fyrr eða síðar. Aðrar eru lífrænar en takmarkaðar vegna þess að endurnýjunartíminn er svo langur að líta verður á þær sem óendurnýjanlegar. Dæmi um þetta eru olíulindir. Gróður lands og lífið í hafinu eru dæmi um endurnýjanlegar auðlindir ef ekki er um ofnýtingu að ræða.
    Til að stuðla að bættri nýtingu auðlinda verður að stefna að eftirfarandi:
1.      Endurnotkun. Hlutur er nýttur aftur og aftur í sama tilgangi og upphaflega var ætlað. Dæmi um þetta eru margnotaðar umbúðir, t.d. glerflöskur og plastílát.
2.      Fullnýtingu. Nýting á ýmis konar úrgangi, t.d. ryki og steinefnum frá reykháfum verksmiðja eða slógi og öðrum úrgangi frá fiskvinnslu.
3.      Endurvinnslu. Breyta má efni sem lokið hefur hlutverki sínu í sams konar eða annars konar vöru. Þetta á t.d. við um endurvinnslu málma og pappírs.
    Þegar rætt er um endurvinnslu hefur athyglin oft beinst að nýtingu pappírsúrgangs. Skógar eru undirstaða pappírsframleiðslu og þrátt fyrir stuttan endurnýjunartíma miðað við mörg önnur hráefni er stöðugt gengið á skóglendi jarðar. Við framleiðslu á einu tonni af pappír þarf um fimm tonn af viði.
    Hér á landi hefur lítið verið reynt til að endurvinna pappír. Árið 1986 voru flutt inn um 36 þúsund tonn af pappír og pappírsvörum, auk pappírsumbúða utan um innfluttar vörur. Þar af var dagblaðapappír 5,4 þús. tonn og sá pappír sem fer í símaskrána árlega er um 170 tonn. Má því áætla að árlega sé mörg þúsund tonnum af pappír fleygt á haugana.
    Nokkrar athuganir hafa verið gerðar á endurvinnslumöguleikum pappírs og tilraunir gerðar með slíkan iðnað hér á landi án þess að um jákvæða niðurstöðu hafi verið að ræða. Tilraunir hafa einnig verið gerðar með fullnýtingu á slógi og öðrum fiskúrgangi, m.a. til meltuframleiðslu. Einnig hefur verið reynt að nota innyfli úr sauðfé til lyfjaframleiðslu. Undirbúningur að endurvinnslu á brotajárni var vel á veg kominn hér á landi fyrir nokkrum árum og lagaheimild fengin fyrir stuðningi ríkisins við byggingu verksmiðju. Málið strandaði hins vegar á lokastigi vegna tregðu og skilningsleysis stjórnvalda. Þetta eru aðeins fá dæmi og yfirleitt hefur verið talið að framkvæmdir væru ekki hagkvæmar.
    Hér ber að hafa í huga, eins og svo oft áður, hve hugtakið „hagkvæmt“ er afstætt. Fyrir hvern er endurvinnsla hagkvæm? Er það hagkvæmt fyrir þann sem rekur endurvinnslufyrirtækið eða verður að líta á hagkvæmni í víðara samhengi? Hvað með umhverfissjónarmið sem oft vilja gleymast?
    Í skýrslu sem Reykjavíkurborg lét gera um hreinsun, ráðstöfun og endurnýtingarmöguleika sorps, Sorphirða 1978, öðrum hluta, eftir Jón Erlendsson, segir í formála:
    „Hvað aukinni endurnýtingu viðvíkur er það mat þeirra sem gerst þekkja þessi mál, að það sé aðeins tímaspursmál hvenær mikil aukning verði á henni. Í þessu sambandi er gjarnan bent á þá fyrirsjáanlegu hráefniskreppu sem koma mun til á næstu árum og áratugum hvað mörgum efnum viðvíkur. Hækkandi verð þeirra efna, sem skortur verður á, mun valda því að hagkvæmni þess að endurnýta þau í stað þess að henda þeim, mun fara síbatnandi.“ Það er skoðun flutningsmanna að taka verði þessi mál föstum tökum, hér á landi sem annars staðar, áður en alvarlegur hráefnisskortur gerir vart við sig.
    Eitt vandamál við fullnýtingu og endurvinnslu er að safna saman hráefni til vinnslunnar. Oft kemur mikill úrgangur frá fyrirtækjum, svo sem pappír frá prentsmiðjum og umbúðaverksmiðjum og efnaafgangar frá saumastofum, en mikið af afgangsefnum kemur einnig frá heimilum. Hin síðari ár hafa æ fleiri gert sér grein fyrir þýðingu fullnýtingar og endurvinnslu. Það er því líklegt að margir verði fúsir til að flokka sorp frá heimilum sínum og koma t.d. pappír, málmum og gleri á ákveðna staði í gáma í hverfamiðstöðvum eða fyrir utan stórverslanir. Þannig mætti á ódýran hátt safna miklum hluta af heimilisúrgangi. Víða erlendis tekur almenningur virkan þátt í slíkri söfnun og þeim fer sífellt fjölgandi sem vilja jafnvel greiða hærra verð fyrir pappírsvörur ef þær eru unnar úr notuðum pappír.
    Það er fleira en pappír sem sjálfsagt er að fullnýta og endurvinna. Málmar, gler, gúmmí, timbur, sag, vefnaðarvörur, plast, smurolía, slóg og fiskúrgangur eru dæmi um úrgangsefni sem hægt er að endurvinna eða fullnýta á ýmsan hátt.
    Ýmsum hættulegum efnum er fleygt sem síðan menga og eitra umhverfið. Efnin menga jarðveg og geta borist í grunnvatn og þar með neysluvatn með ófyrirsjáanlegum afleiðingum. Þessum efnum er nauðsynlegt að safna saman, endurvinna og endurnota til að minnka mengunarhættu.
    Útreikningar á hagkvæmni endurvinnsluiðnaðar eru flóknir og hætta á að ekki séu allir þættir teknir inn í dæmið. Meðal annars verður að taka mið af því við hagkvæmnisútreikninga að samfélagið ver umtalsverðu fjármagni í sorphirðu og sorpeyðingu og verðmætt land er tekið undir sorphauga. Erfitt er að meta hver kostnaður samfélagsins er af hirðingu sorps sem fleygt er á víðavangi. Einmitt þessar staðreyndir valda því að opinberir aðilar og sveitarfélög verða að eiga hlut að undirbúningi endurvinnsluiðnaðar. Einstaklingar eiga oft erfitt með að leggja mat á málið í heild og „hagnaður“, í þröngri merkingu, er ekki endilega í sjónmáli.
    Úrgangsefni þau sem ekki er talið hagkvæmt að endurvinna hér verðum við að láta endurvinna erlendis þar sem það er hagkvæmara vegna meira magns og stærri markaðar. Á þann hátt vinnum við gegn auðlindaþurrð auk þess sem við leysum mikinn vanda vegna sorpeyðingar.
    Til þess að endurvinnsluiðnaður eigi betri möguleika hér á landi í framtíðinni er eðlilegt að hann njóti bestu kjara á flestum sviðum. Má þar nefna skattaívilnanir og orku á hagstæðu verði utan álagstíma. Einnig má skylda fyrirtæki þar sem mikill úrgangur fellur til að skila honum til endurvinnslufyrirtækja án endurgjalds, leggja endurvinnslugjald á vörur, sem æskilegt er að fullnýta í stað þess að farga, og skattleggja mengandi iðnað. Eðlilegt er að sveitarfélög styðji slíkan iðnað því að hann dregur úr kostnaði þeirra við sorphirðu- og eyðingu.
    Sænska umhverfismálaráðuneytið gaf út bækling í maí 1987 með umræðum og ábendingum frá ríkisstjórnarfundi vegna skýrslu sem gerð var um úrgangsefni og ráðstöfun þeirra. Þar kemur m.a. fram að eftir að áhersla var lögð á endurnotkun, fullnýtingu og endurvinnslu þar í landi hefur magn úrgangs sem kemur til endurvinnslu margfaldast. Frá 1975 til 1986 jókst magn endurunnins dagblaða- og tímaritapappírs úr 90 þús. tonnum í 344 þús. tonn og frá heimilum úr 65 þús. tonnum í 260 þús. tonn. Endurvinnsla glers og áldósa hefur einnig gengið mjög vel hjá Svíum.
    Mikilvægt er að efla og samræma fræðslu um umhverfismál í grunnskólum, framhaldsskólum og á meðal almennings. Með aukinni þekkingu og skilningi fólks á náttúrunni og umhverfi sínu gerir það sér betur grein fyrir áhrifum mannsins á náttúruna. Það eykur hæfni til að vega og meta ákvarðanir og athafnir út frá margvíslegum forsendum, svo sem vistfræðilegum, fjármálalegum, fagurfræðilegum, hagfræðilegum, uppeldislegum o.s.frv.
    Verkefni eins og þetta væri eðlilegt að fela ráðuneyti umhverfismála í samvinnu við ráðuneyti iðnaðar-, heilbrigðis- og félagsmála. Nauðsynlegt er einnig að hafa gott samstarf við sveitarstjórnir um þetta mál.